Morgunn - 01.06.1988, Síða 24
AF FUNDI MEÐTUTU
MORCiUNN
ykkar á jörðinni að vara í 70 ár. Það er ágætis líftími. í dag
hafa læknavísindin gert mannkyninu mögulegt að lifa rnikið
lengur og njóta góðrar ævi. En líkaminn er háður margvís-
legum sjúkdómum. Ekki andinn, heldur líkaminn. Og
stundum verður truflun í eðlilegri starfsemi jarðlíkama mjög
ungra barna og ungs fólks, svo vírusar, gerlar og alls konar
sjúkdómar ráðast áhann. Og stundum er líkaminn ekki nógu
sterkur til þess að hamla á móti eða yfirvinna þetta, svo hin
unga sál flyst yfir í andlega heiminn. Mjög oft ber það ferða-
lag að á afar hörmulegan hátt. Þar komum við að ómannúð-
leika mannsins gagnvart sjálfum sér. Bílarnir, sem aka eftir
vegunum eru yndisleg uppfinning. En stundum hlýðir ekki sá
sem situr undir stýri lögunum, eins og þeim ber að hlýða,
lögunum um að aka þessu farartæki með aðgát gagnvart
öðrum. Stundum drekkur ungt fólk sterka drykki, sem gerir
það ófært um að gera sér grein fyrir því sem það er að gera.
Ef þú beitir huga þínum, barnið mitt, og reynir að finna út
fyrir sjálfa þig, hvers vegna þessi eða þetta fór til himna, þá
muntu mjög oft geta fundið svarið sjálf. Hef ég veitt þér
svolitla innsýn? — Já, ég held það. — En þú ert ekki ánægð
með svarið? Þér myndi líka það betur ef ég segði t.d. að það
væri guð sem sæti í hásæti og segði: í dag átt þú að koma og á
morgun þú? Nei, nei, þetta er lögmál, náttúrulegt lögmál.
Þegar manneskja hefur lifað lífi sínu, fulla lífdaga, hvort sem
það nú eru 70, 90 eða 50 ár, heilt líf, þrungið reynslu, þá er
það samkvæmt náttúrulögmáli, eða með notkun slíks
lögmáls, að harmleikir eða slys eiga sér stað. Það verður líka
vegna ómannúðar mannsins gagnvart sjálfum sér, þegar ungt
fólk eyðileggur eigið líf. Þá eru ekki neinir til staðar til þess
að kenna þeim, hjálpa þeim til þess að skilja, til að leiðbeina
þeim, annast þau. Raddir hrópa í eyðimörkinni, en þar er
enginn til þess að heyra. Það er margt ranglætið á jörðinni
ykkar í dag. Mörg skref hafa verið stigin í átt til betrunar á
ýmsan hátt, en alltaf á efnislegan máta, ekki andlegan. Þið
getið ekki skilið að, andann og efnið. Þau haldast í hendur.
Og þeir sem eru á andlegu sviðunum eru nálægir jörð ykkar,
nálægir þeim sem í jarðlíkömunum búa. Og ef þessi tengsl
22