Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Page 59

Morgunn - 01.06.1988, Page 59
MORC.UNN ÁSTMILLI VINA íram á að sönn hamingja er fólgin í því að gefa. En vegna ahrifa margra fyrri lífa, þar sem ástin gekkst meir út á að þiggja heldur en að gefa, finnur persónan fyrir sársauka, þegar ástin er ekki metin eða móttekin. En hvernig sem nú allt veltur, þurfum við að þroskast og styrkjast, til þess að verða stöðugt verðugri miðpunktar fyr- ir útgeislun hins guðlega ljóss. Þess vegna verðum við að halda áfram að elska, þrátt fyr- >r þær þjáningar sem persónuleikinn líður. Sjálfið getur aðeins elskað á einn hátt, og það er með því að gefa fullkomlega. Sjálfið er aldrei hægt að særa þó svo ást sé ekki endurgoldin, það er eingöngu persónuleikinn sem er særður. Sönn ást veitir þeim elskaða fullkomið frelsi, einnig til að elska. Það að elska, þýðir að eiga alltaf þjónustuvilja og fórnarlund. Aðeins sá er stór í ást sinni, sem lætur ekki stjórnast af persónulegum hugarkvölum. Það að elska, er að halda út í heiminn og varðveita guðs- gjöfina. Við meigum ekki rýra gjöfina með því að binda hana ómeðvitað við þörfina að móttaka. Hin hreina ást er fyrsta skrefið á veginum, sem færir manneskjuna aftur til Guðdómsins. Pýð. Auður H. Hafsteinsdóttir. 57

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.