Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 39
Minningar 39 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 ✝ Sigrún Vilbergs-dóttir fæddist í Reykjavík 29. desem- ber 1945. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 20. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Vilberg Skarphéð- insson, f. 11.12. 1921, d. 8.6. 2004 og Sveins- ína K. Guðmunds- dóttir, f. 21.8. 1918, d. 1.8. 1979. Systur Sig- rúnar eru Erna, f. 17.2. 1948 og Val- gerður, f. 7.10. 1952. Sigrún giftist 9.8. 1969 Guðna Stefánssyni, f. 14.2. 1942, d. 2.6. 2008, syni hjónanna Stefáns Eiríks- sonar, f. 20.7. 1905, d. 14.8. 1978 og Guðnýjar Guðnadóttur, f. 27.12. 1908, d. 14.8. 1999. Sigrún og Guðni eignuðust tvær dætur. Þær eru 1) Guðný, f. 17.5. 1970, maki Jóhann Örn Ás- geirsson, f. 24.8. 1970. Börn þeirra eru Aron, f. 24.6. 1998, og Birna, f. 11.6. 2001. 2) Gréta, f. 19.3. 1976, maki Róbert Ólafs- son, f. 19.10. 1972. Börn þeirra eru Vil- berg, f. 24.6. 2005, og Guðni, f. 28.9. 2006. Sigrún lauk stúd- entsprófi frá MR 1965 og kennaraprófi 1968. Störf að loknu námi voru fyrst og fremst kennslu- störf við eftirfarandi menntastofn- anir: Breiðagerðisskóla Reykjavík 1968-1969, Kópavogsskóla 1969- 1976 og Flataskóla, Garðabæ 1976- 1978. Útför Sigrúnar fór fram frá Garðakirkju 30. apríl, í kyrrþey. Hún Sigrún tengdamóðir hefur kvatt okkur. Hún er nú komin aftur í faðminn á stóru ástinni sinni honum Guðna. Nú sitja þau saman og drekka kaffið sitt á nýjum stað og fylgjast með afkomendunum vaxa og dafna. Sigrún og Guðni voru sálufélagar og samband þeirra engu öðru líkt. Þegar Guðni lést síðastliðið sumar þá missti Sigrún mjög mikið. Veikindi hennar tóku sig upp að nýju fyrir skömmu og það var ljóst í hvað stefndi. Enginn gerði sér þó grein fyrir því hve veik hún var orðin því hún var hörkutól og heyrðist aldrei kvarta. Sigrún var kjarnakona, kom ávallt glæsilega fram, eldaði dýrindis mat og hélt fyrirmyndarheimili. Hún var vanaföst, nákvæm og skipulögð. Hún hafði mikinn áhuga á því sem var að gerast í fjölskyldunni og vinahópnum enda var henni afar annt um sína nán- ustu. Hún var mjög hjálpfús og gjaf- mild og nutum við fjölskyldan góðs af því við hin ýmsu tækifæri. Það verður skrítið að geta ekki lengur farið í heimsókn til ömmu í Skógarlundi. Vilberg og Guðni voru miklu vanari því að fara til ömmu eftir leikskóla en heim til sín og þar átti amma alltaf eitthvað gott að borða. Sigrún var líka farin að hjálpa Aroni og Birnu með heimanámið á daginn. Það verður ekki fyrir hvern sem er að fylla hennar skarð í því enda frábær kennari og fáir jafn þolinmóðir. Aldrei vildi Sigrún láta hafa neitt aukalega fyrir sér vegna fötlunarinn- ar. Það tók því 30 ár að fá hana í sína fyrstu utanlandsferð frá brúðkaups- ferðinni. Það var ógleymanleg ferð sem þau Sigrún og Guðni buðu okkur í til Te- nerife fyrir 2 árum. Gönguferðir í sól- inni, sólböð á sundlaugarbakkanum með svalandi drykki og góður matur á kvöldin. Allt var svo vel heppnað að þau hjónin voru farin að plana næstu ferð strax daginn eftir heimkomuna og sáu eftir að vera ekki löngu búin að fara slíka ferð. Nú er ljóst að sú ferð verður aldrei farin en Sigrún og Guðni eru nú sam- ferða á ný í annarri og lengri ferð sem enginn veit hvar endar. Róbert Ólafsson. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Með þessum orðum kveðjum við elsku systur okkar Sigrúnu Vilbergs- dóttur, sem lést 20. apríl síðastliðinn. Við vottum Dunnu, Jóa, Aroni, Birnu, Grétu, Robba, Vilbergi og Guðna okk- ar dýpstu samúð. Hvíl í friði, elsku Sigrún, systir okkar. Valgerður Vilbergsdóttir og fjölskylda. Erna Vilbergsdóttir og fjölskylda. Mig langar með nokkrum orðum að kveðja Sigrúnu frænku mína í hinsta sinn. Sigrúnu hef ég þekkt allt mitt líf en hún var rúmlega níu ára gömul þegar ég fæddist. Móðir mín og faðir hennar voru systkini og alla tíð mjög náin. Sigrún var elst þriggja systra, en næst í röðinni er Erna og svo Val- gerður. Þær hafa alltaf verið mér sem systur. Fjölskylda okkar var lítil og samheldin og hittist alltaf á stórhátíð- um í Steinagerði á æskuheimili Sig- rúnar og systra hennar. Á uppvaxtarárum okkar leit ég mjög upp til Sigrúnar og fylgdist álengdar með þegar hún gekk menntaveginn. Það má segja að hún hafi verið mér góð fyrirmynd þegar hún valdi að loknu stúdentsprófi að afla sér kennaramenntunar. Ég gerði slíkt hið sama og er þakklát fyrir það. Það er ekki hægt að minnast á Sig- rúnu öðruvísi en að nefna Guðna líka. Það var mikið gæfuspor fyrir Sigrúnu þegar Guðni kom til sögunnar og voru þau mjög samhent hjón. Guðni reynd- ist Sigrúnu frábærlega vel og var henni einstakur stuðningur þegar hún slasaðist alvarlega í bílslysi síð- asta vetrardag árið 1978. Slysið hafði þær afleiðingar að Sigrún lamaðist í fótum og var bundin hjólastól upp frá því. Sigrún og Guðni eignuðust tvær yndislegar dætur, Guðnýju og Grétu, sem allt frá fyrstu tíð hafa verið ein- staklega ljúfar og góðar, duglegar og hjálpsamar við foreldra sína og fjöl- skyldu. Það mikilvægasta í huga Sig- rúnar og Guðna var fjölskyldan og voru þau mjög stolt af dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum sem voru í miklu uppáhaldi hjá ömmu sinni og afa. Guðný og Gréta og fjöl- skyldur þeirra hafa misst mikið á stuttum tíma. Guðni lést í byrjun júní 2008 og Sigrún aðeins rúmum tíu mánuðum seinna. Að leiðarlokum er margs að minn- ast og margt að þakka fyrir. Sigrúnu frænku minni vil ég þakka fyrir allt sem hún var móður minni á meðan hún lifði. Það voru miklir kærleikar á milli þeirra og leið varla sá dagur að Sigrún hringdi ekki til hennar. Við fjölskylda mín þökkum sam- fylgdina og kveðjum Sigrúnu með söknuði og þakklæti fyrir liðnar stundir. Við sendum Guðnýju og Jó- hanni, Grétu og Róberti, systkinun- um Aroni og Birnu Jóhannsbörnum og bræðrunum Vilbergi og Guðna Ró- bertssonum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Sig- rúnar Vilbergsdóttur. Sigríður Magnea Njálsdóttir og fjölskylda. Skömmu fyrir andlát sitt óskaði Sigrún Vilbergsdóttir þess að hún yrði kvödd í kyrrþey. Sú ósk var í samræmi við skapgerð hennar og lífs- feril. Hún var hógvær í framgöngu en hreinskiptin og hafði fallegt viðmót sem kom fram í öllum samskiptum við okkur skólasysturnar sem minnumst hennar með hlýju og söknuði. Flestar eru minningarnar tengdar kennslu- stundunum úr menntó, framtíðin var langt undan og engri okkar kom í hug að veikindi og dauði ættu eftir að spilla lífsgleðinni. Við bekkjarsystur vorum hver með sínu móti, sumar atkvæðamiklar og aðrar hljóðlátar. Þótt bekkjarandinn væri góður og við fjölmenntum gjarn- an í sömu partíin mynduðust smærri hópar innan heildarinnar og í einum slíkum átti Sigrún sitt öndvegi. Þá var oft glatt á hjalla, ekki síst þegar vin- konurnar hittust heima hjá henni í Steinagerði og skynjuðu þau óvenju- sterku fjölskyldubönd sem tengdu saman foreldrana, Vilberg og Sínu og dæturnar þrjár. Við eldhúsborðið þeirra var setið svo þétt að ekkert kynslóðabil rúmaðist og andrúmsloft- ið notalegra en víðast hvar. Við urðum stúdentar árið 1965 og völdum ólíkar leiðir til framtíðar en héldum hópinn með því sem við köll- uðum saumaklúbb þótt lítið færi fyrir hannyrðunum. Við héldum upp á fyrstu stúdentsafmælin af myndar- skap og þar birtust væntanlegir mak- ar, m.a. Guðni Stefánsson, traustur og skemmtilegur. Hamingjan skein úr fallegum brúnum augum brúðar- innar þegar þau voru gefin saman í Fríkirkjunni 9. ágúst 1969. Sigrún og Guðni áttu lund saman og í návist þeirra leið öllum vel. Bæði höfðu valið sér kennslustarf, höfðu svipuð áhugamál voru vinsæl og vel metin. Guðný var komin í heiminn þegar þau fluttust í myndarlegt hús- næði sitt í Garðabæ og svo bættist Gréta við. Lífið virtist brosa við fjöl- skyldunni þegar Sigrún varð fyrir al- varlegu bílslysi og lamaðist fyrir neð- an mitti. Þau Sigrún og Guðni tókust á við áfallið af hetjulund og skerpti það enn böndin á milli þeirra. Fjölskyldur beggja veittu þeim ómælda aðstoð og traustir vinir og kunningjar lögðu þeim lið. Að vísu varð nú vík milli vina hjá okkur í saumaklúbbnum því óvíða var aðgengi fyrir fatlaða en Sigrún mætti þegar hún átti þess kost og stundum kom hópurinn saman á hlý- legu heimili þeirra Guðna þar sem hún hafði búið okkur veisluborð. Þótt lífsgangan yrði öðruvísi en til var stofnað, var Sigrún alltaf söm og jöfn, lét aldrei hugfallast og það var stutt í brosið. Hún rak heimili sitt af mynd- arbrag og sinnti nemendum í auka- tímum af sinni eðlislægu alúð. Hlut- skipti sitt bar hún með reisn. Róðurinn þyngdist þegar Guðni veiktist alvarlega og við fráfall hans í júní sl. dró úr lífslöngun Sigrúnar. Dæturnar önnuðust hana vel og hún hafði mikið yndi af barnabörnunum fjórum. Í vetur greindist hún með banvænan sjúkdóm en tók því af sama æðruleysi og öðru og ræddi op- inskátt um það sem framundan væri. Við kveðjum nú góða og heilsteypta vinkonu. Hugurinn er hjá dætrunum og öðrum ástvinum sem í annað sinn á skömmum tíma hafa orðið fyrir þungu höggi Skarðið sem Sigrún og Guðni skilja eftir sig stendur opið og ófyllt en yfir því leika dýrmætar minningar um kjark og ástríki sam- hentra hjóna. Fyrir hönd bekkjarsystra úr MR 1965, Guðrún og Birna. Meira: mbl.is/minningar Einungis nokkrir mánuðir eru liðn- ir síðan við undirritaðar sátum saman og rituðum hinstu kveðju, líkt og við gerum í dag. Fyrir rétt tæpu ári lést eiginmaður Sigrúnar og faðir góðrar vinkonu okkar. Hann hafði glímt við sjúkdóm í nokkurn tíma og varð að endingu að lúta í lægra haldi. Eftir stóðu Sigrún, dætur hennar tvær, tengdasynir og barnabörn og tókust á við breyttar aðstæður. Fyrir fáeinum vikum fengum við svo af því fregnir að Sigrún glímdi einnig við erfiðan sjúkdóm og ætti að líkum aðeins nokkra mánuði eftir ólifaða. Kallið kom þó fyrr en nokkurn hafði órað fyrir. Við vinkonurnar höfum þekkt Sig- rúnu frá því við vorum litlar stelpur og fórum að venja komur okkar heim með Grétu í Skógarlundinn. Sigrún var heimavinnandi og í minningunni var það óumræðilega gott að fara heim með vinkonu okkar eftir skóla, því þar beið Sigrún með bros á vör og tók að móti okkur með smávegis bakkelsi og mjólk. Hún spurði okkur alltaf hvernig hefði verið í skólanum, hvað við hefðum lært þann daginn og svo sat hún hjá okkur og leiðbeindi okkur við heimaverkefnin. Í garðin- um í Skógarlundinum var lítil sund- laug sem vakti gríðarlega lukku hjá okkur vinkonunum og er ótrúlegt til þess að hugsa hversu þolinmóð hún Sigrún var þegar stelpnagerið birtist í Skógarlundinum og stakk sér í laug- ina, eftir að hafa tiplað rennandi blautar úr sturtunni yfir stofugólfið og skilið eftir fótspor út um allt hús. Sigrún tók fullan þátt í knattspyrnu- iðkun Grétu og Dunnu og mætti hún oftar en ekki á fótboltaleiki og sýndi þeim, og okkur hinum í liðinu, þannig stuðning í verki. Sigrún vílaði heldur ekki margt fyrir sér. Hvort sem um var að ræða busl í lauginni, fótboltag- láp í húsbóndaherberginu eða te og rist fyrir fótboltaleiki þá var hún alltaf reiðubúin að taka á móti okkur og að- stoða með stórt sem smátt. Hún var höfðingi heim að sækja og veislurnar sem hún gat galdrað fram voru ekki af verra taginu. Varla er hægt að minnast Sigrúnar án þess að nefna hve vandvirk hún var því allt það sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún af mikilli kostgæfni. Þennan góða eiginleika hafa dætur hennar, þær Gréta og Dunna, fengið í arf frá móður sinni. Nú þegar hjónin Sigrún og Guðni hafa bæði horfið á braut, allt of snemma, er gott að geta trúað því að þau séu nú sameinuð á ný á öðrum stað. Elsku Gréta, Dunna og fjölskyldur, Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tím- um. Guðrún Inga, Heiða og Helga. Sigrún Vilbergsdóttir                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR, Ægisgötu 16, Akureyri, lést í Sjúkrahúsi Akureyrar aðfararnótt miðvikudagsins 29. apríl. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju fimmtudaginn 7. maí kl. 13.30. Hreinn Sverrisson, Gunnar B. Hreinsson, Vilborg Helgadóttir, Guðbjörn S. Hreinsson, Kalína Klópóva og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÓSKAR HJÖRLEIFSSON, Lindargötu 61, Reykjavík, sem lést mánudaginn 27. apríl, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju fimmtudaginn 7. maí kl. 15:00. Þuríður Ingibjörg Jónsdóttir, Guðfinnur G. Johnsen, Guðbrandur Jónsson, María Maríusdóttir, Hjörleifur Magnús Jónsson, Laufey Jónsdóttir, Magnús A. Lúðvíksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.