Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 svo að sópa poppkornið og allt draslið í bíóinu eftir sýningar og fengum að launum frítt í bíó, sáum allar mynd- irnar, líka það sem var bann- að.Bandarískar hryllingsmyndir og franskar djarfar eins og Nakta konu í hvítum bíl og allar myndirnar með Brigitte Bardot með dönskum skýr- ingartextum. og þannig lærði maður dönsku. Á Menntaskólaárunum stofnuðum við Kvikmyndaklúbb Menntaskólans þar sem maður kynntist klassíkinni eins og hún lagði sig og svo var frá- bær kvikmyndaklúbbur í Tjarnarbíói sem hét Filmía. Seinna skrifaði ég umkvikmyndir fyrir Þjóðviljann í tíu ár, sat kannski aleinn prufusýningar í þúsund manna sal og gat svo fjallað ítarlega um myndirnar á heilsíðu í sunnudagsblaðinu. Þetta voru t.d. flestar þær frábæru myndir sem Há- skólabíó sýndi í mörg ár sem Mánu- dagsmyndirnar.“ Leikhúsið Fyrsta leiksýning Þórhalls var Maður og kona í fyrsta landsprófs- bekk í Hagaskóla. „Þá var ég látinn leika Hjálmar tudda, sem var síét- andi og hafði alltaf verið leikinn af mjög sverum mönnum. Það þótti sniðugt að ég skyldi leika hann, svona lítill og aumingjalegur. Í MR var ég eftir hádegi í skól- anum í þriðja og fjórða bekk, líka á laugardögum, eins og þá var tíska, og fór því ekki í Herranótt fyrr en í 5. og 6. bekk. Þá kom Benedikt Árnason, sem var aðalleikstjóri Þjóðleikhúss- ins, og setti fyrra árið upp Grímudans eftir Holbert í Iðnó og seinna árið Oscar Wilde í fyrsta skipti á Íslandi, „Importance of Being Earnest“. Þá var ég formaður Herranætur og við sýndum í Þjóðleikhúsinu, en það hafði ekki verið gert áður. Að sýning- unni vann einvalalið, meðal annars Pétur Gunnarsson Pétur Lúðvíksson, Katrín Fjeldsted, Jón Örn Mar- inósson og Siggi Páls, sem var sviðs- maður. Þorsteinn Jónsson var í ár- gangnum og tók litla kvikmynd baksviðs á átta millimetra filmu og þar má m.a. sjá Sigga Páls og Pétur Gunnars vinna að tjaldabaki.“ Fljótlega eftir menntaskóla fór Þórhallur í leiklistarskóla Þjóðleik- hússins, en þar var nemendunum dembt beint inn í starfið í leikhúsinu og þeir voru þar frá 9 á morgnana til 23 á kvöldin. „Þar höfðum við nokkra frábæra kennara eins og Gunnar Eyjólfsson sem ég hef svo unnið mjög mikið með í 30 ár og svo mætti nefna Stefán Íslandi o.fl. o.fl. Seinna var skorið á þessi tengsl þegar Leiklist- arskólinn var stofnaður, að nemar mættu koma inn í leikhúsið, en það er aftur að breytast núna. Þetta var ótrúlegur skóli, okkur buðust lítil hlutverk og ég var strax kominn í stórt hlutverk grislingsins í barna- sýningunni Bangsímon á stóra svið- inu undir leikstjórn Baldvins Hall- dórssonar. Síðan var ég í stóru hlutverki í Fiðlaranum á þakinu. Þá var ég enn á öðru ári í skólanum og fjörutíu ár voru liðin í mars síðan það var. Vorið 1970 þegar ég útskrifaðist, fékk ég svo stærsta hlutverk sem ég hef nokkurn tíma leikið í verkinu Malcolm litla og baráttu hans gegn geldingunum undir leikstjórn Bene- dikts Árnasonar. Ég varð seinna að- stoðarleikstjóri hjá honum í Þjóðleik- húsinu og líka hjá Brynju Benedikts- dóttur. Ég fékk að leikstýra minni fyrstu sýningu tveimur þremur árum eftir útskrift og smám saman mjakaði ég mér alfarið yfir í leikstjórnina.“ Pólitíkin Þórhallur er alinn upp við líflegar umræður um pólitík, en faðir hans Sigurður Guðmundsson var ritstjóri Þjóðviljans í 30 ár. „Auðvitað kynnt- ist ég öllum þessum köllum sem tengdust Þjóðviljanum. Við áttum heima í litlu húsi á Fálkagötunni, þangað komu þeir í kaffi og svo sat maður eins og fluga á vegg og hlust- aði á skáldin eða pólitíkusana, skáldin voru líka pólitísk. Ég er því með þetta í genunum og byrjaði að bera út Þjóðviljann sex ára. Þá voru þetta 80 blöð á stóru svæði, enda ekki áskrifandi í hverju húsi að Þjóðviljanum. Ég vaknaði sex á morgnana, átti að mæta í skólann klukkan átta, og hljóp í myrkrinu með blaðið í Stúdentagarðinn, Skerjafjörð og vestur í Melabragga og allt þar á milli. Svo seldi maður merki 1. maí. Það var mikil búbót þegar ég hafði safnað mér fyrir hjóli, því þá gat ég hjólað með blaðið, en þannig snerist lífið um að safna og vinna, eins og hjá öllum öðrum. Við vorum auðvitað stimpluð kommafjölskyldan. Ég fór jafnan framhjá Grimsby á leið í skólann, stóru timburhúsi sem breytt hafði verið í íbúðir á vegum félagsmála- yfirvalda borgarinnar. Þar bjó fátækt fólk og ég hafði haldið að pabbi væri að berjast fyrir þetta fólk, en svo fékk maður snjóboltann í sig þegar maður hjólaði framhjá, og hrópað var: „Hel- vítis fíflið þitt!“ Þá var húsnæðis- skortur í borginni og fólkið sem kaus alltaf Sjálfstæðisflokkinn var í hús- næði á hans vegum, því Sjálfstæð- isflokkurinn réð borginni og úthlutaði því húsnæðinu. Þetta fólk hélt Sjálf- stæðisflokknum við völd í Reykjavík, ásamt því að hinir flokkarnir voru sundurlyndir. Það er nefnilega stað- reynd að Sjálfstæðisflokkurinn náði aldrei 50% fylgi í Reykjavík, en var samt með meirihluta, því hinir flokk- arnir voru sundraðir. Þetta fannst mér skondið, að þeir grýttu okkur alltaf þessir gæjar í Grimsby. En það var auðvitað afar fjölskrúð- ugt mannlíf þarna á Holtinu og þarna gengu ljósum logum allar persón- urnar sem Einar Kárason lýsir skemmtilega í Djöflaeyjunni . Hall- dór fisksali, stofnandi Knattspyrnu- félagsins Þróttar, kom akandi á pall- bílnum Fálkagötuna og æpti í gjallarhorn: „Fiskur! Fiskur!“ Þá komu konurnar út úr húsunum. Svo opnaði hann búð seinna í litlu bakhúsi innar í götunni. Það var nóg pláss fyr- ir okkur krakkana þarna, tún og auð svæði alveg niður að Ægisíðu. Allir Hagarnir voru óbyggðir og verið að byggja Melana. Það varbrjálæðislegt að leika sér á byggingarsvæðunum, skylmast og ærslast, og svo var fót- boltavöllurinn þar sem nýjustu pró- fessorabústaðirnir standa núna.“ – Maður sér ekki marga sex ára krakka stunda blaðburð núorðið? „Þetta var bara þannig þá. Ég fékk alla þessa baráttu í blóðið og það kom aldrei annað til greina en að það mót- aði mann. Ég hef verið virkur í sam- tökum leikara og leikstjóra, starfs- mannafélagi leikhússins og fjölmörgum stjórnum. Þegar maður skoðar allt sem því fylgir, þá er ótrú- legt hvað maður hefur setið marga fundi og skrifað margar ræður – hvernig í ósköpunum nennti maður þessu? Svo róast þetta smám saman, en þetta er í genunum, það breytist ekki. Maður skiptir ekkert um flokk eða hugmyndafræði!“ – Af hverjum hefurðu lært mest í leikhúsinu? „Ég held að það hafi verið á þess- um fyrstu árum. Benedikt Árnason er minn lærimeistari, hann var leik- stjórinn minn í menntaskóla og síðan vann ég heilmikið með honum fyrstu árin í Þjóðleikhúsinu. Hann var frá- bær leikstjóri, frjór og skapandi, og er sá maður sem sett hefur upp flest- ar sýningar allra í Þjóðleikhúsinu. Hann setti þar upp 50 sýningar og ég held að met hans verði seint slegið. Hans síðasta sýning var Söngvaseið- ur í Þjóðleikhúsinu – ég vona að ég eigi nokkrar eftir enn.“ í afmælið Ljósmynd/Grímur Bjarnason Framtíðin Þórhallur innan um krakkana í Söngvaseið, sem flestir eru að þreyta frumraun sína á leiksviði. Í nunnuklaustri Valgerður Guðnadóttir geislar í hlutverki Maríu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.