Morgunn - 01.06.1988, Síða 51
morgunn
UM BÓKINA ..VERAN Á 29 MEGARIDUM"
gátu þeir rætt um hin aðskiljanlegustu efni. Hingað til höfðu
þeir aðeins haft samband í gegn um miðilshæfileika O’Neils.
En þessar samræður var hægt að taka upp á segulband til
hlustunar fyrir aðra. Samræður þeirra fylla margar segul-
bandsspólur og eru flestar tæknilegs eðlis. Að sögn höfundar
bókarinnar þá eru þær langdregnar og leiðinlegar og er það
álit hans að það út af fyrir sig sé nokkur sönnun þess að ekki
sé hér um vísvitandi fölsun að ræða, því öllu líklegra væri að
menn hefðu þá reynt að hafa samræðurnar líflegri og meir
sláandi. Til munu vera meira en 30 klst. upptökur af sam-
ræðum þeirra Muellers og O’Neil.
Rétt er að taka fram að hvorki þeir O’Neil né Meek hafa
reynt að gera sér þessa uppgötvun að féþúfu á nokkurn hátt.
bvert á móti hafði Meek lagt fram um hálfa milljón dollara
að mestu af eigin fé, til þess að kosta þessar rannsóknir.
Nú kom að því að Meek fór að huga að því að kynna þessa
miklu uppgötvun fyrir sambýlingum sínum á jarðarkringl-
unni og athuga á hvern máta það yrði best gert. Hálft í hvoru
óttaðist hann afleiðingar þær sem slík uppgötvun gæti haft og
ráðgaðist hann við tvo prófessora við háskóla í London, vini
sína, sem voru hlynntir andlegum málefnum. Ekki treystu
þeir sér til að spá fyrir um afleiðingar slíkrar kynningar. Par
kom þó að hann ákvað að stefna að almennum blaða-
mannafundi í apríl 1982. Með honum vonaðist hann jafn-
framt eftir því að geta vakið athygli stórra rafeindafyrir-
tækja, sem etv. yrðu reiðubúin til þess að leggja fram fé,
aðstoð og þekkingu til frekari þróunar á þessu verkefni.
En áður en til þessa fundar kom tilkynnti Mueller O’Neil,
að nú færi að koma að því að hann yrði að flytjast yfir á annað
tíðnisvið, því hans heimsókn þar sem hann var nú staddur
væri senn lokið.
Meek hraðaði því undirbúningi fundarins sem mest hann
mátti og öflunar frekari sönnunargagna um Dr. Mueller, þ.e.
frá því skeiði er hann bjó hérna megin lífs. En svo fór að
Mueller hvarf úr sambandinu áður en til þessa fundar kom.
Eins og við var að búast þá höfðu fjölmiðlarnir ýmsar
efasemdir um þessar uppgötvanir og málið vakti ekki ýkja
49