Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 39
Skák 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009 23. REYKJAVÍKURSKÁKMÓT- IÐ sem hófst í Listasafni Reykjavík- ur sl. þriðjudag markar þau tímamót að nú er þessi atburður orðinn árleg- ur, en frá fyrsta mótinu 1964 var það haldið taktfast á tveggja ára fresti þar til nú. Reykjavíkurskákmótið er eftir því sem næst verður komist elsti reglulega alþjóðlegi viðburðinn sem tengist nafni höfuðborgarinnar. Ljóst er að þeir sem stóðu að fyrsta mótinu í Lídó snemma árs 1964 með „töframanninn frá Riga“ Mikhael Tal í broddi fylkingar voru langt á undan sinni samtíð en stutt er í 50 ára afmælið. Fyrstu mótin voru haldin í einum lokuðum flokki en árið 1982 var fyrsta Opna Reykjavíkur- mótið haldið og hefur það fyrirkomu- lag haldist síðan með einni undan- tekningu. Opnu mótin hafa margoft dregið til sín ýmsa öflugustu ská- menn heims en meðal keppenda síð- an 1982 hafa verið Mikhael Tal, Efim Geller, Lev Aronjan, Viktor Korts- noj, Nigel Short, Alexei Dreev, Magnús Carlsen, Jan Timman, Oleg Romanishin, Polgar-systur, Yasser Seirawan. Samuel Reshevsky, Tony Miles, Lev Pulgajevskí og Gata Kamsky svo nokkrir séu nefndir. Engin sérstök áhersla er í gangi nú að draga til mótsins nafntogaða skákmenn. Alls er keppendur 110 talsins og eru tefldar níu umferðir sem er helst til lítið og fremur ólík- legt að einhver einn nái að slíta sig frá öðrum keppendum. Fram- kvæmdin er til mikillar fyrirmyndar. Salarkynni Listasafnsins með sitt hráa „New York-yfirbragð“ mynda skemmtilega umgjörð um mótshald- ið og heimasíðan sem Snorri G. Bergsson hefur mótað er afar skil- virk. Þó skyggir á hið fullkomna áhugaleysi flestra fjölmiðla þannig að jaðrar við þöggun. Af hverju mótshaldið og skákin almennt þarf að búa við þetta ástand er óútskýrt. Eftir þriðju umferð sem lauk á fimmtudaginn er fimm skákmenn efstir með 3 vinninga. Íslensku stór- meistararnir eru nokkrir í námunda við toppinn: Hannes, Héðinn og Henrik Danielssen eru allir með 2½ vinning. Af yngri skákmönnunum hafa þeir Sverrir Þorgeirsson, Helgi Brynjarsson og Hjörvar Steinn Grétarsson allir staðið sig vel. Stað- an efstu manna eftir þriðju umferð: 1.-5. Sebastien Maze (Frakkland), Manuel Hoyos Leon (Mexíkó), Stu- art Conquest (England), Daniele Vocatura (Ítalía) og Mikhailo Oleksienko (Úkraína) 3 v. 6.-18. Júrí Shulman (Bandaríkin), Héðinn Steingrímsson, Henrik Danielssen, Luis Galego (Portúgal), Nils Grandelius (Svíþjóð), Michael Mesz- aros (Slóavkía), Robert Ris (Hol- land), Alexander Areshchenko (Úkraína), Sebastian Siebrecht (Þýskaland), Júrí Kryvoruchko (Úkraína), Mikhael Marin (Rúm- enía), Fabien Guilleux (Frakkland) og Hannes Hlífar Stefánsson 2½ v. Meðal þeirra sem eru með 2 vinninga eru Þröstur Þórhallsson, Björn og Bragi Þorfinnssynir, Guðmundur Kjartansson, Hjörvar Steinn Grét- arsson, Ingvar Þ. Jóhannesson, Þor- steinn Þorsteinsson, Lenka Ptacni- kova, Stefán Kristjánsson og Erlingur Þorsteinsson. Svíinn Tiger Hillarp Persson hef- ur margsinnis teflt hér a landi og hefur verið í mikilli uppsveiflu und- anfarið. Þess vegna er lítil hætta á því í framtíðinni að hann verði ein- göngu bendlaður við eftirfarandi skák. Ítalinn Daniele Vocatura hlýt- ur að hafa teflt skák lífs síns á fimmtudaginn. Margir sem fylgdust með þessari skák voru sem þrumu lostnir yfir tilþrifunum. Andi Tals hefur oft svifið yfir vötnum á Reykjavíkurmótunum og þá ekkert endilega meðal þekktustu skák- mannanna. Tal hefði verið fullsæmd- ur af skákinni: Reykjavíkurskákmótið; 3. umferð: Daniele Vocatura – Tiger Hillarp Persson Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 Bxc3 6. bxc3 Re7 7. h4 Rbc6 8. h5 Da5 9. Bd2 Bd7 10. h6 gxh6 11. Hb1 O-O-O 12. Hb5 Dxa3 Hér hefur áður verið leikið 12. … Da4 með hugmyndinni 13. gxc5 b6 ásamt – Ra5 við tækifæri. 13. Hxc5 a6 14. Db1 Kc7 15. c4 b6 16. cxd5 bxc5 17. d6+ Kc8 18. Hh3 Da4 19. Hb3 Rd5 Í fyrstu hélt ég 19. … c4 væri end- urbót með hugmyndinni 20. Hb7 Rd5 o.s.frv. en hvítur heldur öllu gangandi með 20. Hc3! t.d. 20. … Db4 21. Da2 eða 21. … Db5 22. Da1! o.s.frv. 20. dxc5 Hdg8? Reynir að rýma fyrir hróknum. Best var 20. … De4+! 21. Kd1 Da4+ og skákinni gæti lokið með jafntefli. Tiger fær ekki annað tækifæri. 21. c4 Rde7 22. Re2! Mögnuð staða. Hvítur er hrók undir en undirbýr að koma mönnum sínum í spilið í mestu rólegheitum. 22. … Dxc4 23. Rc3 Dxc5 24. Re4 Dxe5 25. dxe7! Ítalinn velur rétta augnablikið til að hirða riddarann. Hann var þegar búinn að sjá hinn magnaða 26. leik. 25. … Rxe7 26. Hb8+!! Tær snilld. 26. … Dxb8 27. Bxa6+ Kc7 28. Ba5+ Kc6 29. Dc2+ Svarti kóngurinn hrekst nú alla leið til h5. 29. … Kd5 30. Dd3+ Ke5 31. Bc3+ Kf5 32. Rd6+ Kg5 33. Dg3+ Kh5 34. Be2+ Hg4 35. Dxg4 mát. Hver er þessi Daniele Vocaturo? SKÁK Listasafni Reykjavíkur Glæsileg taflmennska á 23. Reykjavík- urskákmótinu Morgunblaðið/Ómar Í þungum þönkum Kristján Örn Elíasson og Hallgerður Helga Þorsteins- dóttir að tafli á Reykjavíkurskákmótinu. Helgi Ólafsson | helol@simnet.is nýjar vörur komnar í hús Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Vorið í Búdapest 23. apríl Verð frá kr. 49.000 Flug og gisting Örfá herbergi í boði - fyrstur kemur fyrstur fær! Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á allra síðustu sætunum í helgarferð til Búdapest 23. apríl. Búdapest er ein fegursta borg Evrópu og á vorin skartar hún sínu fegursta og þá er einstakur tími til að heimsækja borgina. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri gestrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Bjóðum örfá herbergi á völdum gististöðum á frábærum sértilboðum. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Verð frá kr. 49.990 - Helgarferð Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Platanus *** með morgunmat. Aukagjald fyrir einbýli kr. 10.000. Sértilboð 23. apríl. Gisting á Hotel Tulip Inn *** kr. 4.000 auka- lega. Aukagjald fyrir einbýli kr. 10.000. Sértilboð 23. apríl. Gisting á Hotel Promenade ***+ kr. 10.000 aukalega. Aukagjald fyrir einbýli kr. 13.000. Sértilboð 23. apríl. Gisting á Hotel Novotel Centrum **** kr. 14.000 aukalega. Aukagjald fyrir einbýli kr. 13.000. Sértilboð 23. apríl. Hotel Platanus *** Hotel Tulip Inn Millenium *** Hotel Promenade ***+ Hotel Novotel Centrum **** Ótrúleg sértilboð! Þriggja nátta helgarferð á einstökum tíma!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.