Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009
Í HNOTSKURN
» Fyrrverandi forstjóri Talssamdi í desember við Sím-
ann um aðgang Tals að dreifi-
kerfi Símans.
» Meirihluti stjórnar Talsrifti samningnum og rak
forstjórann vegna trún-
aðarbrests, að sögn Þórdísar
Siguðardóttur, stjórnarfor-
manns Tals.
» Tal varð til við samrunaHive og Sko og gerði þá
samning við Vodafone um
þjónustu til 5 ára.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
SÍMINN lítur svo á að samningur
sem fyrirtækið gerði í desember síð-
astliðnum við þáverandi forstjóra
Tals, Hermann Jónsson, sé í gildi, að
sögn Sævars Freys Þráinssonar, for-
stjóra Símans.
„Við teljum að riftun á samningn-
um standist ekki,“ segir Sævar. „En
við viljum hins vegar tryggja að við-
skiptavinir Tals verði ekki fyrir
barðinu á þeim ágreiningi sem verið
hefur í hluthafahópi Tals. Þess vegna
lokuðum við ekki á viðskiptavini fyr-
irtækisins um áramótin, eins og við
hefðum getað gert, en þá væru þeir í
ákveðnum tilvikum utan gsm-sam-
bands þar sem þjónustusvæði Voda-
fone nær til um 70-75% landsins.“
Sagt upp vegna trúnaðarbrests
Ragnhildur Ágústsdóttir, sem tók
við starfi forstjóra Tals í lok desem-
ber í kjölfar þess að fyrrverandi for-
stjóra, Hermanni Jónssyni, var sagt
upp, segist hafa rætt við forstjóra
Símans um þessi mál og þau verði út-
kljáð á næstu dögum. Hún segir
hugsanlegt að Tal muni semja aftur
við Símann. Það sé þó ekki endilega
eina mögulega niðurstaðan. „Hug-
myndir voru komnar fram í samræð-
um við Póst- og fjarskiptastofnun
um lausnir. Það þarf hins vegar að
klára það mál og það verður gert.“
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnar-
formaður Tals, segir að fyrrverandi
forstjóra Tals hafi verið sagt upp
vegna trúnaðarbrests. Hann hafi
gert samning við Símann, án sam-
ráðs við stjórn Tals, þó svo að í gildi
sé fimm ára samningur við Vodafone
um þjónustu, þar sem meðal annars
sé kveðið á um að fyrirtækið geti
ekki samið við annað símafyrirtæki á
meðan samningurinn sé í gildi.
Í desember gerði Tal samning við
Símann um að frá og með áramótum
myndi Tal verða á dreifikerfi Sím-
ans. Tal hefur til þessa verið á dreifi-
kerfi Vodafone. Þar sem dreifikerfi
Vodafone sleppir hefur Tal færst
sjálfkrafa yfir á dreifikerfi Símans.
Síminn telur samn-
ing við Tal í gildi
Hefðu getað lokað á viðskiptavini Tals en gerðu það ekki
Morgunblaðið/Golli
Samningur Tal er með fimm ára samning við Vodafone um þjónustu.
'()*
'()*!
!"
"#
'()*"
#*+)
$%!#
&
"!
"$
,-*.
/
0
%&!
$%&
"
&"!
1234
,5)
%!
%'&
"
&"
'()*$ '()*% $%
!!
"
"
&'()
*+
,-.
567 *86
+ 9:*%:&*86
;7
!:*%:&*86
( :*86
3: & &:$+&:< :*1 :6=*86
>&:*86
/
+01&
5 !7*5!:- ?
5 !7*@:& *@A1
4!*+ !
1B:? *+
6*4! ! 6C *D
E &F!*+ *86
/G8: !*86
3@H'/
* %2'13
#&:?*5& !& *#
+*%:
!*86
!< *86
4 5 "
"!&
$&"
''"#
$"#'
#"
$'"
!"
$"!
$$"
$"&
(
$"
$"
$&!!"
$"
!"
I!<!!
!
2!=<* **
"
****E &********3
$
$
$
$
$
$
$
$
$
J
J
J
J
J J
$
$
$
$
$
J
J
J J
J
$
$
1 9
!
!<!
$
$
$
$
$
$
$
, !
!<:<
$
52
52
52
ICELANDAIR
varð fyrir valinu
til að sjá um flug
með danska rík-
isstarfsmenn á
milli Kaup-
mannahafnar og
New York. Fé-
lagið bauð hag-
stæðasta verðið á
þessari flugleið í
útboði á vegum
danska fjármálaráðuneytisins.
Samtals voru boðnar út 22 flug-
leiðir í útboðinu og varð norræna
flugfélagið SAS og samstarfsaðilar
þess fyrir valinu til að sjá um flugið
á 12 þessara flugleiða. Segir í frétt
á danska flugfréttavefnum take-
off.dk, að það komi ekki á óvart að
SAS og samstarfsaðilar hafi reynst
bjóða hagstæðasta verðið á meiri-
hluta flugleiðanna. Sú staðreynd að
Icelandair hafi hins vegar slegið
SAS við á flugleiðinni á milli Kaup-
mannahafnar og New York komi
þó verulega á óvart, en fram að
þessu hafi SAS alla jafna séð um
nær allt flug fyrir danska ríkið. Þá
segir í fréttinni að það veki einnig
athygli að Finnair bauð besta verð-
ið á flugleiðinni á milli Kaup-
mannahafnar og Bangkok.
Alls var átta flugfélögum út-
hlutað flugleiðum fyrir danska rík-
ið í kjölfar útboðs fjármálaráðu-
neytisins, Auk Icelandair, SAS og
Finnair voru það Estonian Air, air-
Baltic, Air Berlin, Brussel Airlines
og Air France/KLM.
gretar@mbl.is
Flug Danir velja
Icelandair.
Icelandair
hefur bet-
ur en SAS
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÓHÆTT er að segja að hlutabréfa-
markaðir hafi byrjað nýja árið á
bjartsýnni nótum en margir bjugg-
ust við miðað við horfur í efnahags-
málum í heiminum.
Í frétt Wall Street Journal eru lík-
ur leiddar að því að fjárfestar séu að
endurskipuleggja eignasöfn sín á
nýju ári og hafi því keypt meira í gær
en þeir gerðu fyrir áramót. Þá séu
vextir svo lágir að erfitt sé fyrir fjár-
festa að ávaxta fé sitt á öðrum mörk-
uðum en hlutabréfamörkuðum.
Breska FTSE vísitalan hækkaði
um 2,9%, þýska DAX um 3,4% og
franska CAC vísitalan um 4,1%. At-
hyglisvert er að gengi hlutabréfa
banka og fjármálafyrirtækja hækk-
aði einna mest í gær, en belgíski
Dexia bankinn hækkaði um 10,6% og
svissnesku bankarnir UBS og Credit
Suisse hækkuðu um 2-3%.
Hækkanir á Norðurlöndum
Að íslensku úrvalsvísitölunni und-
anskilinni hækkuðu norrænar hluta-
bréfavísitölur umtalsvert í gær.
Samnorræna OMX vísitalan hækk-
aði um 4,6%, sænska vísitalan um
4,8% og sú danska um 5%. Þá hækk-
aði norska OBX vísitalan um 6,3%.
Félög tengd flutningum og orku-
vinnslu hækkuðu mest í Noregi.
Hrávörur hækkuðu sömuleiðis í
verði, en heimsmarkaðsverð á Brent
norðursjávarolíu hækkaði um ein
14% og stóð í lok dags í 47,6 dölum á
fatið. Er hækkunin annars vegar
rakin til átakanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs og deilu Rússa og Úkra-
ínumanna um gas. Hins vegar telja
sumir að botninum hafi verið náð í
samdrætti á eftirspurn eftir olíu og
að hún muni aukast eitthvað á næst-
unni.
Verð á náttúrugasi hækkaði til
samræmis við olíuverð, en verð á
gulli lækkaði eilítið og stendur nú í
877 dölum únsan. Gengi bandaríkja-
dals styrktist gagnvart evru og
pundi, en pundið hélt áfram að veikj-
ast.
Markaðir hefja árið með hækkunum
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði
um 14% og nálgast 50 dali á fatið
Reuters
Þreyttur Miðlari hvílir sig eftir
strangan dag í kauphöllinni.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
SLÓVAKÍA tók upp evru sem gjald-
miðil um áramótin. Slóvakía varð þar
með sextánda Evrópulandið til að
taka upp evru. Samkvæmt erlendum
vefmiðlum fögnuðu um hundrað þús-
und manns á götum úti í Bratislava,
höfuðborg Slóvakíu, á nýársnótt
þegar nýtt ár gekk í garð með nýjum
gjaldmiðli.
Evrópusambandið samþykkti í
júlímánuði síðastliðnum með form-
legum hætti að bjóða Slóvakíu inn-
göngu í myntbandalag Evrópu.
Um þessar mundir eru 10 ár frá
því evran var fyrst kynnt til sögunn-
ar en fyrstu evru-peningarnir kom-
ust í umferð fyrir réttum sjö árum,
eða í janúar 2002. Löndin sem hafa
tekið upp evru sem gjaldmiðil eru,
Austurríki, Belgía, Finnland, Frakk-
land, Grikkland, Holland, Írland,
Ítalía, Kýpur, Lúxemborg, Malta,
Portúgal, Slóvenía, Spánn, Þýska-
land og nú síðast Slóvakía.
BBC-fréttastofan greindi frá því í
fyrradag, að um 71% Breta eru and-
víg því að taka upp evru í staðinn fyr-
ir pundið, samkvæmt könnun frétta-
stofunnar, sem náði til um eitt
þúsund manns. Um 23% voru hlynnt
því að skipta um gjaldmiðil.
Þess má geta að á sama tíma og
Slóvakar tóku upp evru tóku Tékkar
í fyrsta skipti við formennsku í Evr-
ópusambandinu, en 15 ár eru nú síð-
an ríkin tvö voru aðskilin.
Slóvakía sextánda landið
sem tekur upp evru
Yfir 70% Breta eru andvíg því að skipta á pundi og evru
● EFNAHAGSKREPPAN á Íslandi hefur
kostað breska athafnamanninn um 125
milljarða króna. Í grein breska blaðsins
Times segir að Kaupþing hafi lánað
Tchenguiz háar fjárhæðir, m.a. til að
fjármagna kaup hans í kráarfyrirtæk-
inu Mitchells & Butler og verslanakeðj-
unni Sainsbury’s. Kaupin gerði
Tchenguiz um mitt ár 2007, rétt áður
en fjármálabólan sprakk með eft-
irminnilegum hætti. Rúmu ári síðar, í
október 2008, krafði Kaupþing
Tchenguiz um endurgreiðslu lánanna
og þurfti hann þá að selja hluti sína í
áðurnefndum fyrirtækjum tveimur, með
umtalsverðu tapi. bjarni@mbl.is
Tchenguiz tapaði
● TALIÐ er að allt að fjögur hundruð
starfsmenn Bakkavarar í Bretlandi geti
misst vinnuna í þremur verksmiðjum
félagsins í Lincolnskíri. Kemur fram í
frétt BBC að Bakkavör sé að end-
urskipuleggja rekstur fyrirtækisins en
alls starfa um tvö þúsund manns hjá
Bakkavör í verksmiðjunum þremur.
Haft er eftir talsmanni Bakkavarar að
nú ríki viðsjárverðir tímar í matvæla-
vinnslu og að fyrirtækið fylgist grannt
með gangi mála á tímum versnandi
efnahagsástands. guna@mbl.is
Fimm hundruð störf í
hættu hjá Bakkavör
● VELTA á fasteignamarkaði á höf-
uðborgarsvæðinu 26. desember 2008
til og með 1. janúar 2009 nam 272
milljónum króna, en alls var 13 kaup-
samningum þinglýst á tímabilinu. Þar
af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli,
2 samningar um sérbýli og 3 samningar
um annars konar eignir en íbúðar-
húsnæði. Á sama tíma í fyrra var 75
samningum þinglýst og var veltan rúm-
ur 2,1 milljarður króna.
bjarni@mbl.is
Töluverður samdráttur
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á
Íslandi veiktist um 0,04% í viðskiptum
gærdagsins, en um er að ræða nýja
hlutabréfavísitölu. Gamla vísitalan,
OMXI15, var í 352,16 stigum við lokun
markaða 30. desember síðastliðinn.
Um áramótin tók hins vegar ný vísitala,
OMXI6 við og var upphafsgildi hennar
1.000 stig. Eftir viðskipti gærdagsins
er þessi vísitala komin í 999,59 stig.
Bréf Icelandair hækkuðu um 1,13%,
Straums um 0,54% og Bakkavarar um
0,4%, en Össur lækkaði um 1,20%.
bjarni@mbl.is
Ný vísitala lækkar
ÞETTA HELST…