Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Side 23

Morgunn - 01.06.1988, Side 23
morgunn AF FUNDI MEÐTUTU amanum. Það er eðlilegt að syrgja, því þið hafið ekki þann látna í Iíkamlegri nálægð til að snerta, sjá, heyra og tala við. Sorg er líka tilfinning, sem allar manneskjur verða að upplifa einhvern tíma í jarðlífinu. En eins og er með allar tilfinning- ar, þá geta þær orðið hömlulausar og valdið viðkomandi sál miklum bágindum, ekki síður en ástvininum fyrir handan og þannig dregið úr tilfinningu hans fyrir að vera laus við jarð- líkamann, frelsinu frá verkjum og þjáningu og gleðinni yfir að vera í andlega heiminum. Þar sem sannur kærleikur er til staðar þar fyrirfinnst ekki eigingirni. Við þráum af sönnum kærleika að sá, sem við elskum, geti verið hamingjusamur. Og að handan þráir ástvinurinn, að þegar tímabil sorgar og harms er liðið, þá finni ástvinir hans á jörðinni frið, hamingju °g ánægju. Þeir eru til á sitt hvorn máta, en finna það á jörðinni. Og þeir, sem elskuðu hann þar, þrá að ástvinur þeirra fyrir handan finni gleðina, friðinn, kærleikann og lausn frá veraldlegum málefnum og áhyggjum. En því miður, þá geta þeir, sem lifa á jörðinni, í líkamanum, stundum verið, að hluta til vegna hinna mannlegu ,,mistaka“, það er einmitt rétta orðið yfir það, svolítið sjálfselskir. Það er með þekk- mgunni, sem hægt er að leiðrétta sjálfselsku. Sp.: Geturðu varpað einhverju Ijósi á tilganginn með því að endurholdgast í þennan efnisheim? Sv.: Þetta er skóli til þess að læra í. Þá reynslu, sem maður gengur í gegn um á jörðinni er ekki hægt að finna annars staðar. Það er sú ástæða, sem sálin hefur fyrir því að endur- holdgast og þó að dvölin virðist stundum ósköp ábata- og tilgangslaus, þá er það ekki svo. Þegar þú kemur yfir í and- lega heiminn og verður fær um að sjá líf þitt líða fram hjá þér eins og við lestur bókar, þá muntu gera þér grein fyrir til- gangi þessa alls. Sp.: Það getur verið að þessa hafi verið spurt áður, en getur þú sagt okkur hver ákveður hver skuli deyja og hver ekki og hvers vegna hefur ungt fólk . . . Sv.: Nei, nei, þú þarft ekki að spyrja frekar, ég skal svara spurningunni barnið mitt. Enginn ákveður það nákvæmlega. Með öðrum orðum: samkvæmt bókinni ykkar ætti ferðalag 21

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.