Morgunn - 01.12.1989, Page 6
RITSTJÓRARABB
MORGUNN
Stór hluti af efni þessa heftis fjallar um Siler Birch og kenn-
ingar hans. Þar sem hann er kynntur sérstaklega í upphafi kafl-
ans þá mun ég ekki fara út í frekari kynningu á honum hér, en
að mínu áliti eru orð og kenningar Silver Birch mjög einkenn-
andi fyrir slíka leiðbeinendur sem til okkar tala að handan. Vil
ég í því efni minna t.d. á Tutu (frb. tætí), leiðbeinanda miðils-
ins Gladysar Fieldhouse, en grein um hann birtist í fyrra hefti
Morguns 1988. Aðrir slíkir sem fram eru að koma á sjónarsvið-
ið í dag tala einnig mjög á svipuðum nótum, enda er „lögmál-
ið“ eitt og tilgangurinn sá sami.
Við birtum líka stutta grein sem segja má að fjalli um nei-
kvæða hlið sem fylgt getur mikilli umfjöllun og margvíslegri
starfsemi þeirri sem oft er, með réttu eða röngu, felld undir einn
hatt, svo kallaðra dulrænna mála. Vonandi minnir þessi grein
okkur á að halda vöku okkar í þessum efnum, ástunda hrein-
leika og gott hugarfar varðandi þau ekki síður en önnur í þessu
lífi. Og aldrei hefur verið meiri ástæða en einmitt nú, í allri
þessari uppsveiflu sem orðin er í títt nefndum dulrænu málum,
að standa vörð um þessi málefni, gæta þess að þau verði ekki
færð inn á rangar brautir. Það væri hræðilegt slys t.d. ef farið
væri að gera þessi eðlilegu Iögmál lífsins að einhverri pen-
ingamaskínu og gróðalind einstakra hópa og einstaklinga. Sú
hætta er vissulega fyrir hendi og vil ég hvetja alla þá sem þetta
lesa til þess að vera á varðbergi gagnvart slíku. Um leið og pen-
ingarnir fara að skipta höfuðmáli þá má alltaf búast við
óhreinu mjöli í pokahorninu. Og þá er einnig afar líklegt að
eitthvað annað ráði ferðinni en hugsjón og umhyggja fyrir vel-
ferð einstaklingsins. Peningar munu vissulega alltaf verða
nauðsynlegir að vissu marki í þessu starfi sem öðrum hér á
jörð, en þeir mega aldrei verða aðal markmiðið. Höfum það
ávallt í huga hér eftir sem hingað til.
Það er fyrst og fremst kærleikurinn og elskan til meðbræðra
okkar og systra sem skiptir máli og slíkt verður ekki keypt fyrir
peninga.
Með góðri kveðju,
Guðjón Baldvinsson.