Morgunn - 01.06.1988, Qupperneq 11
morgunn
AFFUNDI MEÐ TUTU
an neista eða vita af honum. Og vegna skorts á þekkingu og
skilningi á jörðinni ykkar, þá er þar víða enn öngþveiti og
myrkur. Og það er myrkur fákænsku. Manneskjurnar, sem
við getum starfað með á jörðinni, til að kenna og hjálpa, eru
of fáar. Kirkjurnar hafa sterk tök á fólkinu í mörgum
löndum. Og þeir sem hafa sett sjálfa sig á hærri stall, leitast
enn við að slökkva loga þekkingar og lærdóms. En slíkt
myrkur er ekki til í allri tilverunni, sem getur slökkt á einu
einasta kertaljósi sannleika. Og í miklu tómi er lítið kertaljós
eða skin eins og stór sól. Og þið, sérhvert ykkar, eruð kerta-
•jós. Ljós ykkar getur og mun skína skært ef þið leyfið því að
gera svo, en meiri þekkingar er þörf svo þið getið hjálpað og
kennt. Og það er mikið verk að vinna fyrir öll ykkar. Alltof
margir laðast ab fyrirbœrum þessarar heimsspeki, sem þið
kallið spíritisma. Þeir laðast að Ijómanum en ekki raun-
veruleika hans. Heimsspeki spíritismans er ákaflega yndis-
•eg, því hún kennir þolinmæði gagnvart öðrum, meiri skiln-
>ng á jörðinni. Hún kennir að sjúkum verði að hjálpa og heila
hvar og hvenær sem hægt er, að hjálpa verði beininga-
mönnum, fæða verði hungraða, því þessi mikli skapandi
máttur, sem þið, vegna vöntunar á betra orði, kallið guð
föður, hafði skapað á jörðinni allt það sem nauðsynlegt er
mannkyninu, allsstaðar í gjörvallri náttúrunni, nægilegt
manninum að hafa og njóta, svo ekki þyrfti að vera eitt
einasta hungrandi barn á þessari jörð. En fyrir græðgi
mannsins og ómannúðleika gagnvart meðbræðrum sínum,
þá ríkir mikil eymd, vegna þess að maðurinn hefur ekki lært
að vera þolinmóður gagnvart náunga sínum. Lað geysa stríð
vegna trúarbragða og stjórnmála, en fyrst og fremst vegna
trúmála. Trúin hefur fylgt manninum allt frá því hann fyrst
þráði að hrópa út og finna guð sinn. Og eftir að hafa fundið
stað innan alheimsins og kraftinn sem hann gæti notað og
orðið var við, þá voru til þeir sem þráðu að þeir gætu notað
þann sama kraft, ekki til að hjálpa, heldur fyrir sjálfa sig. Og
svo hafið þið prestana og mikilmenni ykkar innan raða
kirkjunnar. Innan margra kirkjudeilda verða stríð, sem leiða
til deyðingar meðbræðra. Til er að bróðir er deyddur með
9