Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Page 42

Morgunn - 01.12.1991, Page 42
Tjald tímans MORGUNN úr bæði nútíð og fortíð. Einnig var það einkennilegt að þrátt fyrir að þorpið virtist vera fullt af fólki og það væri svo nálægt okkur sem raun bar vitni, þá heyrðust samt engin önnur hljóð en þau frá sjónum og máv- unum. Ég veit ekki hve lengi við stóðum þarna stjörf yfir því að vera „draugar" á okkar eigin tíma. Ein mann- eskja eða tvær fóru framhjá okkur í seilingarfjarlægð en virtust samt ekki hafa hugmynd um nærveru okkar. En svo smám saman, tóku hin hversdagslegu hljóð eins og hróp, fjarlægur umferðarniður, flugvélahljóð, o.sv.frv. að berast eyrum okkar og þegar við loks gengum í gegnum þorpið þá virtist allt orðið eðlilegt aftur. Það var ekki fyrr en seinna að við hjónin bárum saman reynslu okkar og gerðum okkur grein fyrir að við hefðum bæði séð það sama og heyrt sömu hljóðin. Hvorugt okkar hafði hjndið til ótta við það sem gerst hafði, heldur vorum við einungis undrandi. Við eyddum næstu þrem dögum í það að reyna að finna þennan sérstaka klettastíg okkar án árangurs þá og aldrei síðan hefur okkur tekist það. Við höfum oft rætt þessa reynslu okkar í sumarfríinu og velt henni fyrir okkur, t.d. því hvað hefði skeð ef við hefðum reynt að ganga í gegnum einhverja af dyrunum á klettinum. Vorum við komin inn í annað tímaskeið ? Hrökk „hinn staöurinn” um stundarsakir inn í okkar eigin tíma ? Við munum aldrei komast að því þó ég leyfi mér þau forréttindi að ætla að af einhverjum ástæðum hafi okkur verið leyft að gægjast rétt sem snöggvast undir þetta einkennilega tjald sem hylur tímann. Injð.: C.fí. 40

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.