Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009
Lögfræðingar tólf félaga, semeru með skráð skuldabréf í
Kauphöll Íslands, fengu örugg-
lega klapp á bakið í vikunni. Þeir
fundu undanþágu í lögunum sem
gerir félögunum kleift að birta
ekki ársreikning fyrir árið 2008.
Eftir að FL Group, sem breyttinafni sínu í Stoðir á fimmtu-
daginn, hafði til-
kynnt þetta
fylgdu önnur í
kjölfarið.
Vissulega errekstur
margra þessara
félaga í miklu
uppnámi og árs-
reikningur fyrir
árið 2008 gefur takmarkaða
mynd.
Þau hafa hins vegar selt fjár-festum skuldabréf til að fjár-
magna starfsemi sína og lofað að
birta endurskoðaðar upplýsingar
um reksturinn.
Það eina sem fjárfestar getastólað á eru stundum ófull-
komnar upplýsingar um félögin,
sem fjölmiðlum tekst að toga upp
með töngum.
Sem betur fer segist Páll Harð-arson, aðstoðarforstjóri Kaup-
hallarinnar, ætla að fylgja þessum
málum fast eftir. Það er spurn-
ingum um trúverðugleika mark-
aðarins í framtíðinni, sem stjórn-
endur þessara félaga grafa undan.
Eitt félag fer þó aðra leið. N1ætlar að auka upplýsingagjöf
til fjárfesta við þessar erfiðu að-
stæður.
Það eru rétt viðbrögð og ekki íanda þeirra lítilsvirðandi við-
horfa til markaðarins sem of
margir hafa tileinkað sér.
Páll Harðarson
Enn grafa þeir undan traustinu
, ,magnar upp daginn
flokkurinn myndi í nokkru hvika frá sinni stefnu.
Samfylkingarþingmenn í þá veru að nú væri þjóð-
in á hraðferð inn í ESB og þingmenn Vinstri
grænna í þá veru að flokkurinn teldi hag Íslands
betur borgið utan ESB.
Það var ekki fyrr en á fimmtudag, hinn 30. apr-
íl, sem formenn Samfylkingar og Vinstri grænna
gáfu til kynna að líklega yrðu báðir flokkar að
gefa eftir af sínum ýtrustu kröfum í sambandi við
Evrópusambandsaðild til þess að ná samningum
um ESB-mál. Jóhanna Sigurðardóttir sagði við
sama tækifæri að líklega þyrftu flokkarnir rúma
viku enn til þess að mynda ríkisstjórn og gera
með sér málefnasamning.
Ég gerðist svo djörf í morgunþættinum Ísland í
bítið á Bylgjunni á miðvikudagsmorgun hjá þeim
Kollu og Heimi að veðja við Heimi Karlsson um að
myndun nýrrar ríkisstjórnar tækist ekki 1. maí, á
frídegi verkalýðsins, í fyrradag, eins og greinilega
hefur verið draumur þessara tveggja vinstri for-
ingja, Jóhönnu og Steingríms J. Heldur spáði ég
vandræðagangi enn um hríð. Við Heimir gengum
að vísu ekki frá því um hvað við veðjuðum en það
er vitanlega algjört aukaatriði.
Fyrir nákvæmlega átján árum voru þeir Davíð
Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi
formaður Alþýðuflokksins, í sömu sporum og þau
Jóhanna og Steingrímur J. eru núna; þeir voru
saman í skamma hríð úti í Viðey og mynduðu eftir
stuttar viðræður Viðeyjarstjórnina sem svo var
nefnd hinn 30. apríl 1991.
Mér er það enn í fersku minni hversu kampa-
kátur Davíð var og hversu mikla áherslu hann
lagði á að ná því að mynda ríkisstjórnina hinn 30.
apríl því hann gat að sjálfsögðu ekki unnt kröt-
unum þess að hafa myndað ríkisstjórn með Sjálf-
stæðisflokki hinn 1. maí, á sjálfum frídegi verka-
lýðsins. Það hefði verið of stór biti í háls fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og foringja hans að sitja í
fjögur ár í ríkisstjórn sem örugglega hefði verið
nefnd 1. maí-stjórnin af krötum!
Það er enn ekkert sem gefur það til kynna að
markmiðið að mynda ríkisstjórn á viku eða svo ná-
ist og eru rólegheit flokksformannanna illa skilj-
anleg. Það eru svo mörg stór og brýn verkefni
sem bíða nýrrar ríkisstjórnar að brýnt er að ein-
hver verkefnaáætlun og framkvæmd hennar fari
þegar í gang. Fyrirtækin í landinu eru mörg hver
farin í þrot, önnur stefna hraðbyri í sömu átt,
heimilin eru að sligast undan skuldabyrði, allt
of háum vöxtum, allt of mikilli verðbólgu og
atvinnuleysi eykst frá degi til dags.
Á meðan Róm brennur sitja flokks-
formenn Samfylkingar og Vinstri
grænna og þeir sem eru með þeim í
ríkisstjórnarmyndunarviðræðum og
karpa daginn út og daginn inn um eitt
mál, ESB-aðild eða ekki ESB-aðild.
Mál sem leysir ekki þann bráða-
vanda sem íslenskt atvinnulíf á
við að stríða.
agnes@mbl.is
Ég er farin að velta því fyrir mér hvenær ég fæ
tilefni til þess að helga þennan sunnudagspistil
minn öðrum sögupersónum en þeim Jóhönnu Sig-
urðardóttur, formanni Samfylkingarinnar og for-
sætisráðherra, og Steingrími J. Sigfússyni, for-
manni Vinstri grænna og fjármálaráðherra.
Sennilega verður það ekki fyrr en þeim tekst að
semja um myndun nýrrar meirihlutastjórnar
þessara tveggja flokka eða að þeim tekst að sigla
viðræðum sínum í strand, þannig að samninga-
viðræður hefjist um myndun annars konar stjórn-
ar en þessara flokka.
Allt er það með miklum ólíkindum, hversu klúð-
urslega hefur tekist til hjá hinu trúlofaða pari á
þeirri viku sem liðin er frá því ljóst varð að flokk-
arnir, sem mynduðu minnihlutastjórn frá 1. febr-
úar sl., höfðu náð að tryggja sér þingmeirihluta.
Að vísu hafa þau Jóhanna og Steingrímur J.
ekki verið fremst í flokki í vandræðaganginum til
vinstri, heldur flokkssystkin þeirra og má þá ekki
á milli sjá hvor hefur staðið sig betur í vitleysu og
klúðri, Samfylking eða Vinstri græn.
Það lá fyrir, löngu fyrir kosningar, að VG og
Samfylking gengu bundin til kosninga og hugðu
ekki á neitt annað en mynda nýja ríkisstjórn strax
í kjölfar kosninganna næðu flokkarnir til þess
þingmeirihluta. Fyrst hringtrúlofun var bundin
fastmælum, hvers vegna í ósköpunum var tíminn
ekki nýttur í aðdraganda kosninganna til að
finna sáttaleið sem báðir gátu sætt sig við hvað
varðar ESB aðildarviðræður?
Héldu forystumenn þessara flokka að
lausnin lysti þá bara af himnum ofan eins og
elding strax og kosningaúrslit lægju fyrir?
Einhver töfralausn eða Barbabrella? Ég bara
spyr!
Var ekki ljóst frá upphafi að himinn og haf
var á milli flokkanna í þessu eldfima deilu-
efni sem þýddi bara eitt ef raunhæfur
möguleiki átti að vera á því að þeir
næðu saman um nýja stjórnar-
myndun: Það yrði að finna leið þar
sem báðir gæfu eftir af ýtrustu
kröfum, þannig að báðir héldu
andlitinu gagnvart kjós-
endum sínum?
Þingmenn úr báðum
flokkum hafa gefið yfirlýs-
ingar, bæði fyrir kosningar
og eftir að úrslit lágu fyrir, sem
báru það með sér að hvorugur
Agnes segir …
Davíð Oddsson
og Jón Baldvin
Hannibalsson
Héldu forystumenn þessara
flokka að lausnin lysti þá bara af
himnum ofan eins og elding strax
og kosningaúrslit lægju fyrir?
Vandræðagangur til vinstri
! "
#$%
& ' ( )*+,,# )*#-,#
!" # $ %
&'
" ' . ' /
( )
* + ,-
(+% "
-+ &*
.
,
000 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 4 alskýjað Lúxemborg 11 heiðskírt Algarve 16 heiðskírt
Bolungarvík 3 skýjað Brussel 8 heiðskírt Madríd 9 heiðskírt
Akureyri 5 alskýjað Dublin 6 léttskýjað Barcelona 13 heiðskírt
Egilsstaðir 5 skýjað Glasgow 7 léttskýjað Mallorca 16 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 5 alskýjað London 11 léttskýjað Róm 11 heiðskírt
Nuuk -3 heiðskírt París 8 heiðskírt Aþena 17 heiðskírt
Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 11 léttskýjað Winnipeg -1 heiðskírt
Ósló 7 heiðskírt Hamborg 9 heiðskírt Montreal 11 alskýjað
Kaupmannahöfn 9 heiðskírt Berlín 8 heiðskírt New York 17 þoka
Stokkhólmur 10 heiðskírt Vín 11 heiðskírt Chicago 9 léttskýjað
Helsinki 11 heiðskírt Moskva 1 heiðskírt Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
INNLENT STAKSTEINAR
VEÐUR
3. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.13 3,2 7.47 1,0 14.03 3,0 20.14 1,1 4:52 21:58
ÍSAFJÖRÐUR 3.20 1,8 10.02 0,4 16.25 1,5 22.24 0,5 4:40 22:20
SIGLUFJÖRÐUR 5.22 1,1 11.52 0,3 18.29 1,1 4:22 22:04
DJÚPIVOGUR 4.48 0,8 10.59 1,6 17.08 0,7 23.44 1,8 4:17 21:32
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á mánudag
Suðvestan 10-15 m/s S-lands,
en austan 8-13 fyrir norðan.
Víða rigning eða skúrir og hiti 3
til 7 stig.
Á þriðjudag
Norðvestan 8-15 m/s, hvassast
A-ast. Skúrir eða él víða um
land og hiti 0 til 5 stig, en bjart
á SA-landi og hiti 5 il 10 stig.
Á miðvikudag
Austlæg átt, 5-10 m/s og smá-
skúrir eða él, en 13-15 og rign-
ing S-lands um kvöldið. Hiti 0
til 8 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag og föstudag
Útlit fyrir vaxandi norðanátt
með rigningu, en síðar slyddu
og kólnandi veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Vestan- og suðvestan 8-15 m/s
með skúrum eða slydduéljum,
en léttir til austanlands síðdeg-
is. Hægari sunnanátt á morgun
og úrkomulítið, en bjartviðri
NA-lands. Hiti 4 til 10 stig, hlýj-
ast fyrir austan.