Morgunn - 01.06.1988, Side 18
AFFUNDl MEÐTUTU
MORGUNN
anum. Og allt er þetta vegna þess að jörðin er úr þungu efni.
Þess vegna tölum við um þungar bylgjur á jörðinni og léttari í
heimi andans. En þetta þýðir þó ekki að andlegu bylgjurnar
séu alltaf betri. Það á aðeins við um þær hröðustu. Hugsaðu
um það. Það þýðir að hinar andlegu bylgjur eru léttari og
hraðari, vegna þess að þær eru ólíkar. Við höfum ekki þung
atóm efnisins, þetta er líkara orkunni sem er leyst úr
atóminu. Það er ekki auðvelt að koma orðum að þessu svo að
þið skiljið það, og fyrirgefið mér, ég á ekki við að þið séuð
eitthvað treggáfuð. En það skapar viss vandkvæði fyrir mig
líka, að koma orðum að umfjöllun um aðra vídd, fyrir þrí-
víddarheim.
Sp.: Hefurðu einhvern mælikvarða yfir hinn afstæðahraða
á hreyfingu atómanna? Þú segir að hún sé hraðari, hefurðu
eitthvert hlutfall?
Sv.: Nei, vegna þess að það eru til margar víddir og hver
þeirra er af ólíkri bylgjuhreyfingu. Nákvæmlega eins og það
er á jörðinni hjá ykkur, þá eru öll atóm með mismunandi
bylgjuhraða. Allt frá mjög þungum atómum eða atómkerf-
um, til þeirra léttari. Þau léttari eru súrefnið eða loftið, sem
umlykur jörð ykkar, hin þyngri eru plútóníum og þeir málm-
ar sem maðurinn hefur lært að nota við bræðslu atóma, sem
er honum, enn sem komið er, til skaðræðis, en vegna hins
jákvæða og þess neikvæða, þá er hægt að nota atóm, eða
bræðslu atómanna, til hagsbóta fyrir mannkynið. Og þó það
sé svo að vissu leyti við framleiðslu lyfja og orku jarðar, þá
skilur maðurinn ekki atómin til fulls. Hann hefur brotið þau
niður í margar, margar einingar, mörg hundruð eininga, en
eins og vísindamenn ykkar munu upplýsa, þá hafa þeir enn
ekki komist til að framkvæma algjöra sundrungu atómsins.
Þegar mannkynið lærir að sundra einingum þess algjörlega,
þá munið þið sem enn eruð á jörðinni þegar það verður,
verða vör við þann mismun sem er á heimi andans og efninu,
jarðefninu.
Sp.: Geturðu sagt okkur hvar og hvenær síðasta endur-
holdgun þín átti sér stað?
Sv.: Það mun ég segja ykkur, ef ykkur langar að vita um
16