Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
FRÁBÆRT ATVINNU- OG VIÐSKIPTA-
TÆKIFÆRI Í FJARÐABYGGÐ!
Til sölu er félag sem
rekur veitinga- og
gististað í Tærgesen
húsinu á Reyðarfirði.
Rekstur félagsins er í
fallegu leiguhúsnæði í
hjarta bæjarins.
Fjölmargir sóknar-
möguleikar er faldir í
fyrirtækinu fyrir dug-
lega aðila.
Áhugasamir hafi samband við
Guðrúnu Gísladóttur, lfs, s. 580-7906
eða í netfang gudrun@inni.is
Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali
INNI fasteignasala • Sími 580 7925 • www.inni.is
• Glæsilegt 495 m2 verslunar- og iðnaðarhúsnæði á jarðhæð.
• Hornhús með góðum gluggum og góðri aðkomu. Góð aðstaða.
• Hægt að skipta húsnæðinu í smærri einingar.
• Mikið auglýsingagildi. Laust strax.
Upplýsingar veitir Dan Wiium s: 896-4013.
SMIÐJUVEGUR - TIL LEIGU
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
jöreign ehf
Reykjavík
Sími 588 9090 • Síðumúla 21
108 Reykjavík
www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Hæð eða hæð og ris í Vesturborginni
óskast - staðgreiðsla
Traustur kaupandi óskar eftir hæð eða hæð og risi,
140 - 180 fm, í Vesturborginni. Staðgreiðsla í boði.
Einbýlishús í Vesturbæ eða
Þingholtunum óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 250-350 fm
einbýlishúsi í vesturborginni eða þingholtunum.
Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
löggiltur fasteignasali í síma 861 8514.
SÖRLASKJÓL 50 - FRÁBÆRT SJÁVARÚTSÝNI
Opið hús sunnudaginn 29/3
milli kl 14-15.30
Stórglæsileg nýuppgerð 100 fm. sér
hæð (efsta hæð) Nýjar innréttingar,
raflagir og gólfefni. Húsið er nýviðgert að
utan og málað, nýtt járn á þaki og nýjar
þakrennur. Risloft er yfir íbúðinni. Í
kjallara er sameiginlegt þvotta- og
þurrkherbergi. Á baklóð er sérgeymsla. Verð 36 milj.
Sölumaður Sigurður sími 8983708. Eign á besta stað í vesturbæ Reykjavíkur.
Garðatorg 7 - 210 Garðabæ - sími 545 0800 - Þórhallur Guðjónsson, lögg. fast.sali
ÞAÐ ER sannarlega
ekki með glöðu geði og
bros á vör sem stjórn-
endur heilbrigðisstofn-
ana taka ákvarðanir
um hvar niðurskurð-
arhnífurinn eigi að
lenda á þessu ári þegar
fjárframlög til heil-
brigðisþjónustu eru 6,7
milljörðum króna lægri
en áætlað var. Þetta er
erfitt verkefni sem þeim er falið og
raunar ótrúlegur árangur sem hefur
náðst í því að láta sparnaðinn koma
sem minnst niður á þjónustu.
En á sama tíma og þess er krafist
af heilbrigðisstofnunum að veita
sömu þjónustu fyrir minna fé bendir
allt til að álag á heilbrigðiskerfið
aukist, enda koma efnahagsþreng-
ingar oft illa við heilsu fólks, ekki
síst þeirra sem missa vinnuna. Sig-
urður Thorlacius, dós-
ent við læknadeild Há-
skóla Íslands, benti á
það í fróðlegum fyr-
irlestri á opnum morg-
unverðarfundi heil-
brigðisráðuneytisins
19. mars sl. að atvinnu-
leysi getur haft mjög
slæm áhrif á heilsufar
og dánartíðni hefur
aukist í takti við meira
atvinnuleysi í ýmsum
löndum heims. Nú eru
þetta að sjálfsögðu
svartar upplýsingar.
Staðreyndin er hins vegar sú að við
getum mikið að gert til að koma í
veg fyrir að félagsleg og heilsufars-
leg áhrif kreppunnar verði eins
slæm og þau geta orðið. Gott og öfl-
ugt heilbrigðiskerfi er forsenda
þess. Á öllum góðæristímanum var
heilbrigðisstofnunum gert að spara
fé. Þetta er því ekki nýr veruleiki
innan heilbrigðisþjónustunnar en
engu að síður ljóst að nú þarf að
beita nýrri nálgun og nýrri hugsun.
Hins vegar kemur í hlut stjórnvalda
að senda skýr skilaboð.
Atvinnuátak og uppsagnir?
Það skyti skökku við ef nið-
urskurður leiddi til fjölda uppsagna
innan hins opinbera og á sama tíma
þyrfti að ýta úr vör umfangsmiklu
atvinnuátaki á vegum stjórnvalda.
Atvinnuleysi getur verið mjög
kostnaðarsamt fyrir þjóðfélagið til
lengri tíma litið. Eitt mikilvægasta
atvinnuátakið er því að verja störf á
vegum hins opinbera. Velferðarmál
eru atvinnumál og atvinnumál eru
velferðarmál.
Stöndum vörð um
heilbrigðisþjónustuna
Halla Gunn-
arsdóttir fjallar um
heilsufar og atvinnu
» Velferðarmál eru at-
vinnumál og at-
vinnumál eru velferð-
armál
Halla Gunnarsdóttir
Höfundur er aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra
ALÞINGISMENN,
fréttamenn, sem og
allir þeir sem eitthvað
þurfa með fjármál að
gera tala um að kveða
verðbólguna niður.
Væri því ekki rétt að
reyna að skapa þær
aðstæður í hagkerfi
okkar að bankar og
lífeyrissjóðir hefðu
ekki síður en aðrir
fullan hag af því að halda þessum
draug niðri? Vandamálið er enn
sem fyrr, hvernig á að koma bönd-
um á verðbólguna. Engin leið virð-
ist færari en önnur í þeim málum,
en það virðist samt borðleggjandi
að við öll, það er allar stofnanir
þjóðfélagsins ættum að hafa raun-
verulegan hag af því að halda þess-
um draug niðri. Meðan bankarnir
hafa það vopn í höndunum sem
verðtryggingin er þá hafa þeir ekki
það aðhald sem nauðsynlegt er til
að hafa hag af því að halda verð-
bólgu niðri.
Varla dettur okkur í hug að
bankarnir hefðu ruðst jafn ótæpi-
lega og þeir gerðu inn á húsnæð-
islánamarkaðinn ef þeir þyrftu
jafnt og aðrir að hafa fullan hag af
því að halda verðbólgunni niðri.
Stjórnendur fjármagnsins okkar
sáu bara vel í hvað stemmdi í þjóð-
félaginu og þarna var bara einfald-
lega góð leið til að tryggja fjár-
magnið og þurftu þeir ekkert að
vera að velta fyrir sér hversu
svakalega verðbólgusp-
rautu þeir settu inn í
þjóðfélagið með þessu
framferði sínu. Þetta
var allt verðtryggt
hvort sem var. Því
verður krafa okkar að
vera, burt með verð-
trygginguna eða að
laun verði líka verð-
tryggð á svipaðan hátt
og útlán fjármálastofn-
ana. Með því væru að
vísu líkur á hættu-
legum víxlhækkunum,
en okkar þrautreyndu
leiðtogar í félagsmálum ættu að
geta fundið leið framhjá svoleiðis
málum, þannig að allra hagur væri
sem best tryggður. Við verðum að
athuga að baráttan fyrir framtíð
barnanna okkar er í dag en ekki á
morgun.
Kallað er eftir aðgerðum stjórn-
valda vegna þungra byrða hjá
íbúðaeigendum og er þar að
stærstu leyti ungt fólk með börn.
Fólk sem er að kaupa sína fyrstu
íbúð, hefur stærstu vandamálin
vegna verðtryggðra og geng-
istryggðra lána en væntanlega væri
fólk ekki að freistast til að taka
gengistryggð lán ef ekki væri verð-
trygginguna að varast hins vegar.
Hugum alvarlega að lýðræði og
framtíð lands vors og barna og
burt með verðtrygginguna, eða eig-
um við bara að slá þessu upp í
kæruleysi og leyfa auðvaldinu í
landinu að níðast áfram á börn-
unum okkar? Steingrímur J. Sig-
fússon kom með það í fréttunum
um daginn að hann vildi afnema
verðtrygginguna. Ekki hefur
heyrst neitt meira um þau mál frá
honum. Ef þú, Steingrímur, lest
þessar línur mínar þá skora ég á
þig að halda áfram með málið.
Hvað erum við að vilja í þessu
landi okkar ef við getum ekki séð
um að unga fólkið okkar hafi húsa-
skjól án þess að binda á sig lífstíð-
arlanga skuldabagga til dýrðar
Mammoni? Erum við virkilega
svona léleg að við ætlum að láta
börnin okkar búa við slíkt óréttlæti
áfram, eða verður það kannski til
þess að þau yfirgefi þetta volaða
land okkar? Við verðum varla hátt
skrifuð í sögu framtíðarinnar með
þessu áframhaldi.
Því verður það krafa okkar allra,
burt með þessa byrði af börnunum
okkar!
Er það virkilega svo að við vilj-
um frekar sjá vald auðsins vaða
svona um meðan börn framtíð-
arinnar gráta horfin heimili? Ætl-
um við að láta þetta spyrjast um
okkur í framtíðinni? Nei takk og
enn einu sinni, burt með verðtrygg-
inguna, við getum ekki látið svona
siðleysi vaða uppi lengur í þessu
litla þjóðfélagi okkar, og Stein-
grímur, það verða örugglega marg-
ir hagspekingar sem segja: Þetta
ekki hægt. Og þar verða sjálfsagt
framarlega í flokki hagspekingar
lífeyrissjóðanna sem eru, jú, sjóðir
vinnandi manna í landinu og ættu
þess vegna fremur að leggjast á
sveif með unga fólkinu í landinu og
verðleggja fjármagn sitt svipað og
gert er í nágrannalöndum okkar.
Og auðvitað svíður auðvaldinu ef
það á að missa eina af sínum bestu
ávöxtunarleiðum, en það verður
einfaldlega að loka á þetta órétt-
læti. Kannski það fari þá að ráðast
eitthvað betur við verðbólgudraug-
inn. En allavega getum við ekki
látið níðast svona lengur á unga
fólkinu okkar. Því, enn og aftur:
Áfram Steingrímur, það verður
að létta þessu af framtíð barna
þessa lands.
Framtíð barnanna okkar
Hjálmar Magn-
ússon skrifar um
efnahagsmál
»Hvatningargrein til
almennings um sam-
stöðu gegn verðtrygg-
ingu og öðrum þáttum
sem höfundur telur
þurfa að bæta úr í þjóð-
félaginu.
Hjálmar Magnússon
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.