Morgunn - 01.06.1988, Page 12
AFFUNDI MEÐTUTU
MORGUNN
nafni þess sama guðs á vörum og sá sem morðið fremur. Það
virðist oft sem óvinnandi verkefni að hjálpa á jörðinni,
verkamennirnir eru svo fáir og verkefnin svo mörg sem inna
þarf af hendi. En samt, ef við um stund, lítum á þær kring-
umstæður sem mannkynið hefur skapað félagslega, þá getið
jafnvel þið, innan ykkar æviskeiðs, séð hinar miklu framfar-
ir, framfarir þar sem maðurinn hefur tekið frá jörðinni allt
það sem hann hefur þarfnast, fyririðnað sinn, sköpun sína og
sköpunargáfu, til framleiðslu á öllum þessum hlutum, sem
geta verið mikil blessun fyrir mannkynið. Hvar væruð þið
stödd í landi ykkar og öðrum löndum án uppfinningar og
notkunar bílsins og flugvélarinnar. En samt sem áður, eins
og alltaf varðandi alla hluti, þá helst það jákvæða og það
neikvæða í hendur. Og það er maðurinn, sem ákveður hvort
skuli verða ofan á, hið neikvæða eða það jákvæða. Og ef
þetta er allt smækkað niður að innra lífi hvers einstaklings,
þá ákveður hver sál innan síns lífs, hvort skal ráða, hið
jákvæða eða það neikvæða. Og það jákvæða getur orðið að
því neikvæða ef það er ekki notað á réttan hátt. Því alveg eins
og rafmagn þarf að vera bæði jákvætt og neikvætt, þá ætti á
sama hátt að vera til staðar í lífinu, hæfileg blanda af þessu
tvennu, en þó alltaf á skapandi hátt, þannig að ekki bara
einstaklingurinn njóti góðs af, heldur og mannkynið sem
heild. Helgið líf ykkar því að skapa framfarir. Slíkt verður að
byrja innan heimilanna, næst þeim sem þið elskið, það er
grunnurinn, upphafsstaðurinn. Og þaðan heldur þessi orka
áfram og dreifist eins og hringgárur á polli, teygir sig til allra
átta. Mannkynið þekkir ekki ennþá hið mikla afl, kraft og
orku, sem býr innra með því og kannski er það eins gott. í
bók þeirri, sem hinn vestræni heimur, kristni heimurinn,
sýnir lotningu, er talað um trú, sem flytur fjöll. Og það er
ekki bara eitthvað fánýtt skrum, því mannkynið gerir sér
ekki grein fyrir því, að innan þess sjálfs er að finna, ekki
trúna heldur kraftinn, til þess að flytja fjöll. Pau ykkar sem
vita eitthvað um efnisbirtingu hljóta einnig að gera sér grein
fyrir að þar sem annað er til staðar, þá er hitt þar Iíka, þ.e.
afefnun. Og það er í þessu, notkun þessarar orku á þessu
10
j