Morgunn - 01.06.1988, Side 19
MORGUNN
AFFUNDl MEÐTUTU
það, en ég álít að það sé ekki mikilvægt atriði. En ef það er
ósk ykkar, þá mun ég svara því!
Sp.: Þakka þér fyrir.
Sv.: Og þið viljið fá að vita það?
Sp.: Já!
Sv.: Sem Egypti fyrir meira en 3000 árum síðan.
Sp.: Hvað varð til þess að þú kaust að starfa með þessum
miðli núna?
Sv.: Ég átti von á þessari spurningu. Og ég mun svara
henni. Af því að hún var líka á jörðinni um það leyti. Og
sönnun þess var henni gefin í gegn um Ursulu Roberts, sem
ég veit að þið kannist við og hafið reyndar kannski hitt.
Sp.: Já, það höfum við. Þakka þér fyrir svarið. Og hvert er
nafn þitt?
Sv.: Miðillinn minn og þeir, sem vilja þekkja mig undir
nafni, þekkja mig undir heitinu Tutu (frb. tætí). En eins og
Ursulu Roberts myndi segja ykkur og hefur sagt miðlinum
mínum, þá er það ekki nema partur af nafni mínu. Og ég
endurtek það, að hinn hlutinn skiptir ekki máli.
Sp.: Hvernig finnst þér jarðsviðið vera í dag, samanborið
við það sem var fyrir 3000 árum síðan, hefur orðið fram- eða
afturför?
Sv.: Ef til vill framför á margan hátt. En þó bjuggum við
Yfir mikilli þekkingu, á þeim tíma þegar ég var á jörðinni,
bæði um lífið og hinn svo kallaða dauða. Og á margan hátt
vorum við nær náttúrunni og skilningi á lögmálum hennar.
Til voru þeir tímar í sögu Egyptalands, þegar þrælar voru
notaðir, en það var ekki alltaf þannig, því margir prestanna í
hofunum vissu um og þekktu mikið til lögmála náttúrunnar.
Margar hinna miklu bygginga okkar eða minnismerkja, eins
og þær eru kallaðar í dag, voru ekki gerðar af þrælum, heldur
frekar með notkun náttúrulögmála. Ég hugsa að það komi
ykkur ekki á óvart.
Sp.: Nei. Var það efnisbirting og afefnun?
Sv.: Auðvitað.
Sp.: Hvaðan kom þekking Egyptanna?
Sv.: f>að er erfitt að útskýra það, en vissir kynþættir jarðar
17