Morgunn - 01.06.1988, Qupperneq 57
TIL UMHUGSUNAR
• • •
Þegar maður endurskoðar líf sitt og íhugar vandlega þá
löngu reynslu, sem er óhjákvæmileg áður en maður nálgast
undlega fullkomnun, þá áttar maður sig á, ekki aðeins
nauðsyn endurholdgunar, heldur líka gífurlegu mikilvægi
sérhvers smáatriðis í lífinu.
The return of Arthur Conan Doyle.
Munið að líf ykkar ætti að titra eins og hljómkvísl. Leitist
við að klingja með bjartri og hreinni nótu. Verið kyrr og
hljóð í sál ykkar dags daglega, svo hún megi syngja í
samræmi við tónlist víddanna. Lifið þannig og þið munið
varðveita en ekki eyðileggja hin fíngerðari svið ljósvakans,
sem eru hin raunverulegu heimkynni ykkar; þá munið þið
líka lifa til þess að hjálpa og blessa líf annarra.
White Eagle.
Þeir vitru syrgja ekki þá, sem farið hafa til hinna miklu
heima fyrir handan. Þeir vitru gleðjast, því þeir vita að
ástkær bróðir eða systir, faðir, móðir, eiginmaður, eiginkona
eða barn hafa farið til heims þar sem sársauki fyrirfinnst
ekki, heims ljóss og fegurðar. Þeir vitru syrgja ekki þá sem
lifa hér, því lífið á jörðunni hefur aðeins einn tilgang — að
sálin læri í gegn um reynslu sína um kraft og kærleika Guðs.
Þó reynslan geti stundum verið mjög sársaukafull, þá vinnur
allt saman til góðs, þegar hjartað er tileinkað guði.
White Eagle.
55