Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 42

Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 42
42 Brids MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 NÚ er að sjá hvernig gekk að eiga við jólaþrautirnar sex, þar sem les- andinn var í hásæti sagnhafa í suð- ur. Verkefnin í fyrstu fimm þraut- unum voru gamalkunn – að finna bestu leið „með tvær hendur tóm- ar“, eins og ávallt við borðið, þar sem hendur mótherjanna sjást auð- vitað ekki. En í síðustu þrautinni voru öll spilin til sýnis og beðið um rökstuðning fyrir frumlegri leið. En allt í réttri röð: (1) Tímasetning Norður ♠76 ♥ÁG4 ♦7654 ♣ÁG52 Vestur Austur ♠DG1053 ♠984 ♥K98 ♥7653 ♦D ♦KG109 ♣10876 ♣D9 Suður ♠ÁK2 ♥D102 ♦Á832 ♣K43 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grandi Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: spaðadrottning. Þetta spil snýst um tímasetn- ingu. Ekki sakar að dúkka fyrsta slaginn, en aðalmálið er að svína í hjarta ÁÐUR en farið er í laufið. Ef svíningin misheppnast þarf lauf- ið að skila fjórum slögum, drottn- ingin verður einfaldlega að vera þriðju rétt (18% líkur). En í þessu tilfelli gengur hjartasvíningin og þá þarf laufið aðeins að gefa þrjá slagi. Og það breytir íferðinni. Best er að taka á tvo efstu fyrst og spila svo að gosanum hafi drottningin ekki skilað sér. Þannig er liturinn upp á þrjá slagi þegar vestur á drottninguna, eða austur drottn- ingu þriðju, staka eða AÐRA, eins og hér (samtals 77% líkur). (2) Ágiskun forðað Norður ♠ÁKD ♥K3 ♦D76542 ♣85 Vestur Austur ♠G1097 ♠8643 ♥D2 ♥87654 ♦K1098 ♦-- ♣973 ♣10642 Suður ♠52 ♥ÁG109 ♦ÁG3 ♣ÁKDG Vestur Norður Austur Suður – – – 2 grönd Pass 6 grönd Pass Pass Pass Útspil: spaðagosi. Norður er latur að reyna ekki við sjö, en eins og spilið liggur er sagnhafi fullhertur með að tryggja sér tólf slagi. Hann spilar tígli í öðrum slag og austur hendir hjarta. Það lítur vel út að setja gosann og „halda öllu opnu“, en það er þó gildran sem ber að varast. Austur drepur og hvernig sem allt veltist í framhaldinu verður sagnhafi ein- faldlega að finna drottninguna í hjarta. Sem er ólíklegt að takist því eðlilegt er að staðsetja drottn- inguna með lengdinni í austur. Það má komast hjá þessari ágiskun með því að taka á tígulás og spila litlum tígli að drottningunni. Vest- ur verður að dúkka og þá er óhætt að svína hjarta til austurs, fara heim á lauf og láta hjartagosa rúlla yfir. Austur má eiga drottninguna því tígulkóngur vesturs verður aldrei slagur. (3) Litaríferð Norður ♠G93 ♥G9 ♦D963 ♣ÁK82 Vestur Austur ♠D5 ♠Á8762 ♥D10842 ♥K753 ♦104 ♦872 ♣D965 ♣7 Suður ♠K104 ♥Á6 ♦ÁKG5 ♣G1043 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: hjartafjarki. Það er sjálfsagt að reyna hjarta- gosann í blindum, en austur á kónginn. Sem þýðir bara eitt: laufið verður að vera upp á fjóra slagi svo að hægt sé að taka fyrstu níu. En hvernig á að spila laufinu? Það er spurningin og svarið blasir alls ekki við. Freistandi hugmynd er að taka fyrst á hámann í borði til að verj- ast stakri drottningu í bakhöndinni. En þá fást aldrei fjórir slagir á lit- inn þegar vestur á D9xx. Í þeirri legu verður að hleypa gosanum strax. Sem er reyndar tæknilega rétta íferðin, því líkur á D9xx í vestur eru þrefalt meiri en líkur á stakri drottningu í austur. Þetta má skýra þannig: Það er bara ein staða sem drottningin er stök, en þrjár með D9xx: (a) D976, (b) D975 og (c) D965. (Blönk nía í bakhöndinni skiptir ekki máli, því þá spila litnum á hvorn veginn sem er.) (4) Talning Norður ♠8742 ♥Á1065 ♦KD9 ♣K3 Vestur Austur ♠-- ♠KG95 ♥G843 ♥KD92 ♦ÁG108643 ♦2 ♣95 ♣Á642 Suður ♠ÁD1063 ♥7 ♦75 ♣DG1087 Vestur Norður Austur Suður – – 1 lauf 1 grand 2 tíglar 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: laufnía. Austur tekur fyrsta slaginn á laufás og spilar tígli, sem vestur drepur og gefur makker sínum stungu. Austur spilar síðan laufi á kóng blinds. Vörnin hefur tekið þrjá slagi og því má engan gefa á tromp. Þegar sagnhafi spilar nú spaða úr borði kemur austur með níuna og það verður augljóslega að svína tíunni. En er það svo aug- ljóst við borðið? Tími til að telja. Austur á einn tígul og ekki meira en fjórlit í laufi. Þar með átta spil í spaða og hjarta. Og úr því að austur vakti á LAUFI en ekki hálit, þá hlýtur hann að vera með 4-4 skiptingu í hálitunum. Að þessu athuguðu er vanda- laust að svína spaðatíunni. (5) Öryggi Norður ♠105 ♥KD84 ♦ÁK843 ♣72 Vestur Austur ♠Á972 ♠KG4 ♥95 ♥G1076 ♦106 ♦G752 ♣D9654 ♣G8 Suður ♠D863 ♥Á32 ♦D9 ♣ÁK103 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 2 lauf Pass 2 spaðar Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: hjartanía. Það þarf mikið að ganga á til að fella þennan samning, átta slagir í toppspilum og möguleikar í öllum litum. En rauðu litirnir falla ekki og legan í spaða er hættuleg. Ekki má spila tígli fjórum sinnum og gefa austri slag á litinn. Hann mun þá smeygja spaðagosa á milli drottningar suðurs og tíu blinds. Þannig fær vörnin fjóra slagi á lit- inn, hvernig sem sagnhafi bregst við. En þessar kúnstir eru ekki í boði ef vestur þarf að opna litinn. Þess vegna er sjálfsagt að fara varlega og spila tígli í öðrum slag á níuna heima – dúkka slag til vesturs til að tryggja vinning í 4-2 legunni. (6) Fall þriggja kónga Norður ♠D64 ♥ÁG83 ♦Á1082 ♣K9 Vestur Austur ♠K ♠987532 ♥7654 ♥K ♦7654 ♦K ♣G642 ♣108753 Suður ♠ÁG10 ♥D1092 ♦DG93 ♣ÁD Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: lauftvistur (fjórða hæsta). Í þessari þraut voru allar hend- ur uppi og verkefnið að finna gild rök fyrir því að fella kónga varn- arinnar undir ása sagnhafa. Sem virðist fráleitt nema á opnu borði. En skoðum málið. Með laufi út er eðlileg spila- mennska að svína í rauðu litunum, enda nóg að annar kóngurinn sé réttur. En ekki sakar að leika millileik: taka fyrsta slaginn í borði og spila þaðan spaðadrottningu. Meiningin er aldrei sú að svína, en sennilega mun drottningin laða fram kónginn ef hann er í austur. Hér fylgir austur fumlaust með smáspili og sagnhafi tekur á ásinn til að snúa sér að rauðu svíning- unum. En þá gerast þau undur að spaðakóngurinn dettur. Það er nefnilega það. Nú er rétt að rifja upp útspil vesturs – lauft- vistinn, fjórða hæsta. Svo er að sjá sem vestur eigi í besta falli gosann fjórða í laufi. Slíkur litur er ekki líklegur til stórræða og því er ekki óvarlegt að álykta að vestur eigi hvergi lengri eða betri lit – eða spila menn ekki út í lengsta og sterkasta lit! Sé þetta rétt metið á vestur skiptinguna 1-4-4-4 og fjóra hunda í báðum rauðu litunum. Svör við jólaþrautum BRIDS GUÐMUNDUR PÁLL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.