Morgunn - 01.12.1991, Side 32
Nýr heimur er að fæðast
MORGUNN
Höldum okkur við orku andans og tökum leiðsögn til
að framkvæma það sem best er fyrir framtíðar velferð
mannkynsins og heimsins.
Erum við að hlaupast frá spíritismanum vegna
skoðana fjöldans, eins og kristnin gerði með því að
verða of bókstafstrúar og kirkjuleg aftur ?
Umlykjum okkur með sönnum anda spíritismans og
blásum þannig nýju lífi í hann til að halda áfram því
starfi sem okkar bíður í dag, þ.e. að leiða heiminn aftur
til eins Guðs, anda.
Það er eini kosturinn ef heimurinn á ekki að enda í
upplausn.
Spíritistum hefur einu sinni enn verið sýnt annað líf
og stærri hlutir sem eru nákvæmlega það sama sem
kennt var fyrir þúsundum ára af dulspekingum, spá-
mönnum, sjáendum og miðlum.
Það er hlutverk okkar að upplýsa mannkynið um hinn
andlega sannleika sem hefur verið vanræktur um
aldaraðir.
Út úr ringlulreið og þjáningu sem varð til vegna
fákænsku, græðgi og hjátrúar, er að fæðast nýr heimur.
Við skulum heita því hér um þessa helgi, að við
uppfyllum hlutverk okkar í vitneskju um að við höfum
verið kölluð til þjónustu og biðja þess að sérhverju
okkar verði gefinn styrkur til að inna af hendi það starf
sem okkur hefur verið úthlutað.
Gæti nokkurn tíma gefist betra tækifæri fyrir spíritista
til þess að sýna skilning sinn á málefnum andans en í
því ástandi sem ríkir í heiminum í dag ?
Þeim sem aðeins lifa á yfirborði hlutanna getur ekki
verið ætlað að nota annað en efnislegar aðferðir til þess
að fást við alþjóðlega spennu.
Spíritistar vita að allir menn eru bræður og börn sama
kærleiksríka andans, að allar mannlegar verur eru
sérstakar sálir sem berjast við að tjá þann guðdóm sem
hulinn er innra með sérhverri þeirra.
Þeir vita að besta þjónusta sem nokkur getur veitt
30