Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 20
AFFUNDI MEÐTUTU
MORGUNN
komu á vissan hátt með þekkingu með sér og öfluðu sér
þekkingar. Urðu ef svo má segja, ekki efnisþéttir á jörðinni,
heldur héldu eftir þessari þekkingu. Mikið af henni hefur
líka komið frá eldri menningarskeiðum. Löngu liðnum
menningarsamfélögum, sem minnst er á í dag af fólki, sem
veit afskaplega Iítið um þau, en veit þó að þessi samfélög
voru til.
Sp.: Er þarna um að ræða einhver tengsl við Atlantis?
Sv.: Já, Atlantis og Lemuria.
Sp.: Var Lemuria á Kyrrahafi eða í Miðjarðarhafinu?
Sv.: Ja, bæði samfélögin hafa verið nefnd á mörgum
stöðum. Á Kyrrahafinu, Atlantshafinu og í Miðjarðar-
hafinu. Jörðin hefur mikið breyst á þessum árum og öldum
sem liðnar eru. Ef þið hafið séð gamlar myndir af jörðinni
ykkar eins og hún var þegar meginlöndin lágu saman, þá
vitið þið að höfin voru ekki eins þá og þau eru nú.
Sp.: Eins og fyrir tvö hundruð milljónum ára?
Sv.: Fyrir löngu síðan. Löngu síðan. En tíminn er ekki til
vinur minn.
Sp.: Sólin er smám saman að kólna.
Sv.: Auðvitað, því ekkert stendur í stað. En hafðu ekki
áhyggjur vinur minn, hún mun ekki kólna alveg á meðan þú
ert á jörðinni.
Sp.: Pað er dálítið sem mig langar að vita um andlega
heiminn ykkar. Þurfið þið að vinna fyrir ykkur þar eins og við
gerum hérna og hafið þið náttúrlegt ljós, eins og við höfum
hér?
Sv.: Má ég reyna að svara spurningum þínum einni í einu.
Þú spurðir um Ijós, var það ekki? Já, við höfum það ... Eða,
ég ætla að byrja svarið upp á nýtt: Heimur andans, þeir
heimar eða sá heimur, andlegi heimur, sem næstur er jörð-
inni ykkar, kallið hann fyrsta heiminn, ef ykkur sýnist svo, er
nánast eftirmynd ykkar heims, með margvíslegum löndum
sínum og fólki. En við höfum ekki nein landamæri á milli
landa, þar sem maður þarf að sýna vegabréf. Þannig að ef
einhver frá Afríku kýs að búa í landi eins og Islandi, þá væri
hinum sama alveg frjálst að gera svo. Og ljósið er þar alltaf.
18