Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 18
18 Hönnun
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Listakonan Katrín Ólína Péturs-
dóttir hefur hannað fjögur tarotspil,
sem hún sýnir á HönnunarMarsi á
yfirstandandi hönnunardögum í
Reykjavík. Spilin eru sýnd í auðu
verslunarrými við Laugaveg 37 og
hefur Katrín Ólína látið gera sér-
staka útgáfu af þeim, sem eru 1
metri og 30 sentimetrar á hæð.
En af hverju skyldi hún hafa ráð-
ist í að gera tarotspil?
„Þetta kemur til af miklum áhuga
mínum á menningarsögunni, tákn-
máli og dulrænum málefnum. Tarot-
spilin hafa mest verið notuð til að
spá um framtíðina og kemur það til
af þrá okkar að vita hvað verður en
einnig snýst þetta um leit okkar að
skilningi á tilgangi lífsins og að setja
atburðina í samhengi. Spilin geyma í
raun öll atriði lífsleiksins, sem
mannfólkið hefur verið að glíma við
frá upphafi og þetta er sýnt með
táknmyndum á spilunum. Mér finnst
áhugavert á þessum tímum upplýs-
ingaofgnóttar að leita aftur í ræt-
urnar og í það tákntungumál, sem
við byggjum menningu okkar á,“
segir hún en spilin eru sérlega falleg
og í sama ævintýralega stílnum og
mörg verk listakonunnar.
„Ég er búin að vera að byggja upp
eigið myndmál lengi og það byggist
meðal annars á táknum.“
Sterkt táknmál
Hún segir mikla heimildarvinnu
að baki verkinu. „Hvert og eitt spil
er gluggi með sterku táknmáli og í
þessu verkefni túlka ég þetta. Ég
hef ekki gert mikið af því túlka ann-
arra verk en hef þó myndskreytt eitt
Grimmsævintýri og þetta er því ögr-
andi verkefni fyrir mig. Ég bý að
stórum brunni af eigin myndmáli,
sem mér finnst ég geta nýtt í þetta
verkefni.“
Ef Katrín Ólína lýkur við öll tarot-
spilin er um gríðarlega stórt verk-
efni að ræða en spilin eru 78 talsins.
„Þessi fjögur spil eru prufa, ég er
bæði að prófa hvernig þetta virkar
fyrir mig og líka langar mig að heyra
viðbrögð annarra.“
Hún segist samt ekki vera sér-
fræðingur í að spá í tarotspil. „Ég
hef mikinn áhuga á tarotspilum en
nálgast þetta meira út frá táknmáli.
Þessi spil hafa fylgt mér lengi og ég
hef gaman af því að horfa á þau. Ég
er ekki mikil spákona, allavega ekki
ennþá! En mér finnst mikilvægt að
velta hlutunum fyrir mér og setja þá
í samhengi við fortíð, nútíð og fram-
tíð.“
Heimildarvinnuna vann hún á net-
inu en einnig með því að skoða mis-
munandi tegundir spila, lestri bóka
og viðræðum við sérfræðinga.
Teikningarnar vinnur hún sem
skissur og síðan í tölvu.
„Þetta er ekki eitthvað sem maður
hristir fram úr erminni og krefst
bæði einbeitingar, tíma og frekari
heimildarvinnu. Ef viðbrögðin verða
góð reyni ég að leita leiða til að geta
sökkt mér í þetta verkefni.“
Katrín Ólína segir frá því að til
séu þekkt tarotspil kennd við Aleis-
ter Crowley. Hann fékk Lady
Friedu Harris til að teikna fyrir sig
spil en verkið tók 15 ár! Listakonan
telur sig þó geta gert þetta á
skemmri tíma fái hún næði til.
Snjóbretti og hreyfimynd
Þetta er þó ekki það eina sem
Katrín Ólína er að fást við á yf-
irstandandi hönnunardögum. Hún
er líka að sýna hreyfimynd, sem hún
vann í Japan, í Þjóðminjasafninu og
einnig hefur hún verið í samvinnu
undanfarið við Cintamani.
„Núna erum við að kynna fyrsta
afraksturinn af þeirri samvinnu. Ég
Spilaborg táknmynda
Tarotspil Katrínar
Ólínu Pétursdóttir
eru í senn fallegar og
kraftmiklar myndir og
speglun á óvissu-
ástandinu og spila-
borginni sem Íslend-
ingar upplifa sig í um
þessar mundir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikur að spilum „Allir eru að hugsa um hvað verður. Þessi innsetning er speglun mín á ástandinu,“ segir Katrín Ólína.