Morgunn - 01.12.1989, Qupperneq 34
AF FUNDUM OG NÁMSKEIÐUM
MORGUNN
Fyrir uppeldi barna væri gott að við gætum lesið í árur
þeirra, því fyrir fæðingu fáum við áru. Þegar barn fæðist er eins
og það fljóti í áru, en við 2ja ára aldur byrja litir að sýna sig og
því strax hægt að sjá hvert stefnir hjá því, t.d. hvort það stefnir
að handar eða huglægum störfum.
Fólk hefur komið með erfið börn til mín, sem ég hefi getað
hjálpað með litum. Á einum dreng kom fram augngalli sem olli
lesblindu, sem orsakaði það t.d. að hann sá ekki muninn á B og
D og því lá langskólanám ekki fyrir honum. Flinsvegar kom
fram hjá honum mikil elska til alls gróðurs og alla aura sem
hann eignaðist lét hann í frækaup og þessir hæfileikar hafa nýst
honum vel. Hér sem oftar — sannaðist — að það er betra að
vera hamingjusamur í starfi — þó Iaun séu lægri — en Ieiður í
starfi er gefur fleiri krónur af sér. Litir sýna okkur hvort við
séum vetrar eða sumarmenn og getur það verið okkur til hagn-
aðar. Allir náttúrulitir eru góðir liti. Ef við reiðumst verða
rauðir litir ljótir. Jörð er með marga græna liti — grænn litur er
alltaf góður, en við skemmum hann með slæmum hugsunum,
biturð, ágirnd, afbrýði og þ.h. Notum við liti til góðs? í dag er
svört tíska í Englandi — allt skal vera svart frá toppi til táar.
Rautt gefur orku — samanber blóð.
í svefni ferðumst við, alloft munum við ekkert af því — eða
erum með ruglingslegt þrugl. Þegar við komum aftur í lík-
amann eftir draum — höfum við strax svo mikið að gera að við
ruglum draumum. Við þurfum að þjálfa okkur í því að muna
drauma. Þegar við teljum okkur hafa dreymt t.d. návist látins
vinar — þá er það ekki draumur heldur raunveruleiki. Við
þurfum að reyna að gefa okkur tíma til að muna drauma, áður
en við gefum okkur efnislíkamanum á vald.
Orkustöðvar líkamans eru sjö.
Efsta stöðin, höfuðið er andlega stöðin. Hér fer líkaminn á
önnur stig. Ef við nuddum efsta punkt höfuðs — finnum við
sérkennilega tilfinningu — hér er hægt að taka inn (andlega)
orku — þetta er staðreynd en ekki tilbúningur.
Watson kannaði þetta og taldi í fyrstu að þetta væri rangt —
en eftir nánari kannanir komst hann að því að þetta væri rétt.
Bandarískir skurðlæknar — ekki spiritistar — hafa komist í
32