Morgunblaðið - 10.03.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.03.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2009 BRESKI leikarinn Patrick Stewart vann sín þriðju Laurence Olivier verðlaun um helgina, fyrir leik í aukahlutverki karla í uppfærslu Konunglega Shakespeare leik- félagsins á Ham- let. Patrick Stew- art er einnig forseti Háskólans í Huddersfield í Englandi, en langþekktastur er hann þó líkast til sem Kapteinn Jean-Luc Picard í Star Trek- þáttunum vinsælu. Annar góðkunnur leikari, Derek Jacobi, hreppti karlverðlaun fyrir besta leikinn í aðalhlutverki sem Malvolio í Þrettándanótt eftir Shakespeare. Besta leikkonan var valin Marg- aret Tyzack í hlutverki eiginkonu skáldsins Somerset Maughams í leikritinu Chalk Garden en hún er einnig vel þekkt andlit úr enskum þáttum í íslensku sjónvarpi. Jafnvígur á Shakespeare og Star Trek Patrick Stewart verðlaunaður Margaret Tyzack Fjölhæfur Patrick Stewart. BANDARÍSKI rithöfundurinn Mark Twain er frægastur fyrir sögur sínar um Stikilsberja-Finn og Tom Sawyer og skeggprútt, góðlátlegt fasið er eitt af þekktari „íkonum“ bók- menntasögunnar. Í næsta mánuði kemur út bók með áður óbirtum sögum og greinum eft- ir Twain, 99 árum eftir andlát hans, þrátt fyrir að höfundurinn sjálfur hafi verið afar andsnúinn svoleiðis gerningum. Safnritið kallast Who is Mark Twain? og þar er m.a. að finna upprifjun Twain á fyrsta fyrirlestr- inum sem hann hélt í New York, ádrepu um Jane Austin og hnyttna smásögu um jarðarfararstofur. Twain átti stærsta safn einka- bréfa og -rita af öllum þeim nítjándu aldar höfundum Bandaríkjanna sem eitthvað kvað að, segir ritstjóri bók- arinnar, Robert Hirst. Andrew Gulli, ritstjóri tímaritsins The Strand, sem mun birta eina af þess- um áður óútgefnum sögum, segir Twain þá ekki eiga möguleika á því að daga uppi. Glúrin samfélagsrýni hans og kímnigáfa eigi jafn vel við í dag og þá. Nokkur uppgangur hefur annars verið í „óútgefna“ brans- anum upp á síðkastið en Harper- Collins gefur brátt út fyrstu skáld- sögu Jack Kerouac, The Sea is My Brother, saga sem ekki hefur lit- iðdagsins ljós fyrr en nú. Áður óbirt- ur Twain Íkonískur Mark Twain. SIGURBJÖRNSVÖKUR standa nú yfir í Hallgríms- kirkju á miðvikudagskvöldum kl. 20 í minningu Sigurbjörns Einarssonar biskups sem lést á síðasta ári. Hver vaka er helg- uð málefni sem var Sigurbirni Einarssyni hugleikið. Annað kvöld er komið að Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra, en hún talar um drauma Sig- urbjörns um Skálholt. Gamlir kirkjuverðir í Skálholti, Elín Gunnlaugsdóttir tón- skáld og Bjarni Harðarson bóksali lesa úr ræðum Sigurbjörns. Orgelleikarar kirkjunnar annast orgelleik og stjórna almennum söng með textum Sigurbjörns og úr Passíusálmunum. Hugvísindi Draumar Sigur- björns um Skálholt Sigurbjörn Einarsson KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir myndina Paradísarbíóið, Cinema Paradiso eftir Gu- seppe Tornatore í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld kl. 20. Þekktur kvikmyndaleikstjóri, Salvatore, snýr aftur til heima- bæjar síns á Sikiley, eftir langa fjarveru, til að vera við útför vinar síns, sýningarmannsins Alfredo í Paradísarbíóinu. Hann rifjar upp æsku sína og föðurlegan áhrifa- mátt Alfredos sem kenndi honum að meta heim kvikmyndanna. Paradísarbíóið er óður til kvik- myndarinnar. Fræg eru atriði í myndinni af öllum kossunum sem ekki rötuðu á hvíta tjaldið vegna ritskoðunar. Íslenskur texti. Kvikmyndir Paradísarbíóið í Bæjarbíói Paradísarbíóið PÍANÓNEMENDUR Tónlist- arskólans í Reykjavík leika á tónleikum í Salnum í kvöld kl. 20. Þau sem leika eru Steinar Logi Helgason, Bjarki Sig- urðsson, Sólveig Anna Ara- dóttir, Marta Jónsdóttir, Ása Dóra Gylfadóttir, Marteinn Knaran Ómarsson, María Arn- ardóttir, Ágústa Ebba Hjart- ardóttir, Edda Davíðsdóttir, Sigurður Ásgeir Árnason, Sólrún Una Þorláks- dóttir, Birta Marlem Lamm, Jóhanna Eir Björns- dóttir, Arnheiður Eiríksdóttir, Gunnhildur Eva Gunnarsdóttir, Þórunn Þórsdóttir og Elín Arn- ardóttir. Verkin eru eftir Bach, Bizet, Chopin, De- bussy, Grieg og fleiri. Tónlist Píanónemar leika á tónleikum í Salnum Claude Debussy Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „FYRIR örfáum árum markaði Út- varpsleikhúsið sér þá metnaðarfullu stefnu að kynna ný, áhugaverð er- lend leikskáld og flytja verk eftir þau,“ segir Viðar Eggertsson, leik- hússtjóri í Útvarpsleikhúsinu, sem rekið er innan Ríkisútvarpsins. Hann var beðinn að segja frá breytt- um áherslum í ljósi niðurskurðar. „Þetta var áhugaverð stefna,“ bætir Viðar við, um flutning á nýjum erlendum verkum, „en í vetur hafði gengishrunið áhrif á þetta starf okk- ar. Fall krónunnar þýðir að höfund- arréttur að erlendu verki, með nýrri þýðingu, kostar nánast það sama og frumflutningur á nýju íslensku verki. Mér fannst því vert að leggja alla áherslu á íslensk verk. Við mætum þeim samdrætti sem hefur orðið hjá okkur, vegna efna- hagsástandsins, með því að setja frekar íslensk verk á dagskrá og reyna að efla íslenska leikritun. Við þurfum að velta hverri krónu fyrir okkur og finnst það nýtast vel, í menningarpólitískum tilgangi og til að spegla samtíma okkar, að efla ís- lenska leikritun með þessu móti. Inn á milli höfum við síðan sent út ýmis öndvegisverk leikbókmenntanna.“ Ný íslensk leikverk Næstu sunnudaga verður útvarp- að nýjum þríleik, Sómafólk, eftir Andrés Indriðason. „Það er talsvert um það að höf- undar skrifi sérstaklega fyrir út- varpið,“ segir Viðar og telur upp verk sem hafa verið flutt á síðustu mánuðum: Skyldan kallar eftir Her- mann Stefánsson, leikgerð Bjarna Jónssonar, Augu mín sáu þig, eftir verki Sjón, Yfirvofandi eftir Sig- trygg Magnason, og Spor eftir Starra Hauksson. „Það er þónokkur niðurskurður hjá Útvarpsleikhúsinu, því miður. Útvarpsleikhúsið er kannski dýrasta útvarpsefnið en ódýrasta form leik- húss. Og kannski það víðfeðmasta, því við sendum leikhús út til alls landsins, og til heimsbyggðarinnar. Endurflutningur: 150-200.000 Útvarpsleikhúsið gerir talsvert að því að endurútvarpa eldri upptökum af leikritum, en slíkar útsendingar eru háðar höfundarrétti og þarf að greiða þeim sem koma að verkinu. Þess má geta að í fyrra þegar samið var við leikara um lægri greiðslur við endurflutning leikins sjónvarps- efnis tók það ekki til útvarpsins. „Meðalleikrit með nokkrum leik- urum kostar í endurútsendingu 150- 200.000 krónur,“ segir Viðar. „Miðað við launaþróun í dagskrárgerð í út- varpinu þykir það dýrt, en það er af- stætt hvað er mikið og hvað er lítið. Segja má að leikarar hafi ekki fengið vel greitt fyrir frumflutning en eygðu möguleika á að þeim yrði bætt upp ef vel tækist til og verkið yrði oftar flutt.“ Viðar tekur einnig fram að leik- arar og leikstjórar við Útvarpsleik- húsið hafi ekki fengið launahækkun síðan 1. janúar 2005. „Allir launa- taxtar þerra eru orðnir ansi gamlir og hafa ekki haldið í við launaþróun í landinu. Segja má að það hafi verið framlag þessara listamanna til þess að viðhalda Útvarpsleikhúsinu.“ Viðar segir að þótt áherslan sé nú á íslensk verk eigi hann eftir að móta stefnuna fyrir næsta vetur. „Auðvitað lifum við á óvissutímum og það er erfitt að gera áætlanir sem hægt er að fullyrða að muni stand- ast. En það er gott að leggja upp með metnaðarfullar hugmyndir því að þótt það þurfi að slá aðeins úr verður engu að síður eitthvað mjög gott eftir.“ Áhersla á íslensk verk  Útvarpsleikhúsið mætir samdrætti með því að setja fleiri íslensk verk á dagskrá  „Þónokkur niðurskurður hjá Útvarpsleikhúsinu,“ segir Viðar Eggertsson Morgunblaðið/Ómar Metnaðarfull dagskrá „Þótt það þurfi að slá aðeins úr verður engu að síður eitthvað mjög gott eftir,“ segir Viðar Eggertsson leikhússtjóri. HIN árlega myndlistarkaupstefna The Armory Show var haldin í New York um helgina. Sam- kvæmt The New York Times sótti fjöldi gesta kaupstefnuna, þar sem um 200 gallerí, víðsvegar úr heiminum, sýndu og seldu verk eftir listamenn- ina sem þau hafa á sínum snærum. Að sögn blaðsins hefur erfitt efnahagsástand sett mark sitt á myndlistarmarkaðinn á síðustu mánuðum og það var sýnilegt. Nokkur kunn gall- erí hættu við á síðustu stundu og þá birtust við- brögð listamanna í ýmsum verkum, í setningum á borð við: „Capitalism Kills“, „Everyone Is Broke“ og „Keep Calm and Carry On“. „Hljóðið í galleristum var mjög misjafnt,“ segir Börkur Arnarson hjá Gallerí i8, sem tók þátt í kaupstefnunni. „Sumir sögðu að það hefði gengið mjög vel en öðrum þótti þetta frekar dapurt,“ seg- ir Börkur. „Þetta er aftur komið í hendurnar á ástríðufullum söfnurum. Það var heilmikið selt af verkum en ekki fyrir sama verð og á síðustu árum. Í stað þess að kaupa verk á 100.000 dali var fólk að kaupa verk á 10-20.000 dali.“ Börkur segir að framsetning i8 hafi verið nokk- uð sérstök. „Við vorum með risastórt verk eftir Ólaf Elíasson, verk eftir Ragnar Kjartansson, og síðan „skytturnar þrjár“; verk eftir Hrein Frið- finnsson og bræðurna Sigurð og Kristján Guð- mundssyni, frá áttunda áratugnum. Fólk hreifst mjög af þeim. Svo vorum við með ný verk frá Hreini, og úrval verka annarra listamanna.“ Þegar Börkur er spurður hvernig hafi gengið að selja segir hann að þau hafi verið „nokkuð ánægð. Við seldum „slatta“ og vel fyrir öllum kostnaði – og það telst gott í dag“. Mikið selt – lægra verð Nýtt Hluti myndbandsverks eftir Hrein Friðfinns- son sem var sýnt á Armory Show í New York. Efnahagsástandið sýnilegt á The Armory Show Það getur líka vel hugsast að ég fari til útlanda … ég hef engu að tapa – það er allt farið! 38 » „Nei, því miður,“ svarar Viðar Egg- ertsson þegar hann er spurður að því hvort Útvarpsleikhúsið haldi áfram að útvarpa íslenskum saka- málaleikritum eftir hádegi í sumar. Síðustu sumur hafa verið flutt leikrit gerð eftir sögum Árna Þór- arinssonar, Arnaldar Indriðasonar og Ævars Arnar Jósepssonar. „Vegna aðhaldsins í rekstri Út- varpsleikhússins höfum við lokað stúdíóinu okkar núna um nokkurra mánaða skeið. Það verður því ekk- ert sakamála- eða hádegisleikrit tekið upp fyrir sumarið. Nýjustu verkin sem við tókum upp verða frumflutt í haust, en það eru sex ný verk sem Hrafnhild- ur Hagalín skrifaði sérstaklega fyrir Útvarpsleikhúsið með nokkra elstu leikara þjóðarinnar í huga. Verið er að leggja lokahönd á þau.“ Ekkert sakamálaleikrit sent út í sumar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.