Morgunblaðið - 10.03.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.03.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2009 ÁRMANN Kr. Ólafsson alþing- ismaður gefur kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í SV- kjördæmi. Ármann er 42 ára og stjórnmála- fræðingur að mennt. Hann var einn af stofnendum ráðgjafarfyr- irtækisins ENNEMM og var fram- kvæmdastjóri þess. Þá sat hann lengi í bæjarstjórn Kópavogs. Ármann sækist eftir 2.-3. sæti Ármann Kr. Ólafsson Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, próf- kjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar 2009 ÁSTA Hafberg mun skipa 1. sæti á framboðslista Frjálslynda flokks- ins í NA-kjördæmi. Ásta er með dip- lóma-gráðu í hönn- unarfræði frá Teknisk Akademy Syd í Sönderborg, áður hafði hún lokið tækniteiknun frá Iðnskóla Reykjavíkur. Hún starfar nú sem verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Austurlands. Ásta Hafberg mun skipa 1. sæti Ásta Hafberg JÓN Rúnar Hall- dórsson gefur kost á sér í 3. sæti í próf- kjöri Sjálfstæðis- flokksins í SV-kjör- dæmi. Aðalbaráttu- mál hans er endur- reisn íslensks atvinnulífs. Jón Rúnar er fram- kvæmdastjóri Salta ehf. og síðustu fjögur ár hefur hann verið form. knattspyrnudeildar FH. Jón Rúnar sækist eftir þriðja sæti Jón Rúnar Halldórsson GUÐNI Hall- dórsson, sem gefur kost á sér til for- mennsku í Frjáls- lynda flokknum, hefur ákveðið að draga prófkjör sitt í NV-kjördæmi til baka. Eftir samtöl við stuðningsmenn sína hefur hann þess í stað ákveðið að sækjast eft- ir efsta sæti í öðru hvoru Reykja- víkurkjördæmanna. Guðni gefur kost á sér í Reykjavík Guðni Halldórsson SVÆÐISFÉLAG Vinstri grænna á Vestfjörðum telur það forgangs- verkefni fyrir samfélagið á Vest- fjörðum að brugðist verði við vax- andi atvinnuleysi á svæðinu. „Mikilvægt er fyrir uppbyggingu atvinnulífs til lengri tíma litið að grunnatvinnuvegir svæðisins, land- búnaður og sjávarútvegur, verði efldir. Einnig að stuðlað verði að meiri fjölbreytni og nýsköpun í at- vinnutækifærum og þróun í ferða- þjónustu,“ segir í ályktun. Vilja efla atvinnu á Vestfjörðum STUTT Morgunblaðið/Brynjar Gauti Aðhald Ferðakostnaðarnefnd lækkaði nýverið dagpeningagreiðslur til starfsmanna ríkisins á ferðalögum erlendis, til þess að auka aðhald í ríkisrekstri. FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „MEÐ þessu er verið að leggja áherslu á eðlilegt aðhald og skyn- samlegar reglur,“ segir Indriði H. Þorláksson, og vísar þar til nýlegrar lækkunar ferðakostnaðar ráðherra og starfsmanna ríkisins á ferðalög- um erlendis. Að beiðni fjármálaráðherra lækk- aði ferðakostnaðarnefnd dagpeninga starfsmanna ríkisins á ferðalögum erlendis um 10% frá og með 1. mars sl. Jafnframt ákvað ráðherra að breyta með reglum, sem tóku gildi 6. mars sl., sérstökum ákvæðum um endurgreiddan ferðakostnað og dag- peninga til ráðherra og æðstu emb- ættismanna ríkisins. Sérreglur giltu um fleiri Fyrir gildistöku nýju reglnanna giltu ákveðnar sérreglur um greiðslu dagpeninga til ráðherra, ráðuneyt- isstjóra, aðstoðarmanna ráðherra, biskups, ríkisendurskoðanda, hæsta- réttardómara, ríkissáttasemjara, forsetaritara og sendiherra. Um ráð- herra og forseta Hæstaréttar gilti að þeim voru greiddir fullir dagpen- ingar, auk þess sem greiddur var ferða- og gistikostnaður, risnukostn- aður og símtöl. Ef makar ráðherra voru með í för fengu þeir, auk far- gjalds og gistingar, greidd 50% af dagpeningum ráðherra. Sendiherr- um voru greiddir 2⁄3 hlutar fullra dag- peninga, auk gisti- og símakostn- aðar. Aðrir þeir, er sérreglurnar giltu um (s.s. ráðuneytisstjórar og aðstoðarmenn ráðherra), fengu greidda 4⁄5 hluta fullra dagpeninga, auk gisti- og símakostnaðar. Dagpeningar maka afnumdir Samkvæmt nýju reglunum eru ráðherrum, og forseta hæstaréttar greiddur 1⁄3 hluta dagpeninga þegar um opinbera heimsókn er að ræða, en 2⁄3 hlutar í öðrum tilvikum. Auk þess verður þeim greiddur ferða- og gistikostnaður, risnukostnaður og símtöl. Séu makar ráðherra í för með ráðherra á ferðalögum erlendis fá þeir greitt fargjald og gistingu, en afnumin er heimild til þess að greiða mökum dagpeninga. Með nýju regl- unum eru auk þess afnumin sérstök ákvæði um dagpeninga og end- urgreiddan kostnað fyrir ráðherra, ráðuneytisstjóra, aðstoðarmann ráð- herra, biskup, ríkisendurskoðanda, hæstaréttardómara, ríkissáttasemj- ara, forsetaritara og sendiherra. Um þá gilda nú sömu reglur og um aðra starfsmenn ríkisins, þ.e. reglur um greiðslu almennra dagpeninga. Spurður hvort búið væri að reikna út hvað breytingin myndi spara rík- inu í krónum talið sagði Indriði það ekki liggja nákvæmlega fyrir. Benti hann á að tölur um ferðakostnað og dagpeninga á vegum ríkisins væru inni í reikningum hjá ótal mörgum stofnunum og aðilum og því myndi það kosta mikla vinnu að kalla eftir þeim tölum til að svara fyrirspurn blaðamanns. „Í sjálfu sér snýst þetta mál ekki um fjárhæðirnar, því þær eru óverulegar í samanburði við heildina, þetta er meira spurning um hvað er talið rétt og eðlilegt.“ „Áhersla á eðlilegt aðhald“ Dagpeningagreiðslur lækkaðar og sér- reglur eiga við um færri embættismenn        "     . II B4-3))5 5;=,)B4-3))5 4A*C45)D,)B4- B4+03/*=AA*EF)=   ##AHB$ CCA8G2 C2AB82 C2AB82 GGA'HH CJC CJ# 8J$ 8J$ CBA2C2 ' ' ' CBA2C2 78'0 7C''0 7C''0 7C''0 7(H0 GA2'G ' ' ' GA2'G 7('0 7C''0 7C''0 7C''0 7H'0                        !  "  #   I?     &<K.&   HA CG$ A II<      7  7!   !   !   A III#JB          C'0CA  IIIICJB       B4-3))5 5;=,)B4-3))5 4A*C45)D,)B4- B4+03/*=AA*EF)=    CHA8(' HA(B$ C$A$(G C$A$(G G'AB$( CJC CJ# 8J$ 8J$ CCA(C2 ' ' ' CCA(C2 78'0 7C''0 7C''0 7C''0 72'0 $A((# ' ' ' $A((# 7('0 7C''0 7C''0 7C''0 7H'0 B4-3))5 5;=,)B4-3))5 4A*C45)D,)B4- B4+03/*=AA*EF)=  C(AB#$ 2AGGB CBA2G' CBA2G' $BA('2 CJC CJ# 8J$ 8J$ 78'0 7C''0 7C''0 7C''0 72C0 GA2'G ' ' ' GA2'G 7('0 7C''0 7C''0 7C''0 7H'0   !" C'ABH# ' ' ' C'ABH#    ). . . *  Kolbrún Baldursdóttir Vöndum valið www.kolbrun.ws PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Í REYKJAVÍK 13. OG 14. MARS 2009 Fyrirhyggja, festa og framfariir Kolbrún er sálfræðingur með langa og víðtæka reynslu af félags- og velferðarmálum. Einkum er henni annt um hag fjölskyldna í landinu. Gætum að velferð barna og setjum hagsmuni þeirra ofar öllu. • Samvinna og eining er grunnur velgengni • Ég vil styrkja stoðir Sjálfstæðisflokksins og efla innviði hans með nýjum sjónarhornum Hlustum á þjóðina 4.-5. SÆTI Omeprazol Actavis - öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð: Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A C TA V IS 9 0 3 0 3 0 Af litlum neista… 20 mg, 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki Nýttmagalyfán lyfseðils ,magnar upp daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.