Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Page 17

Morgunn - 01.12.1991, Page 17
RADDIR AÐ HANDAN á áhrifamiklum tilraunafundi í maí 1991 Raddir að handan heyrðust „hátt og skýrt" á ein- stökum líkamninga tilraunafundi. Á þessum fundi sem haldinn var í tilraunaskyni, lyftust lúðrar sem notaðir eru til að magna raddir, og bjöllutromma hringlaði í loftinu. Miðillinn var kyrfilega bundinn á höndum og fótum v'ð stól áður en fundurinn hófst, en hann var haldinn að viðstöddum 95 áhorfendum. George Cranley, talsmaður NAS-félagsins (Noah's Ark Society), sagði frá því nýlega hvernig fólk hefði orðið vitni að s.k. beinum röddum á fyrsta opna fundinum sem félagið hélt í maímánuði s.l. Fundurinn var haldinn á Park International hótelinu í Leicester í Englandi. NAS félagsskapurinn, sem var stofnaður til þess að stuðla að rannsóknum og öruggri þjálfun á fyrirbæra- wiðlun með því að hvetja og hjálpa til við starfsemi hringa og miðla sem stefna að slíkri þjálfun. Eftir aðeins eins árs starfsemi er meðlimafjöldi þess °rðinn 103 einstaklingar. Hápunktur fyrrgreinds fundar var tilraunaseta til rnyndunar efnislegra fyrirbæra. Miðillinn var 29 ára gamall karlmaður, en nafn hans hefur ekki verið gert opinbert af persónulegum ^stæðum. Til aðgreiningar var hann kallaður Lincoln mnan hringsins. Hann situr vanalega með einka heima- hring. Þrír meðlimir hans voru viðstaddir þetta kvöld. Hann er á fyrstu stigum þjálfunar sinnar. 15

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.