Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
Eftir Baldur Arnarson í Þrándheimi
ÍBÚUM á Austurlandi gæti fjölgað
um fimm til sex þúsund í kringum
hugsanleg umsvif olíuiðnaðarins á Ís-
landi í framtíðinni. Þetta er mat Hall-
dórs Jóhannssonar skipulagsráð-
gjafa. Þá horfir hann til þess að
helmingur þeirra sem kæmu með ein-
hverjum hætti að olíuiðnaði á landinu,
starfsmenn og fjölskyldur þeirra,
byggi fyrir austan; líklegast á Vopna-
firði og Þórshöfn.
„Það er ljóst að eins og staðan er á
Íslandi í dag er þetta mjög góður
tímapunktur. Það er auðveldara að fá
fólk út á land en fyrir aðeins tveimur
árum og því raunhæfara að fara út í
svona stórverkefni.“ Hann leggur
áherslu á að horft sé til margra ára-
tuga í þessum efnum.
16 þúsund bein störf í Noregi
„Í Noregi er gert ráð fyrir að olíu-
iðnaðurinn skapi að minnsta kosti
16.000 bein störf. Það er misjafnt
hvernig afleiddu störfin eru talin en
þau eru að minnsta kosti jafn mörg.
Sumir segja fleiri,“ segir Halldór.
„Horfa verður á í sambandi við
Drekasvæðið að þar rísi þjónustumið-
stöð. Hún verður þá væntanlega á
Vopnafirði. Þessi þjónustumiðstöð
mun skapa eitthvað í kringum 100 til
200 störf.“ Halldór, sem hefur veitt
Langanesbyggð og Vopnafjarðar-
hreppi ráðgjöf varðandi fyrirhugaðan
olíuiðnað, horfir til Gunnólfsvíkur í
þessu efni.
„Það er búið að sýna fram á að
Gunnólfssvík í Finnafirði er líklega
eitt besta, ef ekki besta, hafnarstæði á
norðurhveli jarðar. Þetta er geysilega
góður staður. Ölduhæðin er lítil og að-
djúpt og víkin því tilvalin fyrir stór-
skipahöfn. Þá opnast að sjálfsögðu
miklir möguleikar fyrir vinnslu á olíu
eða gasi. Í því efni er nærtækast að
horfa til olíuhreinsunarstöðvar sem
skapar á bilinu 700 til 1.000 bein störf.
Áætluð ársverk við að byggja slíka
stöð eru ekki færri en 12.000. Ef hún
er byggð upp á fjórum árum þýðir
það 3.000 ársverk á ári.“ Halldór
nefnir að í áætlunum um Drekasvæð-
ið sé talað um að vinnsla í landi geti
hafist eftir 10 til 12 ár. „Það þýðir að
nærtækt er að reikna með að olíu- og
gashreinsunarstöð rísi á Austurlandi
og skapi þar 200 störf, að því er talið
er. Hvort sem olíuvinnslan verður í
Gunnólfsvík eða ekki þarf þjónustu-
og öryggismiðstöð í kringum þetta
allt saman, það er að segja þyrlur og
öryggisskip. Rætt er um að þessi
þjónusta skapi í kringum 200 störf,“
segir hann.
Halldór segir að miðað við þær for-
sendur sem hann hafi sé væntanlega
verið að tala um 1.500 bein störf. „Af-
leidd störf miðað við reynslu Norð-
manna eru þá um 1.500 og því alls ver-
ið að tala um í kringum 3.000 störf.“
Raunhæfar hugmyndir?
En eru hugmyndirnar raunhæfar?
„Ég held að þær séu mjög raunhæfar,
því að hvort sem finnst olía á Dreka-
svæðinu eða ekki er nánast gefið að
það verður olíuvinnsla á norðurslóð-
um í náinni framtíð. Þar nefni ég að
talið er að á austurströnd Grænlands
sé að finna mestu ónýttu olíuauðlindir
jarðar.“
Íbúum
fjölgi með
olíunni
Olíuiðnaðurinn gæti skapað þúsundir
starfa á Austurlandi á næstu áratugum
STJÓRNVÖLD gætu hafa bakað
sér bótaskyldu vegna ónógs eða
gallaðs eftirlits með fjármála-
starfsemi og ónógs eða árangurslít-
ils aðhalds í efnahagsstjórn. Þetta
er mat Gísla Tryggvasonar, tals-
manns neytenda: „Þetta er ein af
mörgum röksemdum fyrir því að
það verði að gera eitthvað.“ Ítrekað
hafi verið gefnar upplýsingar um
að fjármálakerfið væri stöðugt –
sem reyndist rangt og jók að öllum
líkindum gengishrun og þar með
skuldavanda neytenda. Gísli lagði
fram tillögur fyrir helgi um máls-
meðferð til almennrar lausnar á
miklum íbúðaskuldavanda neyt-
enda. Þær eru nú á borði ráðherra.
gag@mbl.is
Stjórnvöld gætu
verið bótaskyld
EKKI virðast all-
ir hafa samúð
með málstað For-
eldrasamtaka
gegn áfeng-
isauglýsingum.
Heimasíða samtakanna hefur
orðið fyrir árásum undanfarið og
töluvert af gögnum verið eyðilagt
varanlega að því er segir á síðunni.
Samtökin, sem leitað hafa til lög-
reglu vegna málsins, segja ljóst að
einhverjum sé afar illa við framtak
þeirra til að berjast gegn áfeng-
isauglýsingum, fyrst viðkomandi er
reiðubúinn að leggja verulega mik-
ið á sig til að eyðileggja heimasíð-
una. „Þetta er í raun staðfesting á
mikilvægi starfsemi okkar og því
hvetjum við foreldra og for-
ráðamenn barna og unglinga til
þess að standa vörð um réttindi
æskunnar,“ segir á síðunni.
Árás gerð á síðu
foreldrasamtaka
MAÐURINN sem
féll af húsþaki á
Skólavörðustíg
er nú á batavegi,
en honum var
haldið sofandi í
öndunarvél á
gjörgæsludeild Landspítalans í
gær. Maðurinn heitir Duncan
McKnight og er söngvari hljóm-
sveitarinnar The Virgin Tongues
sem til stóð að spilaði á tónleikum í
kvöld með Singapore Sling. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er McKnight ekki höfuðkúpubrot-
inn eins og áður var talið. Hann
mun vera á batavegi.
Söngvari sem féll
af þaki braggast
ÍBÚAR Seyðisfjarðar hafa tekið
höndum saman í óvenjulegri undir-
skriftasöfnun því þeir beita sér nú
fyrir því að einum bæjarbúanum
verði ekki vísað úr landi.
Japsý Jacob flutti til Seyðisfjarðar
frá Indlandi í marsmánuði árið 2007
og hefur síðan unnið hug og hjarta
bæjarbúa. En nýlega barst henni
bréf þess efnis að hún yrði að yf-
irgefa landið þar sem hún hefði hér
ekki dvalarleyfi.
Seyðfirðingar hafa hinsvegar tek-
ið mál Japsýar upp á sína arma, nú
þegar hafa yfir 300 undirskriftir
safnast henni til stuðnings sem nem-
ur rúmlega helmingi fullorðinna
bæjarbúa, auk þess sem stofnuð hef-
ur verið Facebook-síða þar sem vak-
in er athygli á máli hennar.
„Ekkert okkar hefur þurft að líða
vegna veru hennar hér,“ segir á síð-
unni. „Þvert á móti hefur glaðlyndi
hennar og vinsemd fært okkur mikla
gleði og ánægju. Hún er nágranni
okkar og vinkona. Hún er ein af okk-
ur. Japsý vill búa hér.“
Mannréttindi nágranna og vina
Síðan Japsý flutti til Seyðisfjarðar
hefur hún sett svip sinn á bæinn,
meðal annars með því að bjóða upp á
ayurivediskt nudd sem bæjarbúar
hafa notið góðs af.
„Þetta er rosalega góð kona, hún
hefur búið hérna í tvö ár og er bara
orðin ein af okkur. Hún er alveg frá-
bær og það væri rosalega leiðinlegt
að sjá hana fara,“ segir Sonja Ólafs-
dóttir, íbúi bæjarins. Brosmildi
Japsýar hafi heillað alla bæjarbúa og
hún hafi smollið inn í samfélagið á
Seyðisfirði. Á Facebook-síðunni sem
fjallar um mál Japsýar er tekið fram
að málið varði ekki eingöngu mann-
réttindi Japsýar „heldur og einnig
mannréttindi okkar sem erum ná-
grannar hennar og vinir“.
Fyrstu undirskriftirnar hafa nú
verið sendar Útlendingastofnun auk
greinargerðar og vonast Seyðfirð-
ingar eftir jákvæðum viðbrögðum
stofnunarinnar sem tekið hefur við
málinu. una@mbl.is
Seyðfirðingar
vilja Japsý
Senda Útlendingastofnun undirskriftir
Seyðisfjörður Mikil samstaða er í
bænum um stuðning við Japsý.
Í HNOTSKURN
»Japsý er 26 ára gömul oger fædd og uppalin á Ind-
landi en hefur búið á Seyð-
isfirði frá árinu 2007.
»306 undirskriftir höfðu ígær safnast á Seyðisfirði
því til stuðnings að Japsý fái
að búa áfram á Íslandi.
12.720
Um 12.720 ferkílómetra
svæðisins gildir milliríkja-
samningur við Noreg um
nýtingu.
25%
Noregur á rétt á 25%
þátttöku í olíustarfsemi
innan íslenska hlutans og
Ísland sama hlutfall innan
norskrar lögsögu.
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
ÞAÐ voru nú krakkarnir, barnabörnin, sem settu mig
inn á Facebook,“ segir Guðbjörg Þorsteinsdóttir, sem
eftir því sem Morgunblaðið best veit er með elstu Ís-
lendingum á Facebook. Guðbjörg er fædd 1919 í
Hörgshlíð við Ísafjarðardjúp en hefur búið á Ísa-
firði í rúm sextíu ár.
„Ég vissi ekki að þetta Facebook væri til fyrr en
í febrúar. Þá var búið að setja mig þar inn og
dóttursonur minn spurði hvort ég væri á Facebo-
ok og sýndi mér síðuna. Dótturdóttir mín í Dan-
mörku setti svo inn myndina af mér.“
Guðbjörg kveðst hafa nokkuð gaman af Facebook
og svo er ágætt að nýta tæknina til að halda sam-
bandi við fjölskylduna, ekki síst þau sem eru erlendis, en Guð-
björg á þrjú barnabörn í Danmörku og eitt sem er búsett í Nor-
egi.
Líkt og margir notar Guðbjörg síðuna helst fyrir létt spjall,
svo sem til að óska gleðilegs sumars og senda maíkveðju. Þó
gengur misvel að halda sambandi við fólk, líka á Facebook. Þá er
ekki verra að geta skoðað myndirnar.
„Svo nota ég líka tölvuna til að lesa hitt og þetta, ég skoða
gjarnan Morgunblaðið og það sem fólk bloggar. Svo sé
ég BB, fréttavefinn hér á Ísafirði, í gegnum tölvuna.“
Guðbjörg er ekkert endilega viss um að hún sé
tæknivæddari en aðrar konur á hennar aldri, netið
og Facebook sé bara partur af samtímanum. Þó
eru margir yngri en hún sem eru ekki jafn-
tæknivæddir, hvað þá með Facebook-síðu.
„Kannski erum við svona fréttafús úti á landi,
til að vera í sambandi við umheiminn. Ég væri
miklu meira út úr öllu ef ég byggi í Reykja-
vík. Þegar maður býr úti á landi ferðast mað-
ur suður annað slagið,“ segir Guðbjörg að
lokum.
Létt spjall og til að halda
sambandi við fjölskylduna
Níræð amma fylgist með á Facebook
ÖKUMAÐUR í Reykjavík var hand-
tekinn aðfaranótt laugardags grun-
aður um sprúttsölu. Að sögn lög-
reglunnar var hald lagt á fimm
vodkafleyga, gin- og tequila-flöskur
sem fundust í bílnum, auk sex kassa
af áfengum bjór og um 100 þús. kr. í
reiðufé sem er ætlaður söluágóði
áfengis. Við yfirheyrslu viðurkenndi
maðurinn að hafa selt áfengi og ætl-
að að selja birgðirnar.
Við húsleit heima hjá manninum
var hald lagt á átta vodkafleyga og
þrjá kassa af bjór til viðbótar. Að yf-
irheyrslu lokinni var honum sleppt
en hann má búast við kæru.
Tekinn fyrir ólög-
lega áfengissölu