Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 35

Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 35
Umræðan 35 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 ÚRSLIT nýafstað- inna alþingiskosninga marka tímamót á margan hátt og eru tví- mælalaust söguleg. Eins og jafnan er rætt af kappi hverjir séu sigurvegarar kosning- anna og sýnist þar sitt hverjum. Í mínum huga er einn sigur að sönnu stærstur og það er sigurinn sem birtist í stórauknum hlut kvenna á Alþingi. Konur eru nú 43% þingmanna og hafa aldrei verið fleiri. Mikil endurnýjun verður í þinginu þar sem 27 nýir þingmenn taka sæti, 14 karlar og 13 konur. Við þetta hefur Ísland rifið sig upp úr fimmtánda sæti í það fjórða á lista yfir þau þjóðþing heimsins þar sem hlutfall kvenna er hæst. Árið 1967 sat aðeins ein kona á þingi en í kosningum 1971 fjölgaði þeim í þrjár. Þar við sat til ársins 1983 þegar Samtök um kvenna- framboð fóru að hafa áhrif og níu konur tóku sæti á þingi. Í kosn- ingum árið 1999 juku konur hlut sinn á Alþingi um heil 10%. Þá sett- ust 22 konur á Alþingi en karlar voru 41 og hlutfall kvenna því 35%. Þennan góða árangur má án efa rekja til þverpólitísks átaks sem ráð- ist var í árið 1998 til að fjölga konum í stjórnmálum. Það hefur reynst erf- itt að rjúfa 35% múrinn og hlutur kvenna á Alþingi hefur verið nokkuð sveiflukenndur um og fyrir neðan þetta mark síðastliðinn áratug. Árangurinn í nýafstöðnum kosn- ingum er því afgerandi og mikið ánægjuefni. Áhrif stjórnmálaflokka á framgang kvenna Innviðir flokka, menning þeirra og viðhorf skipta miklu um það hvort kynin eigi þar jafna möguleika til framgangs og áhrifa. Þegar kemur að kosningum hafa kjósendur vissu- lega síðasta orðið en áður hafa flokk- arnir haft sinn háttinn á við að raða frambjóðendum á lista og ráða þann- ig miklu um lokanið- urstöðuna. Fyrir alþingiskosn- ingarnar 25. apríl sendi ég öllum formönnum stjórnmálaflokkanna bréf með hvatningu um að tryggja konum örugg sæti á framboðs- listum. Hlutfall kynja var jafnt hjá þremur flokkum sem náðu kjöri til Alþingis að þessu sinni, þ.e. hjá Samfylkingunni, Vinstri grænum og Borgarahreyfingunni. Tveir fyrr- nefndu flokkarnir beittu kynjakvót- um, kynjasjónarmiðum og fléttul- istum til að gæta jafnræðis kynja við uppröðun á lista. Hjá Framsókn- arflokki og Sjálfstæðisflokki virðist jafnréttissjónarmiða ekki hafa verið gætt og það sýndi sig í niðurstöðum kosninganna. Konur eru þrjár af níu þingmönnum Framsóknar og fimm af sextán þingmönnum Sjálfstæð- isflokks. Efla þarf hlut kvenna í sveitarstjórnum Alþingi samþykkti nýlega ályktun um að félagsmálaráðherra feli Jafn- réttisstofu að hrinda af stað aðgerð- um til að efla hlut kvenna í sveit- arstjórnum en sveitarstjórnarkosningar verða haldnar á næsta ári. Þetta er stórt og mikilvægt verkefni, því enn vant- ar töluvert upp á jafnræði kynja á þessum vettvangi. Eftir síðustu kosningar var hlutur kvenna í sveitarstjórnum tæp 36% á landsvísu. Hæst var hlutfallið á höf- uðborgarsvæðinu þar sem konur voru 40% kjörinna fulltrúa. Í fimm sveitarfélögum var engin kona í sveitarstjórn en konur voru í meiri- hluta í ellefu sveitarstjórnum. Konur eiga enn lengra í land þegar kemur að forystuhlutverkum hjá sveit- arfélögunum. Í september 2008 voru konur 28% starfandi bæjarstjóra, sveitarstjóra og oddvita á móti 72% karla. Það hefur sýnt sig að átaksverk- efni í jafnréttismálum skila árangri. Þverpólitísk nefnd sem stofnuð var árið 1989 til að auka hlut kvenna í stjórnmálum og starfaði í fimm ár hleypti nýju blóði í jafnréttisumræð- una og hafði tvímælalaust mikil áhrif á viðhorf karla og kvenna í þessum efnum. Aðgerðir á hennar vegum voru fjölbreyttar, meðal annars setti hún af stað auglýsingaherferð sem enn er í minnum höfð og hefur verið notuð um nokkurra ára skeið sem kennsluefni í samfélagsmiðuðum herferðum við virtan bandarískan háskóla. Hún efndi til námskeiða fyrir stjórnmálakonur og verðandi stjórnmálakonur um allt land, hélt ráðstefnur og fjöldann allan af fund- um. Breytt gildismat og ný viðhorf Íslensk þjóð stendur á tímamót- um. Við höfum beðið skipbrot sem rekja má að verulegu leyti til þess að siðferðileg grunngildi eins og rétt- læti, heiðarleiki og jafnrétti voru fyrir borð borin á kostnað græðgi og einstaklingshyggju. Siðferði í stjórn- málum hefur verið verulega áfátt og þarfnast gagngerrar endurskoð- unar. Augu okkar eru að opnast, tími breytinga er framundan og þjóðin kallar á siðbót á öllum sviðum. Ég er sannfærð um að breytt gildismat og ný viðhorf muni leiða okkur í átt að auknu jafnrétti á öllum sviðum sam- félagsins og því er mikilvægt að hamra járnið meðan það er heitt. Ég fagna mjög ályktun Alþingis um að efla hlut kvenna í sveit- arstjórnum og hef falið Jafnrétt- isstofu að hrinda af stað aðgerðum í því skyni. Ég mun styðja við þetta verkefni eins og nokkur kostur er. Jafnrétti kynja í orði og verki á að vera ein af undirstöðum samfélags- ins og sú áhersla er mikilvægur þátt- ur í því að byggja upp betra Ísland. Eftir Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur »Einn sigur er að sönnu stærstur og það er sigurinn sem birtist í stórauknum hlut kvenna á Alþingi. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Höfundur er ráðherra jafnréttismála. Sigurvegarar alþingiskosninganna MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskil- ur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í um- ræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi ein- stakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við grein- um sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er not- að þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefn- um. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina @ Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. Ragnar Gíslason lögg. fasteignasali. SMIÐJUVEGUR 2 KÓPAVOGI Höfum í einkasölu 1.172 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð með mikilli lofthæð og tveimur stórum innkeyrsludyrum. Húsnæðið er einn stór salur með skrifstofum og hefur verið nýtt sem tjóna- skoðunarstöð bíla. Óskað er eftir tilboði í eignina og réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Allar uppl. veitir Ingileifur Einarsson lögg. fasteignasali s. 8941448 FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. ANDARHVARF 11E - KÓPAVOGI GLÆSILEG SÉRHÆÐ ÁSAMT BÍLSKÚR. OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, KL. 17-18. Glæsileg 159,4 fm 5 herbergja neðri sérhæð í tveggja hæða húsi að meðt. 25,1 fm bílskúr á góðum útsýnisstað. Eignin er innréttuð á vand- aðan og smekklegan hátt. Borðstofa opin við eldhús, rúmgóð stofa með útgangi á verönd til suðausturs, 3 rúmgóð herbergi og fallegt baðher- bergi, flísalagt í gólf og veggi. 25,1 fm bílskúr. Vel staðsett hæð með náttúruna, verslun og aðra þjónustu í næsta nágrenni. SKIPTI Á MINNI EIGN MÖGULEG. VERÐTILBOÐ. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG FRÁ KL. 17-18. VERIÐ VELKOMIN. SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Vorum að fá í sölu þetta reisulega einbýlishús í Vesturborginni. Húsið er samtals 258,6 fm að gólffleti, þ.e. íbúð er 191 fm og bílskúr 68 fm. Lóðin er 970 fm. Húsið, sem er kjallari hæð og ris skiptist þannig: Á hæð- inni eru forst. 3 saml. stofur og eldhús. Í risi eru 3 svefnherb. og baðherb. Í kjallara eru 2 herb. geymslur o.fl. Tvöfaldur bílskúr byggður árið 1988 með geymslurými undir. Húsið, sem er laust strax er snyrtilegt en þarfnast endurbóta að innan. Gler og gluggar eru endurnýjaðir. Húsið stendur á frábærum stað innst við Einimelinn. Gróinn garður. Stutt í alla þjónustu, s.s. verslun, grunnskóla og KR-svæðið. Ýmsir möguleikar á nýtingu. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu, sem sýnir eignina. Einimelur – Einbýlishús Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. M b l1 10 90 95

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.