Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009
„ÉG ER alveg í
sjöunda himni
með þetta,“ sagði
Björn Þorfinns-
son, forseti Skák-
sambands Ís-
lands og forseti
Skákakademíu
Reykjavíkur,
skömmu eftir að
hann varð alþjóð-
legur meistari í skák með því að
sigra í B-flokki á Reggia Emila-
mótinu á Ítalíu. Björn tryggði sér
sigur á mótinu með því að leggja
Axel Rombaldoni í sjöundu umferð.
Hann hefur sex vinninga. Tvær um-
ferðir eru enn eftir af mótinu en þó
að hann tapaði þeim báðum stæði
hann samt uppi sem sigurvegari.
„Ég ætla mér ekkert að hætta núna
heldur halda einbeitingu út mótið.
Ég lít svo á að þetta sé hápunkt-
urinn á mínum skákferli. Þetta er
sterkt mót og í gegnum árin hafa
margir góðir skákmenn teflt á því.“
Varð alþjóð-
legur meistari
Björn Þorfinnsson
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„KÍNVERJAR
hafa engin dýra-
verndarlög. Það
er til vísir að lög-
um sem vernda
villt dýr í útrým-
ingarhættu en
engin lög um
meðferð dýra
sem notuð eru til
iðnaðar,“ segir
Hanna María
Arnórsdóttir dýralæknir, sem gagn-
rýnir íslenska fyrirtækið Cintamani
fyrir að nota feldi framleidda í Kína
í útivistarfatnað.
Vitað sé að dýr sem alin eru til
iðnaðar í Kína hljóti mjög slæma
meðferð og að hending ráði hvort
dýrin séu drepin áður en skinnið er
flegið af skrokknum.
Karl Karlsson, sérfræðingur hjá
Umhverfisstofnun, segir að við inn-
flutning skinna til Íslands sé hugað
að smitsjúkdómum auk þess sem
skinnin megi ekki vera af dýrateg-
undum í útrýmingarhættu. Ekki séu
í gildi reglur sem takmarki innflutn-
ing á skinni út frá dýravernd-
unarsjónarmiðum.
Vel fylgst með verksmiðjunum
Hanna María segir að svarið sem
Cintamani hafi gefið sér hafi ekki
slegið á gagnrýni sína í garð fyr-
irtækisins. Í svarinu kemur fram að
fyrirtækið hafi fylgst með því frá
upphafi að farið sé eftir öllum
reglum við meðferð á dýrum í verk-
smiðjunum auk þess sem heilbrigð-
isyfirvöld í Kína fylgist vel með og
gefi þeim verksmiðjum sem fylgi
settum reglum skírteini ef allt sé
með felldu.
„Þetta svar hefði nægt mér sem
leikmanni en þar sem ég er dýra-
læknir veit ég að ill meðferð Kín-
verja á dýrum hefur mikið verið
rædd hjá alþjóðlegum dýralækna-
samtökum,“ segir Hanna.
Á ráðstefnu smádýralækna sem
hún sótti nýlega í Bandaríkjunum
hafi m.a. ítrekað komið fram að slík-
ir pappírar, sem eigi að staðfesta
viðunandi meðferð dýra, séu mark-
lausir og oft órekjanlegir.
„Það er réttur neytenda að vita
frá hvaða löndum feldir sem þessir
koma. Það voru ýmsar upplýsingar
á úlpunni, m.a. hvaða efni sé í henni
og að hún sé framleidd í Kína en
hvergi var minnst á loðkragann,“
segir Hanna. „Á meðan Cintamani
og önnur evrópsk fyrirtæki kaupa
skinn af Kínverjum og halda uppi
eftirspurninni gerist fátt í dýra-
verndarmálum í Kína,“ segir Hanna.
Engin dýraverndarlög í Kína
Íslenskur dýralæknir er gagnrýninn á
Cintamani fyrir viðskipti við Kína
Marðarhundar Hanna segir tegundina ekki aðalmálið heldur meðferð dýranna.
Hanna María
Arnórsdóttir
ALÞINGI hefur óskað eftir því að
lögreglan rannsaki atvik sem varð
þegar 30 mótmælendur ruddust inn
í Alþingishúsið 8. desember sl. Sjö
mótmælendur voru þá handteknir.
„Ég skrifaði lögreglunni fyrir
hönd skrifstofu Alþingis og óskaði
eftir rannsókn á þessum atburði og
því hvort hér hefði verið um brot á
lögum að ræða,“ sagði Helgi Bern-
ódusson, skrifstofustjóri Alþingis.
Bréfið sendi hann fyrir jól. „Starfs-
fólk Alþingis varð fyrir hvílíku
áfalli og meiðslum að ég tel það
skyldu mína að óska eftir rannsókn
á málinu. Einnig að þeir verði látnir
sæta ábyrgð sem ábyrgð bera.“
Helgi sagði að ef lögreglan kæm-
ist að þeirri niðurstöðu að lög hefðu
verið brotin myndi hún væntanlega
taka ákvörðun um framhald máls-
ins. Alþingi á myndupptökur af at-
burðinum og hefur lögreglan feng-
ið afrit af þeim til rannsóknar.
Helgi sagði að myndirnar yrðu ekki
látnar öðrum í té en lögreglunni,
a.m.k. ekki að sinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu hefur ekki verið
kært vegna mótmælenda sem brutu
þar rúður í útidyrum og anddyri 18.
desember sl. Ekki hefur heldur ver-
ið tekin afstaða til þess hvort atvik-
ið verður kært. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæsla Öryggisgæsla var hert á Al-
þingi eftir aðgerðir mótmælenda.
Alþingi vill
rannsókn
UNGUR maður vopnaður byssu sem leitað hafði
verið í allt gærkvöld fannst laust fyrir miðnætti.
Þá bárust vísbendingar sem leiddu til handtöku
mannsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
fannst maðurinn í Breiðholti. Fjölmennt lið lög-
reglu hafði þá leitaði mannsins í Bústaða- og Smá-
íbúðahverfi og víðar í austurborg í Reykjavík frá
því að tilkynning um málið barst kl. 18.54. Þá lék
grunur á að maðurinn væri vopnaður hlaðinni
byssu. Lögreglan var með mikinn viðbúnað og sér-
sveitin m.a. kölluð út. Samkvæmt upplýsingum frá
fréttamanni Morgunblaðsins á staðnum klæddist
lögreglan skotheldum vestum og hjálmum. Götum
í hverfinu var lokað tímabundið og sjúkraflutn-
ingamenn á tveimur sjúkrabifreiðum voru til stað-
ar. Lögreglan taldi að almennum borgurum staf-
aði ekki hætta af manninum meðan þeir héldu sig
innandyra.
Mikill viðbúnaður lögreglu í austurborg Reykjavíkur í gærkvöldi
Morgunblaðið/Júlíus
Byssumaðurinn fannst undir miðnætti
Um áramótin tóku gildi tvær reglu-
gerðir um komugjöld í heilbrigðis-
þjónustunni. Gildir önnur fyrir
sjúkratryggða en hin fyrir þá sem eru
ósjúkratryggðir. Breytingar til
hækkunar stafa fyrst og fremst af
verðlagsbreytingum, að sögn heil-
brigðisráðuneytisins.
Komugjöld fyrir sjúkratryggða ut-
an dagvinnutíma á heilsugæslustöð
eða til heimilislæknis hækka nú úr
2.200 kr. í 2.600 kr. Gjöld fyrir ellilíf-
eyrisþega 70 ára og eldri og örorkulíf-
eyrisþega hækka um 200 kr. og verða
1.300 kr.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
KOMUGJALD hefur nú verið tekið
upp vegna innlagnar á sjúkrahús. Það
verður þó ekki innheimt nema einu
sinni í hverjum almanaksmánuði.
Sjúkratryggðir greiða almennt 6.000
kr. innlagnargjald en elli- og örorku-
lífeyrisþegar helmingi minna.
Engar breytingar voru gerðar á
komugjöldum í heilsugæslunni á dag-
vinnutíma nú um áramótin þegar
gjöld fyrir ýmsa aðra heilbrigðisþjón-
ustu hækkuðu.
Gjöld vegna vitjana lækna hækka
einnig. Fyrir vitjun læknis á dag-
vinnutíma greiða sjúkratryggðir nú
almennt 2.800 kr. í stað 2.400 kr. áður
en t.d. ellilífeyrisþegar greiða helm-
ingi minna. Læknisvitjun utan dag-
vinnutíma kostar almennt 3.800 kr.
fyrir sjúkratryggða en var 3.300 kr.
Gjöld fyrir ýmsar bólusetningar á
heilsugæslustöð hækka. T.d. fer lifr-
arbólgubólusetning A og B úr 5.200
kr í 7.900 kr. Getnaðarvarnir hækka
einnig og kostar lykkja nú 7.200 kr. í
stað 2.250 kr. og hormónalykkja kost-
ar nú 27.000 kr en kostaði 15.100 kr.
Greiða þarf komugjald
vegna innlagnar á sjúkrahús
Engar breytingar á komugjöldum í heilsugæslunni á dagvinnutíma
Í HNOTSKURN
»Sjúkratryggðir greiða al-mennt 6.000 kr. vegna inn-
lagnar á sjúkrahús nema fæð-
ingardeild og ekki oftar en
einu sinni í mánuði.
» Ellilífeyrisþegar 70 ára ogeldri, örorkulífeyrisþegar,
ellilífeyrisþegar 67-70 ára á
ellilífeyri borga 3.000 kr.
komugjald á sjúkrahús.
VEGNA hörmungarástandsins á
Gaza hefur utanríkisráðherra, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, ákveðið
að veita rúmar 12 milljónir ís-
lenskra króna til mannúðar-
aðstoðar á svæðinu, að því er segir í
tilkynningu frá utanríkisráðuneyt-
inu.
Aðstoðin er veitt með milligöngu
Rauða kross Íslands og Palest-
ínuflóttamannaaðstoðar Samein-
uðu þjóðanna (UNRWA).
12 milljónir
til Palestínu