Morgunblaðið - 21.06.2009, Page 17
Friðsælt Eyjaskeggjar bjuggu í kofum sem þessum og hlöðnum húsum og var lífið almennt friðsælt og gott á eyj-
unum áður en kalda stríðið náði til eyjanna.
brott þann 15. október 1971 þegar
bandaríski herinn hafði komið sér
fyrir.
Misnotkun valds
Fyrri íbúum Diego Garcia vegnaði
ekki vel á Máritaníu. Þeir áttu í erf-
iðleikum með að fá vinnu, en atvinnu-
leysi var mikið á svæðinu, auk þess
sem þeir höfðu ekki þekkingu á syk-
urreyr sem var eitt aðalhráefni Má-
ritaníu. Er talið að margir orðið að
þola fátækt eða leiðst út í glæpi og
vændi.
Lítið heyrðist af Chagossum fyrstu
árin en fljótlega fóru blaðamenn að
grufla í málefnum fólksins. Þannig
birtist grein í Washington Post um
fólkið sem látið var yfirgefa heim-
kynni sín til að rýma fyrir banda-
rískri herstöð og Sunday Times
fylgdi á eftir skömmu síðar með grein
um eyjuna sem Bretar seldu.
Árið 1976 skapaðist lagafordæmi
fyrir Chagossa þegar yfirvöldum á
Seychelle-eyjum tókst að vinna til
baka eftir málshöfðun þrjár eyjar
sem tilheyrðu eyjaklasanum, þar á
meðal skjaldbökueyjuna Aldabra.
Bandaríkin féllu frá sextíu ára leigu-
samningi sínum á þeim eyjum. Sams-
konar samningur hafði verið gerður
fyrir Diego Garcia og stóð enn.
Málið kemst á rekspöl
Það var ekki fyrr en árið 1983 að
eitthvað nýtt gerðist í málefnum Cha-
gossa.
Olivier Bancoult var aðeins fjög-
urra ára þegar hann yfirgaf eyjaklas-
ann með fjölskyldu sinni vegna veik-
inda litlu systur sinnar. Förinni var
heitið til Máritaníu til að fá lækn-
isaðstoð en það reyndist of seint, litla
systirin lést. Þegar fjölskyldan ætlaði
að fara heim lenti hún í því sem marg-
ir aðrir höfðu þegar lent í, þeim var
meinað að snúa tilbaka og sagt af
breskum yfirvöldum að búið væri að
selja eyjuna. Allslaus átti fjölskyldan
engan kost annan en að setjast að í fá-
tækrahverfi höfuðborgar Máritaníu,
Port Louis. Erfitt reyndist að draga
fram lífið þar og missti Bancoult tvo
bræður sína og enn eina systur í
hendur áfengis, eiturlyfja og þung-
lyndis.
Bancoult var hinsvegar ekki af
baki dottinn og stofnaði samtök
flóttamanna frá Chagos-eyjunum ár-
ið 1983. Hægt og rólega sóttist mál-
staðnum fylgi.
Samtökin fengu til liðs við sig tvo
lagahauka og mannréttindafrömuði,
þá Richard Gifford og hinn aðlaða
Sidney Kentridge en hann hafði bar-
ist fyrir málstað Nelsons Mandela.
Það var hinsvegar ekki fyrr en árið
2000 að raunverulegum árangri var
náð en það ár felldi hæstiréttur Bret-
lands þann úrskurð að allar ákvarð-
anir Breta sem lutu að því að gera
Chagossa brottræka frá eigin landi
hefðu verið ómerkar. Dómurinn vakti
mikla athygli en utanríkisráðherra
Breta á þeim tíma, Robin Cook, sagð-
ist ekki geta áfrýjað dómnum því
hann treysti sér ekki til þess að verja
aðgerðir fyrri ríkisstjórna. Cook
hafði lofað kjósendum sínum að hann
myndi berjast fyrir bættu siðferði
innan utanríkisþjónustunnar og er
talið að afstaða hans til þess sem
nefnt var Chagos-málið hafi orðið til
þess að hann var færður úr embætti
utanríkisráðherra árið eftir. Arftakar
hans hafa allir gætt sín á því að gæta
hagsmuna ríkisins hvað Chagos varð-
ar síðan.
Þrátt fyrir dóminn árið 2000 gerð-
ist ekkert í málefnum Chagossa.
Engin fékk að snúa til baka til
stærstu eyjarinnar, Diego Garcia, og
þeirrar einu sem var með góðu móti
byggileg. Árið 2002 fóru Chagossar
aftur fyrir dómstóla og kröfðust bóta
þar sem dómi hæstaréttar hafði ekki
verið fullnægt. 2004 tók breska rík-
isstjórnin hinsvegar ákvörðun þvert á
dóminn, á þá leið að eyjaskeggjar
myndu aldrei fá leyfi til að snúa til-
baka. Hæstiréttur úrskurðaði svo
2006 að sú ákvörðun hefði verið ólög-
leg. Ríkisstjórnin áfrýjaði þeim úr-
skurði og hæstiréttur vísaði áfrýj-
uninni frá 2007. Ríkisstjórnin áfrýjaði
málinu þá til lávarðadeildarinnar sem
seint á síðasta ári sneri úrskurði
hæstaréttar við.
25. mars síðastliðin ályktaði Evr-
ópuþingið að Evrópusambandið ætti
að finna sáttaleið svo Chagossar geti
snúið aftur til síns réttmæta heima-
lands. Starfshópur þingmanna úr öll-
um flokkum breska þingsins hefur
komið saman reglulega út af Chagos-
eyjaklasanum og verður næsti fundur
þann 30. júní. Þá er búist við að af-
staða verði tekin til yfirlýsingar Evr-
ópusambandsins.
Öll bönd virðast beinast að bresk-
um yfirvöldum sem virðast hafa erf-
iðan málstað að verja.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009
Sumarferðin 2009
verður farin fimmtudaginn 25. júní. Mæting á
Umferðarstöðinni kl. 8.30 og lagt af stað kl. 9.00
Ferðaáætlun:
Ekið til Borgarness og stoppað þar í 30 mínútur. Þá verður
haldið til Stykkishólms. Þar verður farið í skoðunarferð;
Vatnasafnið, Gallerí Braggi og Norska húsið. Þá verður farið
í kirkjuna og á móti okkur tekur Sr. Gunnar Eiríkur Hauksson.
Leiðsögumaður í ferðinni er Anna Þrúður Þorkelsdóttir.
Tvíréttaður kvöldverður á Hótel Glymi í Hvalfirði.
Verð kr. 5.500 fyrir sjálfboðaliða og kr. 7.000 fyrir gesti.
Fyrirtækin Góa, Danco, Sómi og Innnes gefa okkur góðgæti
af miklum rausnarskap.
Tilkynnið þátttöku sem allra fyrst til Auðar Þorgeirsdóttur á
skrifstofu Kvennadeildarinnar í síma 545 0400 eða 545 0405.
Með sumarkveðju
Félagsmálanefnd.
4
22. júní
Fréttir í tölvupósti