Morgunblaðið - 10.03.2009, Qupperneq 43
Menning 43FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2009
MARLEY and Me er gerð eftir sam-
nefndri metsölubók eftir John Grogan.
Bókina byggði hann á eigin reynslu en
með hlutverk hans í myndinni fer
Owen Wilson. Myndin og bókin hittir
fyrst og fremst í mark hjá hundaeig-
endum og dýravinum. Hún er þeim
óvenju sönn, tilfinningarík og
skemmtileg afþreying, því er óhætt að
slá föstu.
Leikstjórinn David Frankel (The
Devil Wears Prada) á ekki í minnstu
vandræðum með að virkja þessa
dæmigerðu og notalegu sögu af besta
vini mannsins og fjölskyldu hans. Við
fylgjumst með Marley, ómót-
stæðilegum prakkara, tryggum og
traustum en uppvöðslusömum og
óstýrilátum vini á sínum yngri árum.
Áhrif hans á eigendurna eru auðsæ,
hann gefur hversdagsgrámanum líf og
lit og fyllir öll tómarúm sem myndast.
Grogan nær að lýsa sambandi
manna og hunda af trúverðugleik og
ástúð. Sýna leyniþráðinn fræga sem
liggur á milli manna og hunda – en að-
eins svo fremi að báðir gefi hjarta sitt
óskipt. Þá eignast menn þessa ótrú-
lega nánu og sterku vináttu sem þeir
skilja best sem reynt hafa. Grogan
dregur heldur ekkert undan, við kynn-
umst sárum umskiptunum sem verða
þegar skyndilega fer að halla undan
fæti hjá Marley, afneituninni og sorg-
inni sem fylgir því þegar heimilishund-
urinn hverfur á braut. Það er þungbær
reynsla að sjá á bak vinum sínum en
síðan er endalaust hægt að ylja sér á
minningunum um fölskvalausa vin-
áttu, hreinskilni, ómetanlegar sam-
verustundir og ómissandi tengsl við
aðra vídd í tilverunni sem Grogan-
fjölskyldan hefði ekki getað hugsað
sér að fara á mis við frekar en aðrar í
hennar sporum.
Marley sjálfur er óviðjafnanlegur í
höndunum á þeim hundaher sem
„leikur“ hann frá goti til grafar og Wil-
son og Aniston túlka óaðfinnanlega
hlýtt, viðfelldið og gott fólk og krakk-
arnir þeirra eru sæt og eðlileg. Marley
and me er vönduð og ómissandi fjöl-
skyldumynd öllum þeim sem unna líf-
inu í kringum okkur. Það má vel vera
að einhverjum öðrum þyki hún væmin.
Það er þeirra vandamál.
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó, Borgarbíó
Marley and Me
bbbnn
Leikstjóri: David Frankel. Aðalleikarar:
Owen Wilson, Jennifer Aniston, Eric
Dane, Alan Arkin. 125 mín. Bandaríkin.
2008.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Marley og vinir hans
Besti vinurinn „Áhrif hans á eigendurna eru auðsæ, hann gefur hversdags-
grámanum líf og lit og fyllir öll tómarúm sem myndast,“ segir Sæbjörn
Valdimarsson m.a. um hina hugljúfu hundamynd Marley and Me.
MARLEY er ljós á lit en
þessir „konungar Retrie-
ver-hundanna“ geta einnig
verið svartir eða brúnir.
Hæfileikar hans hafa ekki
einungis verið nýttir í veiði
heldur einnig í aðra vinnu
t.d. sem blindrahundur, fíkni-
efnaleitarhundur, leitarhundur
og hjálparhundur fyrir fatlaða.
Labrador hefur ótrúlega gott
lyktarskyn og er frábær
sundhundur. Hann getur
sótt allar tegundir bráða
á landi sem og vatni. Með
gríðarmiklu sjónminni
getur hann munað lend-
ingarstaði nokkurra fall-
inna fugla. Hann er traustur að
rekja slóð og er góður sporhund-
ur. Labrador er ein vinsælasta
hundategundin í heiminum í dag.
Eðalhundurinn Labrador
GWYNETH Paltrow ákvað á sínum
tíma að draga sig út úr sviðsljósinu
og einbeita sér að einkalífinu. Það
bar góðan ár-
angur því Palt-
row hefur nú
verið í dvala í
sex ár og á
þeim tíma hefur
hún m.a. átt tvö
börn, Apple,
fjögurra ára og
Moses tveggja
ára með eig-
inmanni sínum Chris Martin.
„Ég hef legið í hálfgerðum dvala
en nú finnst mér sem ég sé að koma
aftur inn í veröldina. Það er mjög
gaman að snúa aftur til vinnu þó að
mikið í lífi mínu hafi breyst.“
Eftir að Paltrow fékk Ósk-
arsverðlaun sem besta leikkonan
árið 1998 varð hún svo eftirsótt
leikkona að hún vann eiginlega yfir
sig. „Ég vissi ekki að ég gæti sagt
nei, það var eins og einhver hleypti
af byssu og ég bara hélt áfram að
hlaupa þar til ég missti alla löngun
til að vinna.“
Lá í dvala
Paltrow Dró sig í hlé
en sést nú aftur víða.