Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 30

Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 6. maí 1979: „Geir Hallgrímsson benti einnig á hlut sjálfstæðis- manna í framgangi helztu hags- munamála launþega síðustu ár. Í stjórnartíð sjálfstæðismanna var gert mesta átak, sem um getur í húsnæðismálum láglaunafólks. Að frumkvæði sjálfstæðismanna hef- ur mikið áunnizt í verðtryggingu lífeyris almennra launþega, en í þeim efnum hefur ríkt óþolandi mismunun milli opinberra starfs- manna og annarra launþega. Geir Hallgrímsson benti einnig á, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur öðr- um flokkum fremur sýnt í verki vilja sinn til að bæta kjör lág- launafólks eins og gleggst kom fram á tímabili síðustu rík- isstjórnar.“ . . . . . . . . . . 7. maí 1989: „Í ræðu sem Ragn- hildur Helgadóttir, alþingismaður og formaður sendinefndar Íslands hjá Evrópuráðinu, flutti í um- ræðum á Alþingi um skýrslu ut- anríkisráðherra benti hún meðal annars á það að innan Evrópu- bandalagsins gæti vaxandi til- hneigingar til að fara inn á ýmis svið, sem eru ekki efnahags- samstarf í venjulegum skilningi. Sagði hún að vegna þess hefðu fulltrúar voldugra þjóða í Evr- ópubandalaginu undirstrikað þörf þjóðanna til að halda einkennum sínum og sjálfstæði í því sam- bandi. Taldi Ragnhildur að þessi þörf væri algerlega virt í stofn- skrá og starfi Evrópuráðsins og það væri einmitt atriði sem gerði að verkum að ríkin gætu sótt styrk við eigið sjálfstæði með því að taka með virkum hætti þátt í slíku starfi. Í framhaldi af þessu sagði Ragnhildur að ýmsir þættir Íslands í starfi innan Evr- ópuráðsins hafi verið alltof dauf- legir og þeim ekki nægilega vel sinnt. Evrópuráðið kemur ekki í stað Evrópubandalagsins og enginn vafi er á því, að Evrópu- bandalagið á eftir að færa út kví- arnar á næstu árum, bæði ná til fleiri þjóða en nú og láta sig fleiri mál skipta.“ Úr gömlum l e iðurum Endurheimtvirks hluta-bréfamark- aðar er þáttur í endurreisn íslenzks efnahagslífs. Slíkur markaður er nauðsynlegur af mörgum ástæðum. Hann auðveldar góðum fyr- irtækjum að sækja sér fé til vaxtar. Hann styrkir sparnað al- mennings. Hann tengir saman hagsmuni atvinnurekenda og launþega; almenningur er ekki aðeins í vinnu hjá fyrirtækj- unum heldur líka í hópi eigenda þeirra. Virkur hlutabréfamark- aður stuðlar að dreifingu eign- arhalds og þar með áhrifa og valda í atvinnulífinu. Og síðast en ekki sízt er hann mótvægi við ríkisvæðingu atvinnulífsins. Eyjólfur Konráð Jónsson heit- inn benti á að ef fjármálavaldið færðist á hendur þeirra, sem fyrir hefðu pólitíska valdið, væri fyrst veruleg hætta á misnotkun valdsins. Hér var orðinn til líflegur hlutabréfamarkaður. Verð flestra fyrirtækja á honum var hins vegar áreiðanlega ofmetið þegar flugið var hæst. Jafn- framt dró úr áhrifum almenn- ings á þessum markaði. Yfir 50.000 fjölskyldur áttu hlutabréf eftir einkavæðingu ríkisbank- anna og fleiri fyrirtækja, þar sem hluti bréfanna var seldur í almennu útboði. Hins vegar safnaðist sífellt stærri hluti hlutabréfaeignar á fáar hendur. Því fylgdi líka afskráning margra fyrirtækja og þar með fækkaði fjárfestingartækifær- um almennings. Nú er úrvalsvísitalan, sem fyrir fáeinum misserum var vin- sælt umræðuefni í ferming- arveizlum, nánast á öskuhaug- unum eins og Halldór Baldursson skopteiknari bregð- ur upp mynd af í Morgunblaðinu í gær. Kauphöllin er aðeins svipur hjá sjón. Í Morgunblaðinu í gær er líka athyglisverð grein eftir Úlf Níelsson hagfræðing, sem veltir fyrir sér framtíð Kauphallarinnar. Úlf telur að litlar líkur séu á því að fjármála- fyrirtæki snúi aftur í Kauphöll- ina. Það er þó ekki hægt að úti- loka og væri raunar æskilegast að þannig yrði staðið að einka- væðingu nýju ríkisbankanna að almenningur fengi að eignast í þeim hlut. En það verður ekki strax. Úlf telur hins vegar að Kaup- höllin eigi að reyna að laða að sér tvo hópa fyrirtækja. Annars vegar lítil og meðalstór fyr- irtæki, hins vegar sjávarútvegs- fyrirtæki. Til þess að bjóða fyrr- nefnda hópinn velkominn telur Úlf að Kauphöllin þurfi að ger- breyta regluverki sínu og við- skiptakerfi. Þá telur hann kom- inn tíma til að gera alvöru úr hugmyndum um sérhæfingu í þágu sjávarútvegsfyrirtækja – sem nú njóta á ný viðurkenn- ingar sem burðarás í atvinnulíf- inu – og reyna fyrst að laða að íslenzk fyrirtæki og síðan erlend sjávarútvegsfyrirtæki, sem nytu góðs af sérþekkingu Íslendinga á greininni. Úlf Níelsson bendir sömuleið- is á það, sem liggur nokkurn veginn í augum uppi; til þess að hægt sé að byggja upp hluta- bréfamarkað á ný verður að skipta um gjaldmiðil. Íslenzka krónan nýtur ekki trausts al- þjóðlegra fjárfesta og þar með ekki íslenzkur atvinnurekstur heldur. Því fyrr, sem menn átta sig á þessu, þeim mun betur mun ganga að koma hér á aftur virkum hlutabréfamarkaði. Nýr gjaldmiðill myndi auðvelda verkefnið} Endurreisn hlutabréfamarkaðar H vað sér Samfylkingin þegar hún horfir yfir samninga- borðið í stjórnarmynd- unarviðræðum við Vinstri græna? Sér hún það sem aðrir sjá? Sér hún að hún er í viðræðum við flokk sem er mesti afturhaldsflokkur sem nú á sæti á þingi? Nei, sjálfsagt sér Samfylkingin ekki þetta. Það hentar henni ekki núna að horfast í augu við raunveruleikann. En sá tími mun koma að Samfylkingin verður að horfast í augu við þá staðreynd að hún fór í bandalag við flokk sem hún á enga samleið með. Fæstir virðast hafa mikla trú á því að samstarf Samfylkingar og Vinstri grænna verði lífseigt. Ekkert bendir til að Vinstri grænir séu stjórntækari nú en þeir voru í upphafi þeg- ar þeir mynduðu sinn litla þjóðlega afturhaldsflokk. Samfylkingin á bara ekki um annað stjórnarmynstur að velja nú um stundir. Sjálfstæðisflokkurinn er hrun- inn og þarf að fara í stórfellt innra uppgjör og end- urbyggingu. Þjóðarinnar vegna er rétt að óska þess að frjálslyndari armur Sjálfstæðisflokksins nái að snúa af sér litlu harðlínuklíkuna sem lagði sitt af mörkum til að leggja flokkinn nánast í rúst, meðal annars með því að berjast gegn lýðræðislegum umræðum um Evrópusam- bandið. Samfylkingin ætti einnig að horfa vonaraugum til Framsóknarflokksins. Formaður þess flokks er mætur maður sem á skilið að leiða flokk sinn á sig- urbraut. Það hlýtur að vera eftirsóknarvert fyrir jafnaðarmenn að eiga samstarf við frjáslyndan miðjuflokk þar sem skynsemi er í forgrunni. Vonandi verður Framsókn- arflokkurinn þannig flokkur. Svo eitthvað jákvætt sé sagt um Vinstri græna verður að telja þeim flokki til tekna að þar hugsa menn alltaf upphátt. Maður veit því alltaf hvað þeir meina. Þegar ráð- herra flokksins segist korteri fyrir kosn- ingar vera á móti olíuleit þá getur enginn efast um að einmitt það er skoðun ráð- herrans. Reyndar reynist mörgum erfitt að átta sig á því hvernig hægt sé að vera á móti olíuleit en Vinstri grænir eru á móti svo mörgu sem öðrum þykir sjálfsagt að þarna er bara enn eitt skringilega dæmið. Þegar út úr frambjóðendum Vinstri grænna skopp- uðu setningar um skattahækkanir, launalækkanir og eignaskatta þá var heldur ekki hægt að efast um að þeim var hjartans alvara. Og allir vita að flokksfor- ystan hefur sömu andúð á ESB og litla harðlínuklíkan í Sjálfstæðisflokknum. Auðvitað ættu þessi litlu öfl að fallast í faðma og einangrast saman. Samfylkingin er nú stærsti flokkur landsins og hefur ýmis tækifæri til að koma góðum hlutum í verk. Því miður er hætta á að stöðnun blasi við meðan Vinstri grænir eru hafðir með í farteskinu. En svo hlýtur að koma betri tíð – án Vinstri grænna. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Hvað sér Samfylkingin? Opið skemur og 10- 12 milljónir sparast FRÉTTASKÝRING Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is L eikskólar á Akureyri hafa verið opnir frá kl. 7.45 til 17.15 alla virka daga en sá tími verður styttur í annan endann og skólunum lokað kl. 16.15, fyrst og fremst í hagræðingarskyni; með þessum hætti verður dregið úr launa- kostnaði. Samkvæmt upplýsingum frá bæn- um hafa 6-7% barna sem eru á leik- skólunum dvalið þar síðasta klukku- tímann sem þeir hafa verið opnir. Frá efnahagshruninu í haust hefur farið fram ítarleg skoðun á rekstri Akureyrarbæjar eins og margra ann- arra sveitarfélaga. „Það er nauðsyn- legt að draga úr kostnaði. Við erum komin alveg inn að beini,“ sagði Sig- rún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri í Morgunblaðinu í byrjun apríl. Breytingar nauðsynlegar Nokkrum dögum síðar sagði Sigrún Björk, í aðsendri grein í blaðinu: „Við horfum einfaldlega fram á það sem þjóð að opinber þjónusta var byggð upp á góðæristímum en þarf í dag að mæta öðrum tímum og gerbreyttri fjárhagsstöðu. Við verðum að horfast í augu við að það þarf að stokka spilin upp á nýtt og endurhugsa alla þjón- ustu frá grunni, hvers við getum verið án og hverju við getum mögulega breytt – án mikils sársauka.“ Bæjarstjórinn á Akureyri hefur kallað eftir þjóðarsátt hvað þetta varðar. Nauðsynlegt sé að stíga þessi skref. Fáeinum dögum eftir að Sigrún Björk lýsti þessu yfir var ákveðið að stytta skólatíma leikskólabarna og foreldrum tilkynnt breytingin bréf- lega. Ekki er vitað til þess að formlega hafi verið ákveðið að stytta leik- skóladaginn í öðrum af stóru sveit- arfélögum landsins en það mun hafa verið rætt. Viðbrögð foreldra á Akureyri hafa verið þónokkur, eins og búast mátti við, og töluverður fjöldi hefur lýst óánægju með breytingarnar. Þeir eru fyrst og fremst ósáttir sem hafa nýtt sér leikskólann til kl. 17.15 vegna eig- in atvinnu en sjá nú fram á að þurfa að hætta fyrr á daginn og verða þar með af einhverjum tekjum. Í framhaldi af viðbrögðum foreldra ræddi skólanefnd, á fundi 20. apríl, hugmyndir að útfærslu á breyttum tíma sem leikskólarnir eru opnir; að skoðað verði hvort hægt verði að bjóða upp á þann möguleika að for- eldrar geti greitt aukalega fyrir tíma frá 7.30-7.45 og 16.15-16.30 ef sex eða fleiri foreldrar óska eftir því í hverj- um leikskóla fyrir sig. Nefndin frest- aði þá afgreiðslu málsins. Fyrir skömmu var búið að innrita 230 börn, sem fædd eru árið 2007 og fyrr, í leikskóla bæjarins næsta vetur. Reiknað er með að þau verði eitthvað fleiri. Ef gert er ráð fyrir því að for- eldrar 6-7% barnanna hafi hugsað sér að þau yrðu í skólanum til 17.15 er þar um að ræða um það bil 15 börn. Óljóst er hvort breytingin verður til frambúðar en það þykir allt eins líklegt. Bent hefur verið á að nú þeg- ar sé sumum leikskólanna lokað kl. 16.15 vegna þess hve plássin síðasta klukkutímann eftir það hafa verið illa nýtt. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Æðislegt Börn á leikskólanum Síðuseli skemmtu sér konunglega þegar brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrovnik kom í heimsókn á sínum tíma. MEÐ því að hafa leikskóla opna klukkustund skemur á degi hverj- um hyggst Akureyrarbær spara 10-12 milljónir króna í rekstri á ári. Breytingin hefur verið ákveð- in og tekur gildi frá 1. ágúst. Akureyrarbær rekur 11 leikskóla í bænum og einn í Hrísey. Auk þess styrkir bærinn tvo einkarekna leik- skóla, Hólmasól sem er rekinn af Hjallastefnunni ehf. og Hlíðaból sem Hvítasunnukirkjan á Akureyri rekur. Í október 2007 dvöldu 1.047 börn í leikskólunum á Akureyri. Mánaðargjald fyrir barn sem er fjórar klukkustundir á leikskóla á dag er 8.536 en 9.945 með morg- unverði eða síðdegishressingu. Fjölskylduafsláttur er veittur af grunngjaldi; yngsta barn greiðir fullt gjald, annað barn fær 30% af- slátt, það þriðja 60% og ekki er greitt fyrir fjórða barn. Fyrir barn sem er níu og hálfa klukkustund á leikskóla daglega er mánaðargjaldið 20.273 krónur en 25.913 með fullu fæði. Gjald fyrir börn einstæðra foreldra eða náms- manna, þar sem báðir foreldrar eru í námi, er lægra. GAMAN Í SKÓLANUM ›› Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.