Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 43
Minningar 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
ÍSLENSKAR
LÍKKISTUR
Góð þjónusta - Gott verð
Starmýri 2, 108 Reykjavík
553 3032
Opið 11-16 virka daga
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ELLERT ERLENDSSON,
Höfðabraut 3,
Akranesi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 20. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
2. apríl kl. 14.00.
Áslaug Valdimarsdóttir,
Lilja Ellertsdóttir, Gunnar Þór Garðarsson,
Jón Ellert Guðnason, Arnþrúður Kristjánsdóttir,
Áslaug Kristín Guðnadóttir,
Gunnar Þór Gunnarsson, Eva Lind Matthíasdóttir
og langafabörn.
✝
Okkar ástkæri sonur, bróðir, unnusti og vinur,
KRISTINN GUÐBJARTSSON,
Flétturima 33,
Grafarvogi,
lést á heimili sínu laugardaginn 21. mars.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
2. apríl kl. 13.00.
María Baldursdóttir,Guðbjartur J. Sigurðsson,
Gretar Örn Valdimarsson,
Páll Valdimarsson,
Vilhjálmur Valdimarsson,
Margrét Valdimarsdóttir,
María Ósk Guðbjartsdóttir,
Alexander Aron Guðbjartsson,
Íris Ísberg.
✝
Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma,
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR
frá Bolungarvík,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
sem andaðist mánudaginn 23. mars, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
31. mars kl. 15.00.
Ásgeir Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín og móðir,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Sogavegi 178,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
24. mars, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 2. apríl kl. 13.00.
Guðmundur Bergsson,
Páll Sveinn Guðmundsson og fjölskylda.
Soffía
Jónsdóttir
✝ Soffía Jónsdóttirfæddist á Ísa-
firði 21. apríl 1921.
Hún lést á Droplaug-
arstöðum 20. mars
2009. Foreldrar
hennar voru Jón
Snorri Árnason, tré-
smiður og timburkaupmaður á Ísa-
firði, f. 20. febrúar 1871, d. 11. febrúar
1938 og Valgerður Sæmundsdóttir
húsfreyja, f. 2. september 1887, d. 5.
desember. 1951. Soffía var einkadóttir
þeirra hjóna.
Soffía giftist 5. júní 1955 Snorra
Jónssyni barnalækni, f. 26. desember
1921. Foreldrar hans voru Jón Jóns-
son frá Flatey, kennari í Reykjavík, f.
14.7. 1882, d. 19.5. 1962 og Ingibjörg
Snorradóttir húsfreyja, f. 20.2. 1887,
d. 4.7. 1981. Soffía og Snorri eign-
uðust einn son, Jón Snorra, hagfræð-
ing og háskólakennara, f. 7. desember
1955, var kvæntur Sigríði Knútsdóttur
kennara, f. 12. maí 1956, börn þeirra
eru: a) Tryggvi, BA í stjórnmálafræði,
f. 3.8. 1978, unnusta Kristrún Thors,
b) Hildur Jónsdóttir, BA í lögfræði, f.
13.2. 1982, unnusti Alfredo Ferrise, c)
Snorri, stúdent, f. 7.5. 1988.
Soffía ólst upp á Ísafirði til ung-
lingsára og flutti þá með foreldrum
sínum til Reykjavíkur. Þau bjuggu alla
tíð í miðbæ Reykjavíkur og lengstum í
Þingholtunum. Soffía gekk í Versl-
unarskóla Íslands og lauk þaðan
verslunarprófi árið 1939. Hún hóf síð-
an störf í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis og starfaði þar um margra
ára skeið eða þar til Snorri fór utan
til framhaldsnáms til Svíþjóðar.
Bjuggu þau víða um Svíþjóð næstu
árin, en komu heim árið 1964. Soffía
helgaði sig húsfreyjuhlutverkinu er
heim kom ásamt því að sinna bók-
haldi og reikningagerð fyrir Snorra,
en hóf aftur störf tímbundið við
SPRON eftir 1970. Eftir heimkomuna
frá Svíþjóð flutti fjölskyldan í Álfta-
mýri 56 og síðan byggðu þau sér rað-
hús í Álftamýri 37 og fluttu í það
1966 og bjuggu þar alla sína tíð eða í
40 ár, þar til þau fluttu á Droplaug-
arstaði haustið 2006.
Útför Soffíu fór fram í kyrrþey að
ósk hennar.
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma, systir og lífsins ljós,
HELGA ERLENDSDÓTTIR,
Árnanesi,
Nesjum Hornafirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 13. mars.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 31. mars kl. 13.00.
Ásmundur Gíslason,
Ragna Eiríksdóttir, Sveinn Bjarki Sigurðsson,
Erlendur Eiríksson, Ilmur Eir Sæmundsdóttir
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, Brynjólfur Hermannsson,
Arna Ásmundardóttir, Borgþór Egilsson,
Matthildur Ásmundardóttir, Hjálmar Jens Sigurðsson,
Kjartan Ásmundarson,
Ásmundur Ásmundarson,
ömmubörn, systkyni og makar.
Er hann Jón minn
ekki fallegur? sagði
hún Sigurbjörg þegar hún gekk til
móts við manninn sinn sem var rétt
kominn inn úr dyrunum að loknum
vinnudegi, um leið og hún strauk hon-
um ástúðlega um handlegg og
herðar. Hlátur í rödd og ylur í aug-
um. Og víst var hann Jón hennar
fjallmyndarlegur og fallegur, bæði í
sinni og skinni.
Þegar þessi dugmikli og laghenti
bóndi í Þykkvabænum og kona hans
höfðu makaskipti við húseiganda í
Kleppsholtinu og fluttu búferlum til
Reykjavíkur með barnahópinn sinn,
var ég rétt innan við fermingu og
systur mínar á barnsaldri. Enn í dag
hugsum við hlýtt til þeirrar forsjónar
sem réði því að við nutum samvista
við þetta fólk dag hvern á uppvaxt-
arárum okkar. Með komu þess fyllt-
ist húsið á Langholtsvegi 44 nýju lífi
og fallegt tungutak gladdi eyrun.
Skýrmæltara og gagnorðara fólk er
enn í dag vandfundið. Mikil samskipti
voru milli hæða. Systkinin úr
Þykkvabænum, fimm systur og einn
strákur, voru glaðsinna og hrein-
skiptin, yngstu stelpurnar í barna-
skóla, sú elsta að verða stúdent. For-
eldrar þeirra voru og eru dásamlegar
manneskjur, hvort á sinn hátt.
Sigurbjörg Ingvarsdóttir var
hjartað og lífsmagnið í húsinu. Sí-
starfandi, með lífsgleði í augum og
viðmóti, fræðari í dagsins önn og um-
búðalaus í öllum samskiptum, bæði
við börn og fullorðna. Aldrei feimin
við að vera manneskja. Jón Óskar
Guðmundson var kletturinn í þessu
samfélagi. Traustur, rólegur og at-
hugull. Maður hafði á tilfinningunni
að ekkert færi framhjá honum, en
hann blandaði sér ekki í annað en það
sem skipti einhverju máli. Hann hafði
hlýja og góða nærveru og okkur þótti
mikið til hans koma. Manni fannst
Jón Óskar
Guðmundsson
✝ Jón Óskar Guð-mundsson fæddist
á Ytri-Hóli í Vestur-
Landeyjahreppi í
Rangárvallasýslu 30.
mars 1912. Hann and-
aðist á hjúkr-
unarheimilinu Lundi
17. mars 2009.
Jón Óskar var jarð-
settur frá Oddakirkju
28. mars sl.
einhver ótruflanleiki
og kyrrð í honum sjálf-
um. Við vissum ekki þá
að hann var listfengur
líka, en glöddumst
mjög þegar við komum
einu sinni sem oftar á
Langholtsveginn
löngu síðar og sáum
fagurlega útskornar
hillur og aðra góða
gripi á heimilinu, sem
voru verk Jóns Óskars.
Jón og Sigurbjörg
bjuggu á Langholtvegi
44 þar til fyrir nokkr-
um misserum, að þau fluttu til dóttur
og tengdasonar að Hrafntóftum.
Þegar dró úr þjónustusemi líkamans
við athafnaviljann hjá þeim á sínum
tíma og heyrnin hjá Jóni gekk úr vist-
inni, var til þess séð að þau gætu búið
á Langholtveginum eins og ekkert
hefði í skorist. Kannski á manni ekki
að koma á óvart að afkomendur þess-
ara hjóna sýni foreldrum sínum þá
virðingu að gera þeim kleift að ráða
sínum næturstað þegar aldurinn fær-
ist yfir fyrir alvöru og líti í öllu á þau
sem áhugaverða og skemmtilega vini,
sem þau eru og voru. Og eiginlega er
nánast óviðkunnanlegt að tala um
öldrun hjá fólki sem enn er með
æskubjarta hugsun á tíræðisaldri.
Á kveðjustund þökkum við syst-
urnar, Laila, Ásta, Linda Rós og und-
irrituð, liðnar stundir og vinarhlýju
fyrr og síðar. Sigurbjörgu vinkonu
okkar og öllum afkomendum þeirra
Jóns færum við einlægar og innilega
samúðarkveðjur og biðjum Jóni Ósk-
ari Guðmundssyni guðs blessunar.
Jónína Michaelsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR STEINDÓRSDÓTTIR,
Vatnskoti 2,
Þykkvabæ,
sem lést miðvikudaginn 25. mars, verður
jarðsungin frá Þykkvabæjarkirkju, laugardaginn
4. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á orgelsjóð
Þykkvabæjarkirkju.
Gunnar Guðmundsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ragnar L.
Þorgrímsson
✝ Ragnar L. Þor-grímsson fædd-
ist í Reykjavík 25. júní
1953. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsavík
18. mars 2009.
Ragnar var jarð-
sunginn frá Grafarvogskirkju 27. mars
sl.
Meira: mbl.is/minningar
Indriði
Gíslason
✝ Indriði Gíslasonfæddist í Skóg-
argerði í Fellum 27.
júlí 1926. Hann lést í
Reykjavík 15. mars sl.
og var jarðsunginn
frá Háteigskirkju 23.
mars.
Meira: mbl.is/minningar
Jónína Ósk
Jónsdóttir
✝ Jónína Ósk Jóns-dóttir fæddist á
Hvammstanga 21.
febrúar 1946. Hún
lést á líknardeild LSH
í Kópavogi 25. febr-
úar síðastliðinn.
Útför Jónínu var
gerð frá Langholtskirkju 6. mars sl.
Meira: mbl.is/minningar