Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 35
Umræðan 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
Bindindissamtökin
IOGT á Íslandi bjóða
öllum landslýð gleðiríkt
ár og þakka margar
góðar og hlýjar kveðjur
á árinu liðna, sér-
staklega góðar greinar
sem fjölluðu um áfeng-
ismál af skynsemi og
raunsæi sem lögðu
þannig málstað okkar
ómetanlegt lið. Það var
einkar ánægjulegt hve þeim röddum
fjölgaði sem vöruðu við áfengissölu í
matvörubúðum og mæltu af einurð
gegn hinum ólöglegu áfengisauglýs-
ingum. Við fögnum þessu svo sann-
arlega og í hug okkar djarfar vissu-
lega fyrir ákveðinni von um betri tíð í
baráttu okkar gegn vágesti vímu-
nnar.
Lítil fregn í Morgunblaðinu vakti
hins vegar ugg, ekki sízt í ljósi þess
þjóðfélagsástands sem nú ríkir því
miður og þeirrar spár margra, að á
erfiðum krepputímum sæki fólk í erf-
iðleikum sínum enn frekar en endra-
nær í vímuefni hvers konar.
En fregnin var um þá gífurlegu só-
un fjármuna sem í því fólst að ÁTVR
hefði selt áfengi á liðnu ári fyrir 17,8
milljarða króna. Ég staldraði óneit-
anlega við þessa ofurháu tölu, þó
vissulega höfum við heyrt svimháar
tölur þeirra gírugu gamma sem sett
hafa samfélagið á hvolf með æv-
intýralegri ofurgræðgi sinni. Vissu-
lega eru sóunartölurnar svo víða
svimandi háar, en þetta versnaði þó
enn þegar með fylgdi í
fregninni að salan hefði
aukist frá fyrra ári um
4,2 % í lítrum talið og
vorum við þó komin
skelfilega hátt í neyzlu
fyrir. Og auðvitað fylgir
með að hinn „sárasak-
lausi“ bjór vegi lang-
þyngst í neyzlunni. Það
kemur ekki á óvart og
fer saman við það sem
við bindindismenn sögð-
um á sínum tíma, þó
aukningin í heild í
áfengismagni hafi rokið lengst fram
úr því sem við töldum í svartsýni okk-
ar og andstöðu við bjórinn. Ég er
nefnilega óþreytandi í því að minna á
þær röksemdir bjórsinna á sinni tíð,
að lögleiðing bjórsins myndi hafa þau
áhrif að heildarneyzlan í áfeng-
ismagni myndi dragast saman auk
annarra jákvæðra áhrifa sem áttu af
að verða, en engin hafa komið fram.
Gjarnan hefði ég viljað að við bind-
indismenn hefðum ekki haft svo
óskaplega rétt fyrir okkur eins og
raunin hefur orðið.
Ég átti tal við kunningja minn á
dögunum um þessa milljarða sem
þannig hefði verið sólundað, mann
sem aðhyllist hið óhefta frelsi í öllu, og
hann sagði einfaldlega þetta: Og hvað
með það, þetta er bara það sem fólkið
vill og það á að hafa frelsi til að fara
með sína fjármuni eins og því sýnist.
Ég vék í allri hógværð að því, hvort
hann héldi í raun að sá sem hefur
ánetjast fíkninni vildi innst inni sóa
fjármunum sínum á þennan veg og úr
því hann héldi því fram, að þetta gerði
fólk af fúsum og frjálsum vilja, hvers
vegna svo margir legðu þá leið sína í
meðferð til að losna undan þessum að
hans sögn einlæga vilja sínum. Hann
sagði einfaldlega að þetta fólk væri
ekki marktækt, það hefði komið óorði
á brennivínið eins og einu sinni var
sagt. Ég setti athugasemd hans við
orðum mínum í fyrirsögn þessa
greinarkorns sem lýsandi dæmi um
hið kalda kæruleysi um annarra vel-
ferð sem einkennir of oft frelsispost-
ulana. Það fólk sem verður fyrir
barðinu á áfenginu með svo hörmu-
legum afleiðingum er einfaldlega
„ekki marktækt“, það segja einmitt
þeir sem lofsyngja neyzluna og loka
augunum fyrir öllum afeiðingum! Því
skyldi þá líka til haga haldið að það er
ekki bara það fólk sem missir fótanna
í áfengishálkunni sem fyrir óham-
ingjunni verður, þar er einnig um að
ræða hinn ómælda fjölda sem að því
stendur.
Skuggahliðar sóunarinnar eru
nefnilega ótaldar og því er baráttan
gegn áfengisneyzlunni svo sann-
arlega af því góða. Henni eiga von-
andi sem flestir að leggja lið.
Nær 18 milljarða sóun –
og hvað með það?
Helgi Seljan skrifar
um áfengismál » Skuggahliðar sóun-
arinnar eru nefni-
lega ótaldar og því er
baráttan gegn áfeng-
isneyzlunni svo sann-
arlega af því góða.
Helgi Seljan
Höfundur er form. fjölmiðlanefndar
IOGT.
MÉR SÁRNAR
fyrir hönd frænda
okkar Íra það viðhorf
Flosa Eiríkssonar,
bæjarfulltrúa Sam-
fylkingarinnar í bæj-
arstjórn Kópavogs, til
menningar þeirra sem
fram kemur í Morg-
unblaðsgrein en þar
segir hann að ég hafi
verið á Írlandi að
kynna mér „írska pöbba og aðra
menningu þarlendra“.
Ég á von á því að írskir menn-
ingardagar í Kópavogi, sem flokk-
urinn hans Flosa tók þátt í að fela
mér sem framkvæmdastjóra bæj-
arins að undirbúa og koma í verk,
muni víkka sjóndeildarhring hans.
Á þriggja daga ferð minni til Ír-
lands, í sameiginlegu umboði allr-
ar bæjarstjórnar Kópavogs, var
lagður grunnur að tónleikum á sí-
gildum, þjóðlegum og nýstár-
legum nótum, málverka- og ljós-
myndasýningu sem sýnir
framþróun þjóðar, leiklist-
arviðburði sem byggir á skáld-
verkum Becketts, að sjálfsögðu ri-
verdanssýningu,
kvikmyndasýningum og ýmsum
fleiri atburðum á grundvelli sögu,
menningarlegra tengsla og list-
sköpunar. Ég verð samt að
hryggja félaga Flosa með því að
tíminn var of knappur
til þess að ég gæti
kynnt mér pöbbana
að neinu gagni en
mér er sagt að þeir
íslensku gefi þeim
ekkert eftir.
Við þurfum að þola
samdrátt á öllum
sviðum, líka menning-
arsviðinu, þótt Flosi
geri lítið úr því en
þeim mun meira úr
1,2% hagræðingu í
rekstri grunnskól-
anna. 1,2% þykir ekki mikill nið-
urskurður eins og árar um þessar
mundir. Með hliðsjón af þessu
væri kannski ekki úr vegi að Flosi
sinnti betur launuðum störfum
sínum sem bæjarfulltrúi. Hann
gæti fylgt skrifum sínum í Morg-
unblaðið eftir inni í bæjarstjórn
með því að leggja til að menning-
arstarfsemi í Kópavogi verði hætt
af efnahagsástæðum.
Menning lítilsvirt
Gunnar I.
Birgisson svarar
Flosa Eiríkssyni
»Með hliðsjón af
þessu væri
kannski ekki úr vegi
að Flosi Eiríksson
sinnti betur launuðum
störfum sínum sem
bæjarfulltrúi.
Gunnar I. Birgisson
Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi.
Þarfir íslenskra fjölskyldna eru mismunandi. Þess vegna fæst vinsælasta fjölskyldu-
tryggingin í nokkrum útgáfum. Eftir því sem heimilið stækkar og áhugamálin breytast velur
þú þá vernd sem hentar þér best innan F plús trygginganna.
Þess vegna er F plús vinsælasta fjölskyldutryggingin á Íslandi.
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
Vinsælasta íslenska
fjölskyldutryggingin
www.veggfodur.is