Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Í NÝRRI könnun Gallup fyrir
Morgunblaðið og RÚV á fylgi við
stjórnmálaflokka er áberandi mun
minna fylgi lágtekju- og milli-
tekjufólks við Sjálfstæðisflokkinn en
í öðrum tekjuhópum. Hið sama má
segja um Framsóknarflokkinn en
dreifingin er jafnari eftir tekjuhóp-
um í stuðningi við aðra flokka.
Ef litið er á niðurstöður fyrri
kannanna Gallup sést að fylgi há-
tekjufólks hefur í auknum mæli
færst frá Sjálfstæðisflokknum yfir í
aðra flokka, einkum Samfylkinguna.
Í könnun Gallup fyrir þremur vik-
um sögðust 42,6% þeirra sem eru
með meira en 800 þúsund krónur í
fjölskyldutekjur ætla að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn. Viku síðar fór hlut-
fallið niður í 39,3% og núna er hlut-
fallið í 33,5%. Á sama tíma hefur
fylgi þessa tekjuhóps við Samfylk-
inguna farið úr 25% vikuna 4. til 10.
mars í 31% í könnuninni nú, sem
gerð var dagana 18. til 25. mars.
Þess bera að geta að á þessum
þremur vikum hefur fylgi við Sjálf-
stæðisflokkinn minnkað en fylgi
Samfylkingarinnar lítið breyst.
Aðeins er marktækur munur milli
tekjuhópa í fylgi við tvo flokka, þ.e.
Framsóknarflokk og Sjálfstæð-
isflokk. Minnst er fylgi þeirra sem
ætla að kjósa Framsókn sem eru
með 550 til 799 þúsund krónur í fjöl-
skyldutekjur á mánuði, eða 7,2%, á
meðan flestir stuðningsmenn flokks-
ins eru í tekjuhópnum 250 til 399
þúsund krónur (20,2%).
Tekjulægstir kjósa VG
Rúm 13% þeirra sem hafa lægri
en 250 þúsund króna tekjur á heim-
ilinu ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn, sem er nokkru minna en hefur
verið í fyrri könnunum Gallup. Hjá
þeim sem hafa 550-799 þúsund
króna fjölskyldutekjur ætla 17,6%
að kjósa flokkinn.
Mest fylgi hafa Vinstri grænir
meðal þeirra tekjulægstu, eða
33,5%, og 30,7% meðal tekjuhópsins
með 550-799 þúsund kr. mán-
aðartekjur á heimilinu. Í þeim hópi
sögðust flestir ætla að kjósa Sam-
fylkinguna, eða 37,4%.
Einar Mar Þórðarson stjórnmála-
fræðingur segir sjálfstæðismenn
jafnan hafa haft yfirburðafylgi með-
al hátekjufólks en könnunin gefi vís-
bendingar um að það sé eitthvað að
breytast. Erfitt sé þó að fullyrða
meira þar sem könnun Gallup sýni
aðeins fjölskyldutekjur, ekki tekjur
einstaklinga.
Tekjuháir færa sig um set
Fara frá Sjálfstæð-
isflokknum til
Samfylkingarinnar
! "# $ %!
&%
&%
%
%
%
%'
(
)
+
*
,
,
!
"
,
#
,
$
"
%
"
,
&
%
"
"
%
,
,, , , ,,
Einar Mar Þórð-
arson segir
könnun Gallup
sýna merkilega
breytingu á
fylgi meðal
kynjanna. Svo
virðist sem
karlar séu að
yfirgefa Sjálf-
stæðisflokkinn
og halla sér til
vinstri í stjórnmálum. Hann segir
merkjanlega breytingu hafa orðið
sé miðað við síðustu þingkosn-
ingar árið 2007.
Könnunin nú sýnir að álíka
margir karlar og konur ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða um
24% hjá hvoru kyni fyrir sig. Í síð-
ustu könnun voru hlutföllin 32%
hjá körlum og 21% hjá konum.
Einar bendir á að fylgi Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar
meðal kvenna hafi minnkað, um
leið og fleiri karlar segjast ætla að
kjósa þessa flokka en áður. „Fylgi-
saukning VG í síðustu kosningum
um fimm prósent kom aðallega frá
konum en núna er tiltölulega lítill
munur á kynjunum hjá þeim
flokki,“ segir Einar en 28% kvenna
ætla að kjósa VG og 25% karla.
Könnun Gallup sýnir marktækan
mun á fylgi við þrjár flokka eftir
kyni svarenda. Mun fleiri karlar en
konur segjast ætla að kjósa Fram-
sókn og Borgarahreyfinguna.
Karlar að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn
Einar Mar
Þórðarson
STEINGRÍMUR
J. Sigfússon,
sjávarútvegs- og
landbún-
aðarráðherra,
segist ekki vita
betur en að
frumvarp um
breytingar á bú-
vörulögum hafi
verið unnið í
samráði við af-
urðastöðvar og Mjólku þar á meðal.
Sé það ekki raunin þá hafi hann
ekki fengið réttar upplýsingar eða
Mjólku snúist hugur. Steingrímur
segir frumvarpið ekki fara í gegn-
um Alþingi nema í sátt við mjólk-
uriðnaðinn og aðra hlutaðeigendur.
„Af hálfu ríkisins er það sjón-
armið að þeir miklu fjármunir sem
fara í stuðning við þessa fram-
leiðslustarfsemi nýtist með skil-
virkum hætti. Heildarhagsmunir
mæltu með því að þessar breyt-
ingar yrðu gerðar,“ segir Stein-
grímur, sem reiknar með að farið
verði yfir málið á nýjan leik.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að frumvarpið hefur verið lagt til
hliðar en til stóð að sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefnd flytti málið.
Meðal ákvæða frumvarpsins var að
sekta skyldi þær afurðastöðvar sem
taka við mjólk frá framleiðendum
sem ekki hafa mjólkurkvóta. Telur
Mjólka að frumvarpinu hafi verið
stefnt gegn fyrirtækinu og alls ekki
unnið í samráði við það. bjb@mbl.is
Frumvarp ekki í
gegn nema í sátt
Steingrímur J.
Sigfússon
Röng staðsetning
Reykjavíkurapóteks
Ranghermt var í frétt í blaðinu í gær
að Reykjavíkurapótek hefði staðið
við Austurvöll þar sem nú er
skemmtistaðurinn Nasa. Hið rétta
er að apótekið stóð við Thorvaldsen-
stræti 6, þar sem Landsímahúsið
stendur nú. Í viðbyggingu, sem reist
var 1881, norðan við húsið, voru sett-
ar upp tvær eirstyttur eftir Bertel
Thorvaldsen af hellensku goðunum
Asklepíósi lækningaguði og Hebe,
gyðju eilífrar æsku. Neðan við stytt-
urnar eru lágmyndir tvær, Dagur og
Nótt, einnig eftir Thorvaldsen. Settu
þessi listaverk mikinn svip á húsið.
Húsið var rifið laust eftir 1960 segir í
bók Páls Líndals, Reykjavík, sögu-
staður við Sund.
Þess má geta að nokkrir eldri
Reykvíkingar höfðu samband við
blaðið í gær og bentu á þessa villu í
fréttinni. Er beðist velvirðingar á
henni.
LEIÐRÉTT
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÞEIR sem ímynd Íslands erlendis
skiptir mestu hafa nú stóraukið sam-
starf sitt í kynningar- og markaðs-
málum. Útflutningsráð, Ferða-
málastofa og utanríkisráðuneytið
gerðu á fimmtudag með sér sam-
komulag þess efnis. Össur Skarphéð-
insson iðnaðar- og ferðamála-
ráðherra tilkynnti á aðalfundi
Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) í
gær, að samkomulagið væri und-
anfari nýrrar stofnunar, Íslands-
stofu, sem frá og með 2010 muni sjá
um opinbera landkynningu og mark-
aðsstarf erlendis. Hann hefur lagt
fram frumvarp um Íslandsstofu í rík-
isstjórn.
Með Íslandsstofu á að tryggja að
stærstu aðilarnir í landkynningar- og
markaðsstarfi erlendis, Ferða-
málastofa, Útflutningsráð og utan-
ríkisþjónustan, vinni saman sem einn
maður, að sögn Össurar. Einnig er
gert ráð fyrir að starfið á vettvangi
Íslandsstofu standi stofnunum í
menningarkynningu opið.
Samlegðaráhrif
„Með því að setja þessi verkefni
undir einn hatt geta þau stutt hvert
annað vegna þess að hjá Íslandsstofu
verður öll stoðþjónusta á einum stað.
Jafnframt er tryggt að skilaboðin frá
Íslandi séu samræmd og hnitmiðuð
eins og kallað hefur verið eftir um
árabil,“ sagði Össur.
Árni Gunnarsson, formaður SAF,
lýsti einnig ánægju sinni. „Lít ég svo
á að um háls allra sendiherra Ís-
lands, starfsmanna þeirra og útflutn-
ingsráðs auk að sjálfsögðu starfs-
manna Ferðamálastofu sé búið að
hengja ábyrgð á markaðssetningu
Íslands sem ferðamannalands,“
sagði hann.
Í efnahagsmálum sagði Árni þó að
umgjörðin sem ferðaþjónustunni
væri sköpuð væri langt í frá ásætt-
anleg. Breytingar á yfirstjórn Seðla-
bankans hefðu verið fyrirferð-
armiklar en ekki skilað breyttri
stefnu. „Stýrivextir í landinu eru allt-
of háir og þýðir ekki endalaust að
horfa í baksýnisspegilinn við ákvörð-
un þeirra, hér verða menn að hafa
kjark til að líta fram á veginn og
lækka stýrivexti verulega.“
Engin þjónusta á versta tíma
Uppbygging bankanna tekur líka
of langan tíma að mati Árna sem
sagði þjónustu við fyrirtækin óvið-
unandi. Á þessum árstíma yrðu fyr-
irtæki í ferðaþjónustu að geta treyst
á fyrirgreiðslu í bönkum. „Aðal-
tekjumyndun flestra fyrirtækja er
framundan og því nauðsynlegt að
tryggja að eðlilegur rekstur geti
gengið þessar vikurnar þannig að há-
mörkun tekna þeirra á næstu mán-
uðum verði að veruleika.“ Hann
hvatti líka til afnáms gjaldeyrishafta.
Steininn tæki úr þegar því væri
fleygt að best væri að eiga vini á rétt-
um stöðum til að fá undanþágur frá
höftunum í Seðlabankanum. „Sýnir
það best fáránleika þessara hafta.“
Íslandsstofa í burðarliðnum
Sameinað átak undir einum hatti í landkynningar- og markaðsstarfi erlendis
Lægri vexti, höftin burt og bankar fari aftur að þjónusta ferðamannaiðnaðinn
Árni
Gunnarsson
Össur
Skarphéðinsson