Morgunblaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 54
Artika
Artika hefur verið starfandi í nokkur ár
og gengið í gegnum ýmsar mannabreyt-
ingar. Nú skipa sveitina gítarleikaranir Ein-
ar Logi Hreinsson og Örn Erlendsson,
söngvarinn Jóhannes Pálsson, trommuleik-
arinn Níels Adolf Svansson og bassaleik-
arinn Vignir Rafn Hilmarsson. Þeir eru víða
að af höfuðborgarsvæðinu og á aldrinum
átján ára til tvítugs.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Músíktilraunir hófust í gær í Íslensku óperunni ogþá hrepptu tvær hljómsveitir af tíu sæti í úrslitumsem haldin verða í næstu viku. Í kvöld glíma svoellefu hljómsveitir um tvö sæti til viðbótar, eitt
sem áheyrendur veita og annað sem dómnefnd úthlutar.
42 hljómsveitir taka þátt í tilraununum, víða að og í kvöld er
skiptingin nokkuð fjölbreytt; tvær hafnfirskar sveitir, ein frá
Akureyri, ein frá Skagaströnd, ein úr Borgarfjarðarsveit, eins
mosfellsk, ein hornfirsk og þrjár úr Reykjavík.
Keppt er í Íslensku óperunni og hefst fjörið kl. 19. stundvís-
lega.
Antares
Þeir Antares-félagar, Bjarni Friðrik Garð-
arsson, Andri Geir Jónasson, Níels Brimar Jóns-
son, Ottó Marvin Gunnarsson og Hafþór Smári
Imsland eru Hornfirðingar og spila metalcore í
bland with melódískt death-metal. Bjarni Frið-
rik syngur, Andri Geir og Níels leika á gítara,
Ottó Marvin á bassa og Hafþór Smári á tromm-
ur. Þeir eru á aldrinum sextán til átján ára.
Anti-feministar
Þeir félagar Elfar Þór Guðbjarts-
son, gítarleikari og söngvari, Almar
Elí Færseth, bassaleikar og söngvari,
og Valur Ingólfsson, trommuleikari,
eru Anti-feministar. Þeir eru líka
Njarðvíkingar og spila gítarrokk.
Betrothi
Hljómsveitin Betrothi var stofnuð í nóvember sl.
og hét þá Ármann and the Four Lost Souls, en eft-
ir mannabreytingar breyttist nafnið líka. Liðs-
menn sveitarinnar, sem er frá Akureyri, eru þeir
Ármann Óli Halldórsson bassaleikari, Haraldur
Helgason gítarleikari, Þorsteinn Sævar Krist-
jánsson hljómborðsleikari, Birkir Örn Jónsson gít-
arleikari, Bjarki Freyr Jónsson trommuleikari og
Arnar Freyr Scheving Guðmundsson söngvari.
þeir eru á aldrinum fjórtán til átján ára og leika
rokk í þyngri kantinum.
Earendel
Skagastrendingarnir Earendel tóku einnig
þátt í síðustu tilraunum og spila þungarokk.
Sveitina skipa Kristján Ýmir Hjartarson
bassaleikari, sem er 16 ára, Ómar Ísak Hjart-
arson gítarleikari, 18 ára, Almar Freyr Fann-
arsson söngvari, Þorsteinn Ýmir Ásgeirsson
gítarleikari og Jóhannes, sem allir eru 19 ára
og Hlynur, hljómborðsleikari sem er 22 ára.
Ljósvaki
Ljósvakinn Leifur Eiríksson
mætir einn til leiks vopnaður
hljómborðum og tölvutrommum
og boðar samstöðu, vináttu og
kærleik. Hann er Reykvíkingur
og fyllti 23. árið fyrir stuttu.
Melkorka
Hljómsveitin Melkorka var stofnuð í Borg-
arfirðinum fyrr á árinu og þreytir frumraun
sína á sviði á Músíktilraunum 2009. Ásmundur
Svavar Sigurðsson spilar á bassagígju, Helgi
Eyleifur Hohner lemur bumbur, Atli Már
Björnsson tónar og sýslar með skýrsluvél og
Reynir Hauksson leikur á slaggígju. Þeir
hyggjast leika framsækna rokktónlist. Með-
alaldur þeirra er 20 ár.
Negatrivia
Rokkbandið Negatrivia var stofnað af Sig-
urði Árna Jónssyni gítarleikara og söngvara
og Einari Loga Hreinssyni á seinni hluta síð-
asta árs, en síðar slógust í hópinn þeir Úlfar
Karl Arnórsson á bassa og Ragnar Sverrisson
á trommur. Þeir eru Hafnarfirðingar á aldr-
inum nítján ára til tvítugs og spila rokk í harð-
ari kantinum.
St. Peter the Leader
Því óvenjulega nafni St. Peter the Leader
hetir kvintett úr Mosfellsbæ og Grafarvogi
sem segist spila fjölbreytta tónlist. Piltarnir
eru Davíð Antonsson, sem spilar á trommur,
Guðmundur Guðmundsson spilar á rafgítar,
Jökull Júlíusson spilar á gítar og syngur,
Daníel Ægir Kristjánsson spilar á bassa og
Bjarni Grétar Ingólfsson á hljómborð. Þeir
eru allir fæddir 1990.
Chronolium
Reykvíska rokksveitin Chronolium spilar
metal af gamla skólanum. Liðsmenn sveit-
arinnar eru þeir Ástmar Yngvi Birgisson
sem leikur á bassa, Hjörvar Vífilssson og
Arnaldur Sigurðarson spila á gítara, Hafþór
Tryggvason syngur og Einar Merlin Cortes
lemur trommur. Þeir eru á aldrinum 19 til
21 árs.
Landfræðileg
fjölbreytni
Sound of Seclusion
Sound of Seclusion er ættuð úr Hafnarfirði
og sigraði einmitt í hljómsveitakeppni þar í bæ
fyrir stuttu. Sveitina skipa Alexander Örn
Númason, bassaleikari, Jóhannes Hróbjartsson
trommuleikari, Auðunn Lúthersson gítarleik-
ari og söngvari og Marinó Rafn Guðmundsson
söngvari. Sveitin leikur Prog metal með áhrif-
um úr harðkjarna, dauðarokki, djassi og rokki.
Meðalaldur sveitarmanna er rúm sextán ár.
Svik á pretti ofan
Laugarásbíó, Sambíóin
Duplicity
bbbmn
Leikstjóri: Tony Gilroy. Aðalleikarar: Julia Roberts,
Clive Owen, Tom Wilkinson, Paul Giamatti, Denis
O’Hare, Kathleen Chalfant, Tom McCarthy, Carrie
Preston. 125 mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Tony Gilroy, handritshöfundur Bourne-myndanna, leikstýrði fyrsta verkinu áferlinum árið 2007. Það var MichaelClayton, og tókst frumraunin með
ágætum og nú er hann mættur á ný með Dupli-
city, en hann er einnig handritshöfundur beggja
myndanna. Gilroy veltir fyrir sér hvað er að
gerast á bak við tjöldin í viðskiptaheiminum
sem illa þolir dagsbirtuna. Af nógu er að taka.
Lok kalda stríðsins létti á spennunni á milli
stórveldanna og andrúmsloftið varð almennt
þolanlegra. Flestir önduðu léttar aðrir en sú
varasama stétt spæjarar MI6, CIA, KGB, og
annarra slíkra skuggaverktaka. Við þeim blöstu
fjöldauppsagnir og ekki í mörg hús að venda
með þeirra sérstöku reynslu.
Það leyndust tækifæri í hörðum heimi við-
Glæsileg fyrir augað Roberts og Owen.
skiptanna þar sem iðnaðarnjósnir eru ómiss-
andi þáttur starfseminnar. Burkett & Randle
og Equikrom eru tveir fjölþjóðalegir iðn-
aðarrisar sem berjast leynt og ljóst um hverja
nýjung, hvert leyndarmál sem getur veitt þeim
kærkomið forskot á markaðnum. Þeirra stríð
minnir á átök stórveldanna, menn sitja á svik-
ráðum og í Duplicity er engum treystandi
Myndin þeytist með áhorfandann heimshorn-
anna á milli og fram og til baka í tíma. Hún
hefst í Dubai á meðan CIA-njósnarinn Claire
(Roberts), og Ray (Owen), starfsbróðir hennar
hjá MI6, eru á mála hjá hinu opinbera. Claire
leggur gildru fyrir Ray, sem lætur gabbast auð-
veldlega og eyðir næstu mánuðum í að hafa
uppi á Claire og gjalda henni rauðan belg fyrir
svartan. Þær áætlanir víkja smám saman fyrir
ástinni sem dafnar á milli þeirra í ótal end-
urlitum. Áður en langt um líður fara hjúin að
leggja á ráðin um það hvernig þau geti hlunn-
farið húsbændur sína, iðnaðarrisana, um svo
sem 30-40 milljónir dala og sest í helgan stein
og notið samvistanna áhyggjulaust það sem eft-
ir er.
Áhorfandinn þarf að hafa sig allan við til að
vera fyllilega með á nótunum í hraðri framvindu
tvíræðra ástamála, blekkinga, linnulausra svika
á báða bóga út um allar jarðir – hver er að
blekkja hvern, það er stóra spurningin. Myndin
er glæsileg fyrir augað, fyndin og sjálfsagt þyk-
ir einhverjum hún rómantísk en aðrir eiga vafa-
laust í erfiðleikum með að kaupa lítið heillandi
leiktilburði Roberts og Owens. Á hinn bóginn
eru þeir í essinu sínu, Wilkinson og Giamatti,
sem gjörólíkir forstjórar iðnaðarveldanna
tveggja. Upphafsatriðið þar sem þeir lenda í
hörkuslagsmálum úti á flugvelli, er það fyndn-
asta í myndinni og kemur manni í létt skap.
Þrátt fyrir að Duplicity sé í ótrúlega mörgum
lögum líkt og fjallhá brúðkaupsterta, þá kitlar
hún oftast hláturtaugarnar samtímis og áhorf-
andinn verður að taka á honum stóra sínum til
að komast til botns í hvað er í uppsiglingu og
týnast ekki í fléttufansinum. Það er erfitt að sjá
fyrir hvernig í ósköpunum er mögulegt að loka
margþættum svikavefnum en það tekst eins
ásættanlega og hægt er að ætlast til. Alltént
bendir Duplicity okkur á að græðgi er vafasöm
hvöt, en það vissum við reyndar fyrir, ekki satt?
Ef lesandinn sér nöfn þessara frábæru
leikara, geta þeir andað léttar. Það finnast
vart betri karakterleikarar í kvikmynda-
heiminum í dag, hvort sem þeir eru í
smáum hlutverkum eða stórum. Englend-
ingurinn Tom Wilkinson var búinn að vera
önnum kafinn og virtur sviðsleikari áður
en hann fór að skjóta upp kollinum í sjón-
varpi og í aukahlutverkum í kvikmyndum.
Hann sló í gegn í hinni feikivinsælu The
Full Monty (́97), og hefur ekki látið deigan
síga, leikið í hartnær 50 myndum á síð-
asta áratug. Hann var tilnefndur til Óskars
fyrir In the Bedroom og Michael Clayton,
auk þess hefur hann prýtt myndir á borð
við Girl With the Pearl Earring, Seperate
Lives, Batman Begins og Valkyrie. Banda-
ríkjamaðurinn Paul Giamatti er algjört
kameljón, sérkennilegt útlit setti honum
skorður til að byrja með, uns leikstjórum
lánaðist að nýta botnlausa hæfileika
mannsins sem blómstruðu sem aldrei fyrr
í Sideways. Hann hefur gefið myndunum
Man on the Moon, American Splendor, The
Cinderella Man og Lady in the Water, sína
eigin, persónulegu vítamínsprautu. Þá má
ekki gleyma hrífandi frammistöðu hans í
titilhlutverki sjónvarpsþáttanna um John
Adams. Fyrir túlkun sína á forsetanum
hlaut hann m.a. Golden Globe- og Emmy-
verðlaunin.
Gæðastimplarnir
Giamatti og Wilkinson
54 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009