Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 27

Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 27
Daglegt líf 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Útsalan er hafin allar vörur með 40% afslætti Laugaveg 53 • sími 552 3737 Opið í dag laugardag 10-17 Árið er liðið í aldanna skaut. Árið verður lengi í minnum haft vegna þeirrar miklu fjármálakreppu, sem reið yfir þjóðina og reyndar alla heimsbyggðina. Suðurnesjamenn finna nú fyrir ástandinu, hér er mesta atvinnuleysi á landinu og því miður ekki bjart framundan. byggingariðnaðurinn virðist vera í mestri lægð um þessar mundir, en hvað verður á komandi ári á tím- inn eftir að leiða í ljós.    Lögregluvarðstofan er tilbúin. Það hefur gengið á ýmsu í lögreglu- málum Suðurnesjamanna á síðustu árum. Fyrst voru lögregluemb- ættin sameinuð sem átti að vera til góðs og leysa allan vanda, íbúar jaðarbyggðanna sem og viðkom- andi bæjarstjórnir gerðu at- hugasemdir við löggæslu í sínum byggðarlögum, sem síst batnaði við sameininguna, dómsmála- yfirvöld lofuðu öllu fögru um bætta löggæslu. Sandgerðisbær lét innrétta lögregluvarðstofu í Slysa- varnahúsinu, sem nú hefur staðið ónotuð í nokkra mánuði og ekki er fyrirsjáanlegt hvenær lögreglan fer að nota þessa glæsilegu að- stöðu. Það er vonandi að nýr lög- reglustjóri á Suðurnesjum taki á þessu máli.    Ný heilsugæsla. Hún kemur víða við fjármálakreppan og setur eitt og annað úr skorðum. Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja hefur ekki farið varhluta af því. Síðastliðin 10 ár hefur heilsugæslan fyrir Sand- gerði verið í leiguhúsnæði í Safn- aðarheimilinu þar átti hún að vera til bráðabirgða þar til varanlegt húsnæði yrði tilbúið í Vörðunni sem er Ráðhús Sandgerðinga. Á síðasta ári var lokið við að innrétta glæsilega aðstöðu í Vörðunni fyrir heilsugæslu sem því miður hefur staðið ónotuð vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum. Það er vonandi að á nýju ári verði starfsemin flutt í hið nýja húsnæði enda fer Hvals- nessöfnuð að vanta það húsnæði sem nú er leigt.    Menningarráð Suðurnesja úthlut- aði fyrir jólin 23 milljónum króna til menningamála á Suðurnesjum. 49 aðilar hlutu styrk sem er ætl- aður til hinna ýmsu verkefna á nýju ári. Styrkirnir dreifðust milli byggðarlaganna á Suðurnesjum og hér í Sandgerði hlutu níu aðilar styrk sem væntanlega styður við annars blómlegt menningarstarf í bæjarfélaginu.    Barnakór Grunnskóla Sandgerðis sem stofnaður var á síðasta ári hefur aukið söngáhuga barna hér í Sandgerði. Kórinn hefur oft komið fram við athafnir víða um bæj- arfélagið, til að mynda var farið í allar stofnanir bæjarsins og sungið fyrir starfsfólk. Stjórnendur barnakórsins er Sigurbjörg Hjálmarsdóttir og Ína Dóra Hjálmarsdóttir.    Jólahús Sandgerðis 2008 varð að þessu sinni Uppsalavegur 7. Þar búa hjónin Hjörtur Jóhannsson skipstjóri og Ester Grétarsdóttir rannsóknarkona. Hús og garður eru smekklega skreytt með hvítum ljósum auk fjölda jólasveina og til- heyrandi jólaljósadýra. Miðtún var útnefnd jólagata Sandgerðis 2008 en þar hafa íbúar verið mjög dug- legir við að setja upp fallegar jóla- ljósaskreytingar, reyndar er allur bærinn mikið skreyttur og ekki að sjá að íbúar hafi sett upp ein- hverjar kreppuskreytingar.    Ný björgunarstöð Sigurvonar við Sandgerðishöfn var nú um áramót- in tekin að hluta í notkun. Liðið ár var merkilegt í sögu Sigurvonar sem fagnaði áttatíu ára afmæli og komu fullkomins hraðbjörg- unarbáts ásamt glæsilegri björg- unarstöð við höfnina. Stöðin er ekki fullbúin en verklok eru í byrj- un þessa árs. SANDGERÐI Reynir Sveinsson fréttaritari Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Uppsalavegur 7 Húsið var valið Jólahús Sandgerðis 2008. Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd yrkir um áramót: Þjóðin mín – í þraut og kvíða þarftu kannski margt að líða. Vittu að eftir veisluhöldin vilja koma syndagjöldin! Lífið oft þó liggi um hæðir, lægðir stórar einnig þræðir. Spenntir bogar bresta stundum, blæðir þá úr vöktum undum! Þú varst læst í fölsku fari, farðu að verða íslenskari. Kynfylgjan sem kann þar sporin krýni líf þitt endurborin! Rístu upp með ráði nýju, rektu frá þér daun og spýju. Dragðu að húni hreinsað merkið, hugsaðu þar um skylduverkið! Benedikt Blöndal er 15 ára og er einn af mörgu ungu hæfileikafólki sem á ljóð í bókinni Ljóð úr Aust- urbænum: Bruynzeel er blýantur betri en nokkur annar, skrifar ljóð og skáldsögur, skínandi orðin kannar. HB er hörmulegur, hræðileg sjón að sjá, blýantur sem brýtur blöð er hann fer á stjá. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Áramót og blýantar Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SPURNINGASPILIÐ Ísland sem kom út í haust og hefur töluvert verið auglýst nú fyrir jólin er hið ágætasta spil þótt það sé ekki með öllu gallalaust. Óhjákvæmilega hlýtur mat á kostum þess að byggja á sam- anburði við Trivial Pursuit- spurningaspilið sem hefur ráðið lög- um og lofum á þessum markaði. Helsti gallinn við Trivial Pursuit, a.m.k. margar útgáfur þess, er hversu langan tíma ein umferð get- ur tekið. Ein umferð í spurninga- spilinu Íslandi virðist taka mun styttri tíma. Það er ótvíræður kost- ur því ef þátttakendur hafa ekki fengið nóg eftir eina umferð má alltaf fara aðra. Hinn tiltölulega stutti spilunartími Íslands ræðst af spilareglunum en ekki af því að spurningarnar séu léttari en gerist og gengur. Eins og nafnið gefur til kynna snúast spurningarnar í spilinu Ís- landi allar á einn eða annan hátt um Ísland. Flokkarnir eru kunnuglegir: Saga, menning, náttúra, landafræði, íþróttir og að lokum ýmislegt. Það er góð tilbreyting og holl fræðsla sem felst í því að spreyta sig á al- íslenskum spurningum, s.s. hvernig keppnisbúningar Fjölnis eru yf- irleitt á litinn, hvað þrælar Ingólfs Arnarsonar hétu og hver var helsti fjandmaður Hrafns Önundarsonar, svo nokkur dæmi séu nefnd. Þegar spilið var tekið til kost- anna í sumarbústaðaferð fjögurra reyndra spilamanna fyrir skemmstu fékk spilið meðaleinkunnina upp á rétt tæplega fjórar stjörnur af fimm sem hlýtur að teljast ágæt nið- urstaða. Tímasetningar vantar Eins og fyrr segir er spilið ekki gallalaust. Það er nokkuð bagalegt að engin hulstur eru utan um spurningaspjöldin (samtals 400 stykki) sem eykur hættuna á að spjöldin fari á flakk þegar síst skyldi. Einnig er nokkuð um rit- og stafsetningarvillur í spurningunum sem ber vitni um fljótfærni við gerð spilsins, líkt og sá galli sem er hvimleiðastur en hann er sá að í sumum tilfellum er ekki spurt um ártöl eða tímasetningar þegar það sannarlega á við. Svo dæmi sé tekið er ekki spurt um ártal þegar spurt er hver sé 1. þingmaður Norðaust- urkjördæmis og ekki heldur í spurningunni um hver sé formaður borgarráðs Reykjavíkur. Þó hljóta allir að sjá að í slíkum spurningum verður tímasetningin að fylgja með. Spjaldið sem spilað er á er ágætt og kunnuglegt. Það er þó óheppi- legt í spurningaspili sem vill láta taka sig alvarlega að þar skuli Hvannadalshnúkur vera sagður 2,119 metrar á hæð en eins og kunnugt er var hann endurmældur fyrir skemmstu og lækkaður. Eða hvað, er kannski búið að hætta við það? Skemmtilegt spil en þó ekki gallalaust Morgunblaðið/Kristinn Um jólin leggjast margir yfir ýmis spurningaspil ÞAU ERU ófá nýársloforðin þar sem því er heitið að taka nú mataræðið í gegn og fækka aukakílóunum. Megrun á þessum tíma árs kann hins vegar að vera varhugaverð hugmynd þar sem að hún dregur úr hæfni lík- amans til að sigrast á flensuveir- unni. Þetta er niðurstaða rann- sóknar bandarískra vísinda- manna við Michigan State Uni- versity, en mýs sem þeir settu í megrun áttu erfiðara með að sigrast á sýkingum en mýs sem hafðar voru á hefðbundnu mat- aræði. Niðurstöður rannsókn- arinnar voru birtar í Journal of Nutrition og sýndu að þrátt fyrir að mýsnar fengju nóg af vítam- ínum og steinefnum dró engu að síður úr hæfni líkama þeirra til að sigrast á sýkingunni. Mýsnar, sem fengu um 40% af mat- arskammti samanburðarhópsins voru lengur að jafna sig á veik- indunum og voru auk þess lík- legri til að deyja af sýkingunni. Prófessor Elizabeth Gardner, sem fór fyrir rannsókninni, segir að jafnvel þeir sem fengið hafa flensusprautu ættu að forðast megrunarkúra þar til vora tek- ur. Ekki ætti hins vegar að nota rannsóknina sem afsökun fyrir að sleppa því að taka mataræðið í gegn – heldur einfaldlega velja þann tíma ársins þegar hlýrra er í veðri. Megrunin slæm fyrir flensuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.