Morgunblaðið - 10.03.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2009
INNAN við 19% félagsmanna VR
höfðu síðdegis í gær greitt atkvæði í
rafrænum kosningum um framboð
til trúnaðarstarfa fyrir VR. Alls eru
tæplega 25.100 félagsmenn á kjör-
skrá, en síðdegis í gær höfðu aðeins
rúmlega 4.730 félagsmenn greitt at-
kvæði sitt.
„Ég held að allir hafi gert sér von-
ir um að kosningaþátttakan yrði
meiri en hún er orðin núna,“ segir
Halldór Grönvold, formaður kjör-
stjórnar. „Miðað við þróun síðustu
daga sé ég ekki að það sé von á ein-
hverjum miklum kipp til viðbótar,“
segir Halldór og tekur fram að allt
bendi til þess að kosningaþátttakan
verði á bilinu 20-25%.
Ekki myndast mikil stemning
Að mati Halldórs er hvorki hægt
að skýra þessa dræmu þátttöku með
skorti á upplýsingum um kosning-
arnar enda hafi kosningarnar verið
talsvert kynntar í fjölmiðlum né því
að erfitt og flókið sé að kjósa, því fé-
lagsmönnum hafi verið gert það
mjög auðvelt á netinu.
„Þetta gefur því tilefni til að ætla
að það sé einfaldlega ekki meiri
áhugi til staðar en þetta,“ segir Hall-
dór og rifjar upp að hitafundur sitj-
andi formanns með félagsmönnum í
nóvember hafi þó gefið tilefni til
þess að kosningaþátttakan yrði góð.
„Utan frá séð skynjar maður ekki að
það hafi orðið mjög mikil stemning í
kringum kosninguna.“
Dræm
þátttaka í
kosningum
Kosningu hjá VR lýk-
ur á hádegi á morgun
ÞAÐ kippa sér fáir upp við það á Seyðisfirði að sjá seli á ísnum í Lóninu, en
þegar þeir eru orðnir sex fara menn að taka eftir. Eins og frægt var í haust
var einn frændi þeirra skotinn á þessum slóðum en ekki virðist það hafa
áhrif á þessa. Að vísu völdu þeir sér stað þar sem þeir ættu að vera nokkuð
öruggir, þ.e. í nágrenni við prestinn, kirkjuna og sýslumanninn.
Ljósmynd/Einar Bragason
Selir í skjóli við kirkjuna
„VIÐ munum
fara þangað sem
við getum farið.
Það er ekki hægt
að útiloka að
flogið yrði langt
á haf út, það yrði
metið eftir að-
stæðum,“ segir
Georg Kr. Lár-
usson, forstjóri
Landhelgisgæsl-
unnar, um hvernig Gæslan myndi
bregðast við ef neyðarkall bærist
frá skipi langt á hafi úti um leið og
aðeins ein þyrla Landhelgisgæsl-
unnar væri í flughæfu ástandi.
Gæslan ræður yfir þremur
björgunarþyrlum. Það ástand hef-
ur skapast nokkrum sinnum að að-
eins ein þeirra er flughæf, jafnvel
svo dögum skiptir. Þar með er eng-
in þyrla til reiðu ef illa fer í björg-
unarflugi. Eins og fram hefur kom-
ið í Morgunblaðinu voru tvær
þyrlur óflughæfar í einu í þrettán
daga í fyrra og í fimm daga í byrj-
un þessa árs var aðeins ein þyrla
nothæf.
Á meðan varnarliðið var á Kefla-
víkurflugvelli voru þyrlur þess
jafnan á bakvakt þegar gæsluþyrl-
ur voru sendar langt á haf út en sú
bakvakt er löngu úr sögunni.
Georg segir að engar sérstakar
starfsreglur séu til sem mæli fyrir
um að þyrla megi ekki fara langt á
haf út nema önnur þyrla sé til taks
til að bjarga áhöfninni ef illa fer.
Aðstæður séu metnar í hvert skipti
og m.a. tekið tillit til þess hvort
önnur skip séu í nágrenninu. „Í
svona tilfelli væri afskaplega gott
að hafa þær upplýsingar sem ber-
ast Varnarmálastofnun um stað-
setningu erlendra herskipa sem
gætu hugsanlega verið búin þyrlu,“
segir Georg. Gæslan fái upplýsing-
ar um staðsetningu norskra og
danskra varðskipa en ekki um
ferðir annarra herskipa. Þær upp-
lýsingar liggi hins vegar fyrir hjá
Varnarmálastofnun.
En hvað myndi Gæslan gera ef
ekkert skip væri í grennd og að-
eins ein þyrla í lagi?
Georg ítrekar að ástandið yrði
metið og ákvörðun tekin í fram-
haldinu og benti á að Gæslan hefði
um árabil sinnt björgunarstörfum
með einni þyrlu. runarp@mbl.is
Förum þangað
sem við getum
Georg Kr.
Lárusson
Vill upplýsingar Varnarmálastofnunar
Í HNOTSKURN
» Landssamband íslenskraútgerðarmanna hefur lýst
yfir áhyggjum af þeim áhrif-
um sem niðurskurður stjórn-
valda hefur haft á starfsemi
Landhelgisgæslunnar.
»Nýlega var þremur þyrlu-flugmönnum sagt upp og
þegar uppsagnirnar hafa allar
tekið gildi 1. september nk.
fækkar þyrluvöktum úr sex í
fimm.
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir
gag@mbl.is
EIGNALÁNIN sem Landsbankinn bauð voru
lögleg og ekki var undan þeim kvartað til fjár-
málaeftirlitsins í Lúxemborg á meðan bankinn var
í fullri starfsemi. Hafi bankinn hins vegar fjárfest
án samþykkis viðskiptavina, eins og franskur við-
skiptavinur bankans fullyrðir, og í fallvöltum ís-
lenskum banka er það óeðlilegt að mati eftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg hefur ekki leng-
ur eftirlitsskyldu með bankanum þar sem hann er
í gjaldþrotameðferð.
Gunnar Thoroddsen, fyrrum framkvæmda-
stjóri Landsbankans í Lúxemborg, gagnrýnir
„stríðsfyrirsagnastíl“ á frétt Morgunblaðsins um
að viðskiptavinum finnist þeir hafa lent í svika-
myllu hjá Landsbankanum. Í skriflegri yfirlýs-
ingu segir að verðþróun fasteigna og verðbréfa
um allan heim hafi leitt til til erfiðrar stöðu
margra þeirra einstaklinga sem tóku eignalánin
hjá Landsbankanum sem og öðrum bönkum
„Þar við bætist, í tilviki Landsbankans í Lúx-
emborg, að skiptastjórar bankans virðast ætla sér
að innheimta fasteignaveðkröfur bankans af mik-
illi hörku og án þess að bjóða fyrrum viðskiptavin-
um bankans upp á viðræður um sanngjarna lausn
mála. Þetta þykir fyrrum stjórnendum bankans
miður og harma það mjög að vera í engri aðstöðu
til þess að semja um endurgreiðslutíma við fyrrum
viðskiptavini sína með eðlilegri hliðsjón af aðstæð-
um á markaði.“ Gunnar segir lánin hafa verið boð-
in þeim sem var fullkunnugt um áhættuna.
Meira: mbl.is
Lánin lögleg en spurt um stefnuna
Óeðlilegt hafi bankinn keypt skuldabréf í íslensku bönkunum rétt fyrir fallið
ÞRÁTT fyrir að
um 700 manns
hafi gengið í
Framsókn-
arflokkinn dag-
ana fyrir próf-
kjörið sem haldið
var í SV-
kjördæmi um
helgina mættu
rúmlega eitt þús-
und á kjörstað.
Þetta segir Helga Sigrún Harð-
ardóttir á vefsvæði sínu og er von-
svikin. „Það voru því innan við 40%
skráðra félaga sem mættu til að taka
þátt.“ Helga hlaut annað sætið á
lista flokksins en sóttist eftir fyrsta.
Innan við
40% mættu
Helga Sigrún
Harðardóttir
Franskur viðskiptavinur Landsbankans í Lúx-
emborg gagnrýnir að bankinn skyldi fjárfesta í
skuldabréfum í Kaupþingi fyrir milljón dollara í
hans nafni viku áður en bankinn féll. Hann tók
eignalán og tapaði sex milljónum evra. Hann
segir að 60% af fjárfestingum bankans fyrir
lán hans hafa verið í íslensku bönkunum. Bresk
hjón gagnrýna einnig hátt hlutfall fjárfestinga
bankans í skuldabréfum íslensku bankanna.
Þessir viðskiptavinir hafa nú verið krafðir um
endurgreiðslu lánsins af skilanefnd bankans,
ella verði gengið að veðum.
Gagnrýna fjárfestingarnar
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
VOPNAÐ rán var framið í söluturn-
inum Allt í einu í Seljahverfinu í
Reykjavík í gærkvöldi. Karlmaður á
þrítugsaldri – að talið er – ógnaði af-
greiðslustúlku með hnífi og krafðist
fjármuna úr sjóðvél. Maðurinn
hljópst á brott með tugi þúsunda
króna. Hann var ekki fundinn þegar
Morgunblaðið fór í prentun.
Tvær stúlkur voru við störf í sölu-
turninum. Önnur þeirra var í af-
greiðslunni en hin í eldhúsinu. Að
sögn Guðlaugs Guðjónssonar, eig-
anda söluturnsins, var maðurinn bú-
inn að verja nokkrum tíma í sölu-
turninum og beið færis í spilakassa.
Það var því enginn viðskiptavinur
nærri þegar ránið átti sér stað.
Guðlaugur segir afgreiðslustúlk-
una hafa orðið frekar skelkaða og
var henni boðin áfallahjálp.
Lögreglan var fljót á staðinn eftir
að eftir henni var óskað og tók
skýrslu af stúlkunum. Undir venju-
legum kringumstæðum hefði
myndavélakerfi söluturnsins verið í
gangi en fyrir þremur dögum fór raf-
Ógnaði starfsfólki með hnífi
Karlmaður komst undan eftir vopnað rán í söluturni í gær
Myndavélakerfi er uppsett en gleymdist að kveikja á því
Ljósmynd/Konráð Ragnarsson
Á vettvangi Lögreglan tók skýrslu af starfsstúlkunum eftir ránið.
magnið af. Guðlaugur segist hafa
trassað að setja kerfið aftur í gang.
Sagðist hann harma það enda búinn
að vera með rekstur þarna í fimmtán
ár og án þess að nokkuð þvíumlíkt
hafi komið upp á.