Morgunblaðið - 10.03.2009, Side 38

Morgunblaðið - 10.03.2009, Side 38
38 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2009 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is G ötuspilarinn Jo Jo hef- ur í árafjöld veitt brjóstbirtu til vegfar- enda í miðbæ Reykja- víkur á köldum vetr- arkvöldum með ljúfri spilamennsku sinni og glaðværu fasi. Jo Jo hefur aukinheldur allt- af tíma til að skrafa og skegg- ræða og skýrir sjarmerandi við- mót farandsöngvarans líklega þann ótrúlega fjölda „götustráka“ sem leggja honum lið á nýrri plötu sem hann gefur út til styrktar Hjartavernd (sjá fylgju). „Allt gaf þetta fólk vinnu sína,“ segir Jo Jo hæverskur en færist svo skyndilega í aukana. „Þetta er því ódýrasta plata sem gerð hefur verið á Íslandi!“ segir hann og hláturinn kraumar í honum. Ég hef engu að tapa Platan á sér sæmilega langan meðgöngutíma og var „tekin upp og hljóðblönduð í biðlund og bróðerni á tímabilinu júlí 2008 til febrúar 2009“ eins og segir í fréttatilkynningu. Það var Sál- verjinn Guðmundur Jónsson sem var hægri hönd Jo Jo við plötu- gerðina en Guðmundi kynntist Jo Jo um miðbik níunda áratugarins er hann réð hann í hljómsveit sína. „Gummi kom, spilaði í fimmtán sekúndur og var ráðinn,“ rifjar Jo Jo hýreygður upp. Ísland í dag, útlönd á morgun „Ég hætti svo og hann tók yfir bandið og það þróaðist yfir í Kikk en þar sá Sigga Beinteins um söng,“ bætir hann svo við. Jo Jo hefur strítt við blóðþrýsti- vandamál og að styrkja Hjarta- vernd var honum því hjartans mál í orðsins fyllstu. Hann segir plötuna samanstanda af vinaleg- um stemmum í bland við hæfilegt götusprell og segist vonast til þess að platan slái eitthvað á hið erfiða öldurót sem samfélagið er statt í um þessar mundir. „Það getur líka vel hugsast að ég fari til útlanda og leggi mitt af mörkum til að byggja upp orð- spor þessa blessaða lands. Ég hef engu að tapa – það er allt farið!,“ segir hann og hlær hrossahlátri. Kemur út í næstu viku Platan kemur út í næstu viku og verður dreift af Senu. Allur ágóði plötunnar rennur til Hjartaverndar eins og áður segir en plötuna tileinkar Jo Jo hins vegar félaga sínum og vini, Rúnari Júlíussyni. Mitt hjartans mál  Götuspilarinn Jo Jo gefur út hljómplötu til styrktar Hjartavernd  Helstu tónlistarmenn landsins lögðu gjörva hönd á plóg við gerð plötunnar Morrgunblaðið/RAX Á Eiðistorginu Pálmi Sigurhjartarson ásamt félaga sínum, hinum eina sanna Jo Jo. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is LEIKSTJÓRANUM Óskari Jón- assyni hefði aldrei grunað að meira en fimmtán árum eftir að hann gerði kvikmyndina Sódóma Reykja- vík yrði hann viðstaddur tvo við- burði henni tengdri sama kvöldið. En það gerðist einmitt seinasta föstudagskvöld þegar hann sótti bæði leiksýningu og skemmtistað með nafninu Sódóma Reykjavík. „Ég var viðstaddur sýningu Fjöl- brautaskóla Suðurnesja á Sódómu Reykjavík í Andrew’s Theather í gömlu herstöðinni. Felix Bergsson gerði handritið sem er byggt á myndinni og fléttaði tónlist frá þessu tímabili inn í. Það var mjög skemmtilegt en stórfurðulegt að sjá þetta á sviði. Bíómyndin er ekki hugsuð fyrir leiksvið en mörg atrið- in voru betri en í fyrirmyndinni,“ segir Óskar. Frá Suðurnesjum brunaði hann svo í miðbæ Reykjavíkur til að vera viðstaddur opnun skemmtistaðarins Sódóma Reykjavík sem er stað- settur á efri hæð gamla Gauks á Stöng. Spurður hvort staðurinn sé eitthvað í anda myndarinnar segir Óskar að hann voni ekki. „Ég varð ekki var við neitt gruggugt brugg þarna. En stemningin er kannski smá svipuð, þetta er snotur lítil rokkbúlla með góðu sviði fyrir al- vöru rokkbönd.“ Óskar telur ekki nýtt Sódómu- æði vera í uppsiglingu þrátt fyrir þetta og stefnir ekki að því að end- urgera myndina. „Það á voða illa við mig einhver nostalgía og endur- vinnsla, ég lít á þetta sem afgreitt mál af minni hálfu. Það mætti svo sem gefa hana út með betri lit- greiningu, það væri þjóðþrifaverk en ég fer ekkert að hrófla við þessu.“ Eftir leiksýningu og skemmtistað segir Óskar ekki hafa hugmynd um hvað komi næst tengt myndinni en telur að það gæti orðið Sódóma- landi. „Ódýr og kreppulegur.“ Ekkert gruggugt brugg í Sódómu Reykjavík Óskar Jónasson Var önnum kafinn á föstudag við að fylgjast með arfleifð kvikmyndar sem hann leikstýrði fyrir meira en 15 árum. Morgunblaðið/Ómar Fólk „VIÐ vorum með forsýningu á föstudaginn var, sérstaka Nexus-sýningu án hlés og texta. Salurinn var nánast fullur og myndin féll vel í kramið hjá okkar viðskiptavinahópi,“ segir Gísli Einarsson eigandi sérvöruverslunarinnar Nexus á Hverf- isgötu um ofurhetjukvikmyndina Watchmen sem verður frumsýnd almenningi næstkomandi föstu- dag. Starfsmenn Nexus eru farnir að finna fyrir titringi vegna komu myndarinnar. „Bókin hefur alltaf verið ein sú söluhæsta hjá okkur en salan hefur aukist undanfarið vegna komu mynd- arinnar og við eigum von á því að hún aukist enn frekar þegar fólk hefur séð myndina. Við erum líka með bækur um gerð sögunnar og kvikmynd- arinnar. Fígúrur byggðar á útliti kvikmyndarinn- ar eru komnar og svo eigum við von á DVD-diski þar sem öll myndasagan er sviðsett, þ.e. hver rammi í sögunni er myndaður og leikarar lesa inn á. Það er líka von á öðrum diski um myndasöguna Tales of the Black Freighter en hún er mynda- saga sem persónurnar í Watchmen lesa. Það var ákveðið að hafa hana ekki í bíómyndinni heldur gefa hana út á sér diski,“ segir Gísli. Watchmen kom upprunalega út í tólf hlutum en var svo safnað saman í eina bók, eina sögu og seg- ir Gísli hana fyrir löngu orðna klassíska. „Hún er eitt af fyrstu tilfellunum þar sem Bandaríkjamenn áttuðu sig á því að myndasögur þyrftu ekki bara að vera fyrir börn en þeir voru seinni að því en Evrópa og Japan,“ segir Gísli og tekur fram að þetta sé saga fyrir eldri myndasöguaðdáendur. ingveldur@mbl.is Koma Watchmen veldur titringi í Nexus Watchmen Sagan segir frá breyskum ofur- hetjum sem eru hættar störfum.  Í kynningarstiklu fyrir 19. þátt þriðju þáttaraðar Heroes má sjá klappstýruna og ljóskuna, Claire Bennet sækja um starf í mynda- sögubúð en atriðið lítur út eins og rándýr útgáfa af atriði úr íslensku myndinni Astrópíu þar sem per- sóna Ragnhildar Steinunnar sækir um starf í myndasögubúð í Hafn- arfirði. Margir velta því nú fyrir sér hvort það geti verið að framleið- endur Heroes hafi „stolið“ hug- myndinni að atriðinu en töluverðar líkur eru á að einhver úr herbúðum NBC sem framleiðir Heroes hafi verið viðstaddur sýningu á Astró- píu þegar hún var sýnd á Fantastic Fest í Austin, Texas í september á síðasta ári. Í kjölfarið skrifaði Harry Know- les, eigandi og ritstjóri vefsíðunnar Aint it Cool News afar jákvæðan dóm og vakti sú umsögn töluverða athygli. Í viðtali við mbl.is segir Gísli Gíslason, einn aðstandenda myndarinnar, að farið verði í mál við NBC vegna líkindanna. „Við erum akkúrat núna að vinna í því að semja um sölu á endurgerð myndarinnar í Hollywood ... þannig að ef búið er að nota hugmyndina okkar áður í einum vinsælasta sjón- varpsþætti Bandaríkjanna þá getur tjónið verið mikið...“ segir Gísli m.a.. Atriði úr Astrópíu komið í Heroes  Af þeim rúmlega 100 lögum sem bárust í Sönglagakeppni Rásar 2 hafa tólf lög verið valin áfram. Óhætt er að segja að einvalalið lagahöfunda sé að baki þessum lög- um en þar má nefna tónlistarmenn á borð við Dr. Gunna, Magnús Þór Sigmundsson, Friðrik Ómar, Jó- hann G. Jóhannsson, Halla Reynis, Unni Birnu Björnsdóttur og svo hljómsveitirnar Langa Sela og nýju Skuggana og Skuggasveina þar sem Gunnar Þórðarson er í broddi fylkingar. Úrslitin verða tilkynnt í Popplandi föstudaginn 20. mars en í verðlaun er gjafabréf frá verslun Zo-On Iceland að verðmæti 150.000 kr. Ekki dónalegt það. Einvalalið tónlistar- manna fer áframSjaldan hefur maður séð jafnmikið af landskunnum tónlistarmönnum saman komna á einum stað og í upplýsingaskrá plötunnar. Er þá sama hvar borið er niður í verk- þáttum hennar. Spurður hvernig hann hafi fengið þessa menn til samstarfs svarar Jo Jo einfald- lega: „Nú, ég hef bara tekið þessa menn tali niðri í Austurstræti. Þetta eru allt saman stakir öðling- ar og alltaf til í að spjalla.“ Spilarar: Guðmundur Jónsson, Jóhann Hjörleifsson, Friðrik Sturluson, Pálmi Sigurhjartarson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson, Sig- urður Sigurðsson, Matthías Stef- ánsson, Sigurgeir Sigmundsson. Söngvarar: Pálmi Gunnarsson, Egill Ólafs- son, Valgeir Guðjónsson, Páll Rós- inkranz, Daníel Ágúst, Krummi, Guðmundur Jónsson, Jo Jo. Upptökumenn: Daði Georgsson, Haffi Tempó, Guðmundur Jónsson, Addi 800, Axel „Flex“ Árnason. Umslag: Spessi, Jónsi. Götustrákagnótt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.