Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 25
Fréttir 25ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 44 54 60 03 /0 9 FERÐAÆVINTÝRI Í FERMINGARGJÖF // Mikið úrval af svefnpokum Verð frá 9.990 kr. Landsins mesta úrval af bakpokum // Dagpokar Verð frá 5.990 kr. // Stærri bakpokar Verð frá 12.990 kr. // Tjöld Verð frá 8.990 kr. Sjónaukar, göngustafir, áttavitar og margt fleira BARACK Obama, forseti Banda- ríkjanna, hét því í gær að uppræta hryðjuverkamenn, sem hefðu kom- ið sér fyrir í Pakistan. Sagði hann, að upplýsingar bentu til, að þeir væru þar að skipuleggja stórárás á Bandaríkin. Obama sagði, að pakistönsku landamærahéruðin næst Afganist- an væru einhver „hættulegasti staður í heimi“ fyrir Bandaríkja- menn og lýsti al-Qaeda-hryðju- verkasamtökunum sem „krabba- meini“, sem gæti gleypt Pakistan. Obama ætlar að fjölga í banda- ríska herliðinu í Afganistan og er stefnt að því, að í því verði um 65.000 manns í september næst- komandi. Þá ætlar hann að stór- auka stuðning við afganska stjórn- arherinn og er ráð fyrir því gert, að hann skipi 134.000 menn. Obama sagði einnig, að rætt yrði við Kínverja, Indverja og jafnvel Ír- ani um Afganistan og vandamálin þar. svs@mbl.is Vill herða róðurinn í Afganistan Al-Qaeda sögð undirbúa stórárás Reuters Stefnan Obama ásamt Clinton er hann kynnti áform sín í Afganistan. AÐ minnsta kosti 60 manns fórust er stífla brast í Jakarta, höfuðborg Indónesíu. Varð slysið í dagrenningu er flestir voru enn í fastasvefni og gátu því ekki forðað sér undan flaumnum, sem eyðilagði hundruð húsa. Björgunarmenn unnu að því í gær að leita að og bjarga fólki, sem var fast undir braki úr húsunum, en víða var flóðhæðin allt að sex metrar. Er óttast, að tala látinna eigi eftir að hækka enda var margra saknað. Áætlað var, að 500 hús hefðu eyði- lagst eða skemmst er flóðbylgjan lenti á þeim en mikið hefur rignt á þessum slóðum síðustu daga. Bendir flest til, að stíflan hafi ekki verið nógu traust en í henni var aðeins jarðvegur, sem hafði verið hrófað upp á nýlendutíma Hollendinga snemma á síðustu öld. Hélt hún í skefjum tveimur milljónum rúm- metra af vatni. Stjórnvöld heita hjálp Jusuf Kalla, varaforseti Indóne- síu, og Aburizal Bakrie félagsmála- ráðherra komu strax á staðinn og fylgdust með björgunaraðgerðum og sagt var, að Susilo Bambang Yudho- yono forseti ætlaði að gera hlé á kosningabaráttu sinni og kynna sér aðstæður. Var haft eftir Kalla, að fólk fengi bætur og hjálp við að byggja upp heimili sín á ný. Stórslys er stífla brast Reuters Eyðilegging Hluti af íbúðahverfinu eftir að flóðið skall á því. Tugir manna fórust í Jakarta í Indónesíu er vatnsflaumurinn eyðilagði hundruð húsa er flestir voru enn í fastasvefni ÁRÓÐURINN fyrir hollustu og heilbrigði er orðinn svo mikill, að hann er farinn að leggjast á sálina í sumum börnum. Ýmis algengur matur er orðinn að hálfgerðu eitri í þeirra augum og afleiðingin er innri togstreita og andleg vanlíðan. „Salt hækkar blóðþrýsting og veldur alvarlegum sjúkdómum,“ sagði Greye, átta ára drengur, í við- talið við New York Times en hann hefur ekki bara áhyggjur af saltinu. Hann telur ofan í sig hitaeiningar og spáir mikið í hvort hann fái nóg af vítamínum. Með þetta er móðir hans mjög ánægð enda er hún hollustu- fíkill, eldar bara lífrænan mat og næringartöflurnar hanga um allt. Bandarískir læknar eru nú farnir að vara fólk við þessum öfgum. Mæla þeir með hollum mat en segja, að allt að því sjúklegur ótti við sum matvæli geti haft slæmar, andlegar afleiðingar fyrir börnin og beinlínis stuðlað að sjúkdómum. Hollustuþrá- hyggja bitn- ar á börnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.