Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 40
RANNSÓKNIR f DULSÁLARFRÆÐI . .
MORGUNN
Sumar óvenjulegustu tilraunirnar í „hugstýringu“ voru
framkvæmdar á Stalíns-tímanum. Ýtarlega skýrslu um þær
tilraunir má finna í bókinni „Psyhic Discoveries behind the
Iron Curtain“, eftir Sheilu Ostrander og Lynn Schroeder
(Abacus pappírskilja). Maður nokkur, Messing að nafni,
sannaði að það var vel hægt að stjórna huga fólks þannig að
hann gat auðveldlega gengið framhjá því án þess að það
tæki eftir honum og hann gat líka lesið í huga þess af ótrú-
legri nákvæmni. En það er ekki einu sinni nauðsynlegt fyrir
manneskju sem hefur dulræna hæfileika að vera viðstadda í
eigin persónu til þess að afla sér upplýsinga. Pað eru til fjöl-
margar sannanir um „fjarlægðar-skyggni". Eitt best þekkta
dæmið um tilfelli af slíku tagi er sagan af frú Wilmot sem
árið 1863, heimsótti, með því að ferðast utan jarðlíkama
síns, eiginmann sinn og félaga hans í káetu þeirra um borð
í gufuskipinu „City of Limerick“, á ferð þess frá Liverpool
til New York. Það var ekki aðeins að hr. Wilmot dreymdi
að kona hans kæmi inn í káetuna íklædd náttkjólnum sínum
og kyssti hann, heldur sá og félagi hans, sent var í hinni koj-
unni hana gera þetta og lét hann í ljós gremju sína við hr.
Wilmot fyrir að hann skyldi leyfa ungri hefðarkonu að haga
sér svo ósiðlega.
Nær okkur í tímanum hefur listamaður í New York, Ingo
Swann að nafni, sýnt hæfni sína í því að lýsa endurtekið og
í smáatriðum, staðháttum í 3000 mílna fjarlægð, þó að einu
upplýsingarnar sem hann hafði fengið áður væru einungis
um á hvaða lengdar- og breiddargráðum staðurinn væri. Og
ein sérstæðasta framkvæmd í sögu rannsókna á reynslu fólks
utan jarðlíkamans átti sér stað snemma á sjöunda áratugn-
um þegar Ameríska sálarrannsóknafélagið setti af stað
könnun sem miðaði að því að komast að hvort fólk gæti
ferðast utan jarðlíkamans til ákveðins áfangastaðar í
margra mílna fjarlægð og skýrt frá síðar mismunandi upp-
röðun hluta, sem komið hafði verið fyrir þar. Mörgum tókst
að gera þetta. Ég efast ekki um að Rússar, af sínum venju-
legu altæku vinnubrögðum, hafa skóla þar sem hægt er að
prófa þennan hæfileika og þróa til notkunar í stríði.
38