Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 29
Daglegt líf 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir vandaðar fréttir á mbl.is – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Blaðaljósmyndarafélag Íslands verðlaunar fyrir bestu ljósmyndir ársins. Starfsfólk Morgunblaðsins hefur þannig fengið meirihluta af þeim fagverðlaunum sem veitt eru á Íslandi fyrir síðasta ár. Morgunblaðið og mbl.is eru stolt af sínu fólki og óska hjartanlega til hamingju með verðlaunin. Halldór Baldursson Aðalverðlaun FÍT, Félags íslenskra teiknara og myndskreytiverðlaun FÍT fyrir Kreppuna, hárbeittar ádeilur á heimsmælikvarða. tvær stúlkur verða skotnar í sama stráknum og einhverjir komast ekki inn. Ekki vill Bjartmar viðurkenna að persónurnar eigi sér fyrirmyndir í sveitinni, ekki beint. Hins vegar sé ef til vill hægt að sjá einhverja þætti í fari fólks. „Þeir sem hafa unnið við sýninguna hafa margir þóst sjá hverjir þetta væru, en niðurstaðan hefur oft verið kolvitlaus,“ segir Bjartmar og bætir því við seinna að allir ættu að geta fundið þarna fyr- irmyndir, meira að segja Skagfirð- ingar. Bjartmar hefur áhuga á að svara eigin spurningu um boðskap verks- ins: „Það er helst að reynt sé að kafa ofan í sálarlíf drukkins hestamanns, en til að komast að niðurstöðu þarf meiri tíma og meiri rannsóknir,“ segir hann. „Þetta er fyrst og fremst til að hafa gaman af, ef einhver getur hlegið þá er tilganginum náð.“ Verða líka að geta sungið Leikdeild UMFR var með áætl- anir um að taka til sýninga leikrit sem sérstaklega er samið fyrir hana en það frestaðist svo ákveðið var að kýla á söngleik. „Það er erfitt að setja upp söngleik. Gerðar eru aðrar kröfur en venjulega – menn verða líka að geta sungið og svo má enginn veikjast,“ segir Jón Pétursson, garð- yrkjubóndi í Björk, sem leikur Guð- mund húsvörð og leikstýrir verkinu ásamt Steinunni Garðarsdóttur. Jón segir að ágætlega hafi gengið að manna hlutverk og hljómsveit en til þess hafi orðið að fá fólk að láni víða í héraðinu. Nemendur Kleppjárns- reykjaskóla dansa undir lögunum. Bræðurnir frá Geirshlíð íFlókadal, Jón, Guð-mundur og Pétur Pét- urssynir, leika stór hlutverk og syngja mikið í Töðugjaldaball- inu, eins og oft áður á sýn- ingum leikdeildarinnar. Jón hefur verið þar einn af burðar- ásunum í áratugi, þótt hann eigi langt í land með að ná Ármanni Bjarnasyni á Kjalvararstöðum, Steinunni Garðarsdóttur á Grímsstöðum og Þorvaldi Jóns- syni í Brekkukoti sem hófu leik- feril sinn 1966, í Skugga-Sveini. Bræðurnir tóku þátt 100 ára afmælissýningu leikfélagsins á síðasta ári, „Þið munuð hann Jörund“. Mikið púður fór í þá uppfærslu og segir Pétur að erfitt hafi verið að ná sér af stað í vetur. „Það er gaman að hafa heimafengið efni. Ég er bara með út af því,“ segir Pétur og getur þess að hann hafi allt- af verið aðdáandi gamanvísna Bjartmars. „Hann er líka æsku- vinur okkar úr Flókadalnum og hefur ort um okkur eins og fleiri og flutt á samkomum,“ bætir Jón við. „Það er skemmtilegt að taka þátt í þessu, þótt það sé krefj- andi í tíma,“ segir Guðmundur og bætir því við að það sé ástæðan fyrir því að hann sé með, enn eitt árið. „Textinn er skemmtilegur og þá er alltaf gaman að leika,“ segir Jón. Guðmundur leikur fulla hestamanninn, Sveinbjörn G. Hjaltalín, og Pétur er í hlut- verki Ísleifs Johnsen dyravarð- ar, steratrölls sem ættað er úr Vestmannaeyjum, eins og ætt- arnafnið gefur til kynna. Bræð- urnir eru saman á sviðinu þeg- ar hestamaðurinn kemur á ballið og þeir þurfa því að eiga allnokkur samskipti. Guð- mundur húsvörður og Ísleifur dyravörður eiga þó ekki í neinu basli með drukkna hestamann- inn. Hefur líka ort um okkur Bjartmar Hannesson hefur samið og sungið gam- anvísur um sveitunga sína á þorrablótum og öðrum samkomum í yfir þrjátíu ár og efni eftir hann hefur komið út á hljómdiskum. Áætlar Bjartmar að hann hafi samið um 700 gamanbragi um ævina. Hafsteinn Þórisson hefur lengi spilað í hljóm- sveitum, meðal annars á sveitaböllum og þekkir því umhverfið vel. Hann hefur ekki gefið út lög sín. „Það er aldrei að vita hvað gerist núna, þegar ég er kominn á skrið, ekki síst þegar maður kemst í svona góða texta,“ segir Hafsteinn. Samið 700 gamanbragi Bjartmar Hannesson BÖRN, sem raða í sig sætindunum, hlaupa í spik og eyðileggja í sér tennurnar. Um það efast enginn en nú hafa læknar fundið út hve stór skammturinn má vera án þess að valda börnunum tjóni. Danska hollustueftirlitið hefur gefið foreldrum góð ráð um syk- urneysluna. Lifi börnin almennt heilbrigðu lífi og hreyfi sig að minnsta kosti í klukkustund dag- lega, þá eru reglurnar þessar: Ekki skal gefa börnum innan þriggja ára aldurs nein sætindi eða sæta drykki. Börn á aldrinum 3-6 ára mega aðeins fá fjórðung úr lítra af gosi eða ávaxtasafa vikulega. Börn á aldrinum 7-15 mega fá hálfan lítra af gosi eða safa viku- lega. Mikill sykur í gosi Mikill sykur er í gosi og raunar flestum ávaxtasafa líka. Í hálfum lítra er um að ræða 25 sykurmola, hvorki meira né minna. Fyrir utan sykurinn er margt hollt við ávaxtasafann en á móti kemur, að í honum er sýra, sem skemmir tennurnar. Eins og gos- og safaþambið er á mörgum börn- um má því segja, að tennurnar séu í stanslausu sýrubaði. Þess vegna er þeim ráðlagt að skola munninn með vatni eftir slíka drykkju. Morgunblaðið/G.Rúnar Gosdrykkir Mikill sykur er í flestum gosdrykkjum. Danska hollustueftirlitið ráðleggur 7-15 ára krökkum að drekka einungis hálfan lítra af gosi á viku. Vilja minni sykur- skammta fyrir börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.