Morgunblaðið - 28.03.2009, Page 49

Morgunblaðið - 28.03.2009, Page 49
Velvakandi 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ER EKKI NÓGU ÓGNVEKJANDI ÞÚ HATAR MIG, ER ÞAÐ EKKI? ÞÚ HATAR MIG ÞVÍ ÞÚ VILDIR VERA EINKABARN! ÞEGAR ÉG FÆDDIST ÞÁ VARÐ DRAUMURINN ÞINN AÐ ENGU! ER ÞAÐ EKKI? HA? HA? ÉG HELD AÐ ÞAÐ VÆRI ALLS EKKI SLÆMT AÐ VERA EINKABARN ÉG REYNI AÐ LIFA FYRIR AUGNABLIKIÐ MAÐUR VEIT ALDREI HVAÐ MAÐUR Á LANGT EFTIR! MAÐUR GÆTI STIGIÐ ÚT Á GÖTUNA Á MORGUN OG... BÚMM!... BEINT Í VEG FYRIR VÖRUBÍL! ÞÁ SÉR MAÐUR EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA EKKI HAFT MEIRA GAMAN AÐ LÍFINU ÉG LÍT TIL BEGGJA HLIÐA ÞESS VEGNA LIFI ÉG FYRIR AUGNABLIKIÐ. HVERNIG LIFIR ÞÚ? SYNGJUM DRYKKJUSÖNG VÍKINGANNA! ÉG GET ÞAÐ EKKI AF HVERJU EKKI? ÉG ER HÆTTUR AÐ DREKKA MARY POPPINS VAR HANDTEKIN Í MORGUN FYRIR AÐ SYNGJA Á ALMANNAFÆRI... OG DÓMARINN DÆMDI HANA Í GÆSLUVARÐHALD AF HVERJU? HANN SAGÐI AÐ HÚN ÆTTI SVO AUÐVELT MEÐ AÐ FLÝJA ÞESSI „BAÐ BONANZA“ KYNNING VAR ANSI ÁHUGAVERÐ EN ÞAÐ SÍÐASTA SEM MIG VANTAR ER EITTHVAÐ ÓÞARFA GLINGUR Á BAÐHERBERGIÐ MITT ÞAÐ GERA 15.233 kr. TEKUR ÞÚ KREDITKORT? ÞÚ VILT SEM SAGT EKKI SELJA SIMON KRANDIS BLAÐIÐ ÞITT? ÉG? SELJA? KEMUR EKKI TIL GREINA NEW YORK ÞARF Á MÉR AÐ HALDA ÉG FÆRI BORGINNI FRÉTTIRNAR OG SANNLEIKANN! OG LANGA RITSTJÓRA- PISTLA ÉG HEYRÐI ÞETTA! NÚ þegar dagarnir verða sífellt bjartari eru margir landsmenn farnir að huga að vorhreingerningum. Sverrir nýtti góðviðrisdag fyrir helgi og dytt- aði að bátnum sínum „Guðmundi rauða“ við höfnina í Kópavogi. Morgunblaðið/hag Guðmundur rauði færður í sparifötin Bítið á Bítlavaktinni BÍTIÐ á Bítlavaktinni, þ.e.a.s. taktur og tón- listariðkun, söngur, dans, taktfastur áslátt- ur á potta og pönnur og hvaðeina sem nærtæk- ast er. Þetta er allt saman mjög til bóta og bætir alla stemningu, hvar og hvenær sem er. Ég hef í greinum mínum hér áður í Morgunblaðinu minnst á hvað Íslendingar eru bæld þjóð nema á þriðja glasi eftir kvöld- mat á laugardögum. Ég er sjálfur bældur líkt og aðrir landar mínir en ég er að vinna í að bæta þá ímynd. Bubbi fór á sínum tíma með sínum mönnum til Kúbu að vinna plötu með þarlendum tónlist- armönnum. Og menn komnir frá Ís- landi undruðust hvað rytmi og lif- andi stemning væri ríkjandi almennt hjá fólkinu þarna hinum megin á hnettinum. Smáfólkið sem var ekki búið að læra „að feimni væri til“. En var búið að læra inn á rytmann áður en það var búið að ná tökum á tal- máli. En hvers vegna er ég að tala eins og heimsvanur maður, ég sem hef aldrei farið utan, allavega ekki ennþá? Já, því er ég með tilmæli um að fólk á Íslandi taki sig á í bældu bít-bleki? Blek þýðir hér tilvísun í blek til að skrifa og tjá sig með blek- penna á blað, í sínu bíti, á sínum hraða. – Að tjá sig á blaði ef ekki er fyrir hendi sjálfstraust til tjáningar upphátt í samtali við einhvern. – Ef viðkomandi er í örvæntingu að reyna að tjá sig, en það tekst ekki. Ein- staklingurinn er að reyna að tjá sig upphátt en röddin er mjög lág- stemmd, þvoglukennd og óskýr. En allir hafa sína kosti, hver og einn ein- asti einstaklingur. Það er spurning hvort einstaklingurinn vill vinna í sínum málum. Ég hef sjálfur oft verið í örvænt- ingu og hugsað um taka líf mitt, en því miður er alltaf kominn nýr dagur þegar maður vaknar að morgni. Eða ætti ég að umorða þetta: Sem betur fer kemur ætíð nýr dagur eftir hverja nótt. Dagur með ný tækifæri, nýjar áskoranir. En þetta erfiða mál, „áskoranir“, hefur oft verið versti óvinur manns. En það getur verið kostur að vinna upp sjálfstraustið með því að binda málið í stuðla: Áskorunin er ást, – þú hittir ekki, – finnur ekki ástina nema þurfa að takast á við áskorun fyrst. Þú sem ert í kvíðaástandi sem stefnir niður í örvænt- ingu mátt gjarnan reyna að hugsa um nokkur hugtök í spurn- ingum: Hvað, hvort, hvernig, hvar, hvenær, eða t.d. hversu mikið: Hvað gerir þú best? Hvort ætlarðu að gera það besta eða það versta? Það þarf gífurlegan kjark til að taka líf sitt. En hvernig væri frekar að gera það besta í stöðunni? Fara á fætur og út í göngutúr. – En þá sjá allir hvað ég er ömurleg/ur. Já, kannski sjá það allir, en það kemur engum við. Þú sem einstaklingur ert sig- urvegarinn í þínu líkamlega og and- lega lífi og mátt vera stolt/stoltur af þeim hæfileikum sem þú hefur, al- veg sama hverjir þeir eru. Að fara út í göngutúr og hugsa um þessa sig- urvegara þína og hvernig þú ætlar að vinna með þá: Hvort, hvað, hvern- ig, hvar, hvenær og hversu mikið. Að fara í bítið á Bítlavaktinni. Þegar áskoranir banka upp á er alltaf gott að berja bítið (taka lagið/tala um veðrið). Gangi þér vel að ganga Bítlavaktina. Atli Viðar Engilbertsson, fjöllistamaður. Týndur kisi KÖTTURINN Et týndist 19. mars síðastliðinn. Hann hvarf frá Með- albraut í vesturbæ Kópavogs. Vil ég biðja alla sem búa í nágreninu að kíkja í geymslur hjá sér og hafa aug- un með sér. Hann er mjög blíður og svarar nafni. Fundarlaun eru í boði fyrir demantinn minn. Upplýsingar eru vel þegnar í síma 848-7275. Gerður.     Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana nú-ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergi | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá kl. 9-16.30. Mánudag kl. 10.50 og miðvikudag kl. 9.50 er vatnsleikfimi í Breiðholtslaug. Þriðjudag og föstudag kl. 10.30 er staf- ganga um nágrennið. Mánudaginn 30. mars kl. 10.30 (breyttur tími) er fjöl- breytt leikfimi í umsjón Sigurðar R. Guðmundssonar. Hraunsel | Bókmenntaklúbbur föstu- daga kl. 10-12. Dansleikur 3. apríl kl. 20.30, Harmonikkufélag Suðurnesja leikur fyrir dansi. Sjá febh.is. Hæðargarður 31 | Kynningarfundur í salnum 1. apríl kl. 13 á vorferðinni í Borgarnes 20., 21. og 22. apríl. Soffíuhópur og Tungubrjótar flytja dag- skrá í Landnámssetrinu. Þórður Helga- son byrjar aftur með skapandi skrif kl. 16 á mánudag. Uppl. s. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ- landsskóla v/Víðigrund kl. 9.30. Uppl. í síma 564-1490, 554-5330 og 554- 2780.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.