Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Page 15

Morgunn - 01.12.1991, Page 15
MORGUNN Líkamningar á nýlegum miðilsfundi „í þeim tilfellum vorum við staðsettir í öðrum enda herbergisins, hinum megin voru gestirnir, þar sem rauða ljósið hékk á veggnum yfir þeim. Þegar fyrirkomulagið var með þessum hætti þá gengu líkamningarnir framhjá mér og inn í miðju herbergisins og sá ég þá eins og skuggamyndir gagnvart ljósinu. Þeir voru vanalega klæddir skykkjum úr útfrymi. Þær voru hálfgegnsæjar og ég gat greinilega séð nakta líkamsmynd karla, kvenna og barna, hárra, lágra, þybbinna, magurra .... öll ólík hverju öðru". „Vinir spurðu oft að því hvers vegna þau vildu koma nakin. Við því átti ég aðeins eitt svar: Ja, við mundum nú ekki beinlínis ætlast til þess af þeim að birtast í formlegum kvöldklæðnaði". Aður en hann flutti frá kirkju Woods og til annarrar borgar þá hélt miðillinn síðasta fundinn fyrir þau. I stað þessara föstu 10-15 gesta sem búist var við, þá komu um 40, augljóslega of margir fyrir fundar- herbergið. Nokkrir menn fóru inn í það, dreifðu bekkj- unum um herbergið og settu skiptiklefann upp í miðju þess, sem var frekar slæm staðsetning gagnvart rauða ljósinu. Eftir bæn og smá söng þá reis útfrymisský frá efsta hluta kefans, varð stærra og stærra, uns það mótaðist í efri hluta líkama sem hélt áfram að stækka, þar til höfuðið náði upp undir loftið, sem var í 20 feta hæð og teygði veran handleggina á milli veggja herbergisins. Eftir u.þ.b. eina mínútu dróst hún saman og hvarf aftur iun í efsta hluta klefans. Eftir þetta birtust a.m.k. 20 líkamningar og sumir þeirra settust hjá ástvini sínum og spjölluðu stutta stund. Wood kvaðst einnig hafa séð þarna skyggnilýsingar, transmyndun og spjaldaskrift. Hann lýsir miðlinum sem þeim fjölhæfasta og yndislegasta sem hann hefur hitt. Hann hafnar þeirri skoðun að fyrirbæramiðlun sé horfin og ekki lengur nauðsynleg. Hann segir að út frá 13

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.