Morgunn - 01.12.1991, Side 20
Raddir að handan
MORGUNN
niður með talsverðum hávaða aftan við röð nr. 2", sagði
George.
Fyrsta beina röddin sem heyrðist var frá fræðslu-
leiðbeinanda sem kallaði sig „Mandaríninn". Hann talaði
í gegnum lúðurinn og útskýrði mikilvægi vítamínanna
og steinefnanna sem höfð voru í hringnum. Hann gerði
líka grein fyrir hlutverki sínu sem fræðara.
„Hann sagði okkur, vegna þess að við kynnum að
hafa áhuga á því, að fyrirbæramiðill hefði verið að
fæðast þennan sama dag í Lecester", sagði George.
„Hann talaði í nokkrar mínútur og hvarf svo".
„Annar sambandsaðilinn var kallaður „Charlie", ungur
drengur frá austur-London, frekar likur Mikka Leslie
Flints", sagði George. „Hann tilkynnti skyndilega að
hann ætlaði ekki að nota lúðurinn og hóf að tala óháð
honum í gegnum raddboxið sem byggt hafði verið upp,
þétt upp við miðilinn.
Vegna hinna óvenjulega aðstæðna kvað hann þá ekki
geta fært það til eins og þeir væru vanir að gera í
heimahringnum. Hann lýsti sér sem „siðameistara" og
hélt áfram að svara spurningum um andleg efni án þess
að hika eitt andartak.
„A meðan hann var að tala þá gátum við heyrt
einhvern skrifa og rífa blöð úr blokkinni jafnharðan og
skilaboð voru rituð í hana".
„Bréfmiði lenti í kjöltu einnar konunnar sem viðstödd
var. Við lok fundarins fannst talsvert af krumpuðum
pappírsþurrkum".
Sá sem kallaður var Charlie í sambandinu hafði tjáð
fundarfólkinu að komið yrði á framfæri skilaboðum sem
yrðu sönnunaratriði fyrir fólkið sem fengi þau. Engar
pappírsþurrkur höfðu verið fluttar inn í salinn. Cranley
sagði til útskýringar að hér hefði verið um efnistilfærslu
að ræða.
„Þegar ég opnaði eitt blaðið með skilaboðunum þá
kom í ljós að það var til einnar konunnar frá syni
hennar, 10 ára gömlum. Hún gladdist mjög yfir þeim.
18