Morgunblaðið - 21.06.2009, Page 10

Morgunblaðið - 21.06.2009, Page 10
10 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009 ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 46 31 1 05 /0 9 • Allt dreifikerfi rafmagnsveitu er neðanjarðar og er því ekki sjónmengun eins og víða erlendis. www.or.is Jónsmessu- ganga á Hengilinn Sunnudaginn 21. júní verður farin göngu- ferð upp á Hengil. Gengið verður upp Sleggjubeinsskarð og upp á Vörðuskeggja sem er 805 metra hár. Þaðan niður í Innstadal og niður Sleggjubeinsskarðið. Gangan tekur um fimm klukkustundir og er frekar erfið, að jafnaði um brattar fjallshlíðar. Nauðsynlegur búnaður: góðir gönguskór, góður hlífðarfatnaður og nesti. Mæting í Hellisheiðar- virkjun við Kolviðarhól klukkan 20:00. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Leiðsögumaður er Almar Sigurðsson, kynningarfulltrúi Hellisheiðarvirkjunar. Ef veður verður tvísýnt verður gengin auðveldari leið. afsali fullveldis, eða Jóhannes Karl Sveinsson hrl. sem telur ákvæðið ekkert hafa með afsal fullveldis að gera? Seint á fimmtudag var frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum lagt fram á Alþingi. Það sem marg- ir óttuðust kom á daginn. Stjórnvöld treysta sjálf- um sér til þess að fara í innan við 1% niðurskurð á ríkisútgjöldum á þessu ári, en þau treysta á hinn bóginn þjóðinni til þess að axla stórauknar álögur í formi aukinnar skattheimtu, atvinnulífið á að búa við stórhækkað tryggingagjald og elli- og örorkulíf- eyrisþegum treysta þau til þess að taka á sig stór- lækkað frítekjumark, sem þýðir skertar rástöf- unartekjur hjá elli- og örorkulífeyrisþegum. Að vísu var frétt á forsíðu Morgunblaðsins í gær, laugardag, þess efnis að áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð ráðuneyta á næsta ári séu miklu meiri, eða á bilinu 5% og upp í 10%, en oddvitar rík- isstjórnarinnar hafa látið nægja að kynna þau áform fyrir þingflokkum stjórnarinnar. Almenningi kemur málið ekki við, að svo stöddu. Ég ætla svo sem ekkert að vera að agnúast út í einstaka liði frumvarps, því vitanlega hafði stjórnin ekki úr neinum slemmuspilum að moða, svo gripið sé til líkingamáls úr bridds. Það sem fer fyrir brjóstið á mér er andvaraleysi þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar fyrir því hvernig þau matreiða áform sín ofan í þjóðina. Þau standa hálfnakin á berangri og um þau næða norðanvindar, eftir að algjör upp- gjöf þeirra gagnvart ríkisútgjöldum og niðurskurði á þeim er orðin að opinberri staðreynd. Jóhanna, sem félags- og tryggingamálaráðherra um margra ára skeið, og Steingrímur J., sem for- maður VG frá stofnun flokksins, virðast illilega hafa villst af leiðinni, sem þau hafa ávallt sagt vera sína leið: Að standa vörð um hag þeirra lægstlaunuðu, þeirra sem minnst mega sín. Nú fundu þau drjúgan tekjupott í elli- og örorkulífeyrisþegum, sem eiga Það hefur legið fyrir frá því að ríkisstjórn Samfylk- ingar og Vinstri grænna var mynduð, raunar miklu lengur, að ráðstafanir í ríkisfjármálum yrðu sárs- aukafullar. Eftir það sem á undan hefur dunið á ís- lensku þjóðinni, hafa allir vitað að svo yrði, það hef- ur bara verið spurningin um hvernig tekið yrði á ríkisfjármálunum, ekki hvort. Það er ekki síst þeg- ar kynna á erfiðar, óvinsælar og kvalafullar ráðstaf- anir, sem mikilvægt er að vel sé á öllum kynning- armálum haldið. Á því prófi hafa oddvitar ríkis- stjórnarinnar kolfallið. Þau hafa æ ofan í æ frestað ákvörðunum, frestað kynningum og staðið ómark- visst að kynningum. Oft hefur virst eins og mottóið væri: Frestur er á illu bestur. Þau forklúðruðu kynningunni á Icesave-samn- ingnum og báru alltaf fyrir sig leyndarskyldu, sem reyndist svo alls engin hafa verið. Sama máli gegnir með matreiðslu þeirra á frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þingheimur veit ekki sitt rjúkandi ráð, almenningur veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hver segir satt? Hver segir ósatt? Hvort hefur Steingrímur J. rétt fyrir sér, um að eignir ríkisins séu ekki að veði í Icesave-samning- unum, eða aðstoðarmaður hans Indriði H. Þorláks- son, sem segir að eignir ríkisins séu að veði? Hvor hefur rétt fyrir sér í lagalegri túlkun á þessu atriði Magnús Thoroddsen hrl. og fyrrver- andi forseti Hæsta- réttar, sem tel- ur að ákvæðið um að komi til greiðslu- falls af hálfu rík- issjóðs jafngildi að bæta afkomu ríkissjóðs um tæpa tvo milljarða króna á þessu ári og um rúma 3,6 milljarða króna á því næsta. Um leið og þessar ráðstafanir hafa verið njörvaðar niður í frumvarpi því sem nú er til með- ferðar hjá Alþingi, er ekki minnst einu orði á pósta sem Steingrímur J. og fleiri höfðu þó talað digur- barkalega um fyrr í vor. Þar á ég t.d. við end- urskipulagningu og fækkun ríkisstofnana, fækkun ráðuneyta, sendiráða og skattstofa. Hefði það ekki verið til einhvers skilnings fallið og jafnvel jákvæðni í garð fyrirhugaðra ráðstafana, ef ríkisstjórnin hefði haft manndóm í sér til þess að vera strax tilbúin með útfærðar hugmyndir um það hvernig verði að verki staðið í þeim efnum og hvað slíkar ráðstafanir þýddu fyrir ríkissjóð í millj- örðum? Er ekki líklegt að elli- og örorkulífeyr- isþegar hefðu betur getað sætt sig við þá kjara- skerðingu sem þeim er nú gert að taka á sig, ef þeir hefðu fengið nákvæmar upplýsingar um að stjórn- völd ætli að standa við stóru orðin um hagræðingu, niðurskurð, fækkun og sameiningu ríkisstofnana? Hvað hyggjast stjórnvöld til dæmis gera við Varn- armálastofnun? Var ekki rætt að með því að sam- eina stofunina Landhelgisgæslunni væri hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir? Hvenær ætlar rík- isstjórnin að sýna þjóðinni að hún treystir sér til þess að taka raunveru- legan þátt í erf- iðleikunum með því að gera það sem þjóðinni hefur verið uppálagt að gera: Að herða sultarólina? agnes@mbl.is Agnes segir … Þingheimur veit ekki sitt rjúkandi ráð, almenningur veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hver segir satt? Hver segir ósatt? Ekki minnst einu orði á pósta sem Steingrímur J. talaði dig- urbarkalega um fyrr í vor. Indriði H. Þorláksson Magnús Thoroddsen Þeim eru mislagðar hendur ÍMorgunblaðinu í gær var fréttþess efnis að Svein Harald Öyg- ard seðlabankastjóri hefði boðað á sinn fund fulltrúa tuttugu stærstu útflutningsfyrirtækjanna á Íslandi til þess að ræða eftirlit og eftirfylgni með framkvæmd reglna um gjald- eyrishöft.     Tilefnið var sagt það að borið hefðiá því að einhver útflutningsfyr- irtæki hefðu nýtt tekjur í erlendum gjaldeyri til þess að kaupa krónur á aflandsmark- aði, þar sem miklu fleiri krón- ur fengjust fyrir t.d. evrur, og hagnast þannig á reglunum í stað þess að fylgja skilaskyldunni sem nú hvílir á öllum vegna gjaldeyrishaftanna sem hér var komið á til þess að sporna við er- lendu útflæði gjaldeyris.     Hér er um grafalvarlegt mál aðræða og lykilatriði að Seðla- bankinn og Fjármálaeftirlitið fylgi eftir þeim reglum sem settar hafa verið, á þann veg að tryggt sé að all- ir útflytjendur sitji við sama borð.     Ef ekki verður hægt að tryggja þásjálfsögðu jafnræðisreglu í reynd, þá var verr af stað farið en heima setið.     Gjaldeyrishöftin eru hugsuð semtímabundið neyðarbrauð fyrir alla, og það á ekki að líðast að ein- hverjir örfáir geti á kostnað þjóð- arinnar allrar haldið niðri gengi krónunnar og stórhagnast á sama tíma.     FME hefur að undanförnu rann-sakað átta mál þar sem grunur leikur á að reglur um höftin hafi ver- ið brotin. Nú þurfa eftirlitsaðilar að snúa bökum saman og koma í veg fyrir að framhald geti orðið á brot- um af þessu tagi. Svein Harald Öygard Allir sitji við sama borð Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 9 skýjað Lúxemborg 12 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Bolungarvík 7 skýjað Brussel 14 heiðskírt Madríd 21 heiðskírt Akureyri 4 léttskýjað Dublin 12 skýjað Barcelona 22 léttskýjað Egilsstaðir 6 heiðskírt Glasgow 12 skýjað Mallorca 23 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 7 skýjað London 13 heiðskírt Róm 21 léttskýjað Nuuk 3 skúrir París 11 heiðskírt Aþena 27 heiðskírt Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 15 léttskýjað Winnipeg 15 heiðskírt Ósló 11 skýjað Hamborg 11 léttskýjað Montreal 17 alskýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Berlín 13 heiðskírt New York 19 heiðskírt Stokkhólmur 11 skýjað Vín 14 alskýjað Chicago 22 skýjað Helsinki 11 alskýjað Moskva 14 þoka Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR 21. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.47 3,4 11.00 0,6 17.15 3,9 23.38 0,6 2:55 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1.00 0,5 6.51 1,9 13.10 0,4 19.19 2,2 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 2.57 0,2 9.23 1,1 15.11 0,3 21.30 1,3 1:18 25:18 DJÚPIVOGUR 1.53 1,8 7.58 0,6 14.25 2,2 20.45 0,6 2:10 23:49 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á mánudag Suðvestan 8-13 m/s og skúrir, en hægari vindur og bjart veður A-lands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á A-landi. Á þriðjudag Suðlæg eða breytileg átt og víða dálítil rigning. Hiti 8 til 13 stig. Á miðvikudag Sunnan- og suðvestanátt, skýj- að með köflum og sums staðar skúrir N-lands. Heldur hlýn- andi. Á fimmtudag og föstudag Suðlæg átt og vætusamt S- og V-lands, en úrkomulítið og hlýtt í veðri norðaustantil á landinu. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestlæg átt 5-10 m/s og stöku skúrir en lítilsháttar rign- ing um tíma NA- og A-lands. Hiti 10-17 stig, hlýjast A-lands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.