Morgunblaðið - 21.06.2009, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009
Kakan þín er komin
í Einkabankann
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
3
0
0
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.
EINKABANKINN | SJÁLFVIRKT HEIMILISBÓKHALD
Heimilisbókhaldið er í Einkabankanum þér að kostnaðarlausu.
Kynntu þér málið á landsbankinn.is.
• Fyrsta sjálfvirka heimilisbókhaldið
• Enginn innsláttur í Excel og engir útreikningar
• Þú velur hvaða reikningar og kort mynda kökuritið
• Færslurnar eru flokkaðar fyrir þig
• Hægt er að endurnefna og endurflokka færslur
Alþjóðlegi brettadagurinn er 21. júní
ár hvert. Þá rúlla hjólabretti um
stíga og torg sem aldrei fyrr.
Sú hugmynd að lýsa 21. júní sér-
stakan brettadag skaut upp koll-
inum í Suður-Kaliforníu árið 2003.
Þann dag átti öllum að vera frjálst
að einbeita sér að brettunum og
engu öðru.
Dagurinn var kallaður „Go Ska-
teboarding“ (farðu á bretti), sem lík-
lega er orðaleikur með vísan til
bannskilta sem víða er að finna í
Bandaríkjunum og á stendur „No
skateboarding“ (bretti bönnuð).
Brettafólk hefur sumt haft gaman af
að breyta „No“ í „Go“. Hugmyndin
að deginum var komin frá alþjóð-
legum samtökum brettaframleið-
enda, sem áreiðanlega sjá sér hag í
að vekja sem mesta athygli á brett-
um og fylgihlutum. Samtökin eru
lukkuleg með árangurinn. Á síðasta
ári hélt brettafólk í 32 löndum dag-
inn hátíðlegan, ef marka má vefsíð-
una goskateboardingday.org.
Á síðunni er brettafólk hvatt til að
„fagna hinni tæru gleði, sköp-
unargáfu og krafti“ sem fylgir því að
vera á bretti. Allar skyldur verði að
víkja og sjónvarp og tölvur að bíða.
Á þessum
degi
21. JÚNÍ BRETTADAGURINN
Á bretti Veggspjaldið fyrir al-
þjóðlega brettadaginn.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÓRAGSFÉLAGIÐ í Winnipeg (The
Intrepid Society of Winnipeg) vill að
gata í miðborg Winnipeg í Kanada
beri nafn Williams Stephensons,
Vestur-Íslendings og eins fremsta
njósnaforingja Breta í síðari heims-
styrjöldinni, sem var fyrirmynd Ians
Flemmings að njósnaranum James
Bond.
William Samuel Clouston Stanger
fæddist í Winnipeg 23. janúar 1897 og
ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sa-
rah Johnston, sem var íslensk í báðar
ættir, og William Hunter Stanger frá
Orkneyjum. Þegar faðir hans dó í
nóvember 1901 stóð móðir hans uppi
með þrjú ung börn og það réð hún
ekki við. Vinahjón í nágrenninu,
Kristín Guðlaugsdóttir og Vigfús
Stefánsson (Stephenson) tóku Willi-
am að sér og hann varð Stephenson.
Viðurkenningar
Í ársbyrjun 1945 var tilkynnt að
Bretar hefðu slegið William Steph-
enson til riddara. Um tveimur árum
síðar varð hann fyrsti útlendingurinn
til að fá heiðursorðu Bandaríkjanna
til óbreytts borgara. Kanadaorðuna
fékk hann 1980 en hann lést 31. jan-
úar 1989.
Frímerki með mynd af William S.
Stephenson var gefið út í Kanada árið
2000, en þrátt fyrir allt er hann ekki
mjög þekktur í landinu. Honum hefur
samt verið sýndur nokkur sómi í
Winnipeg. Fyrir um áratug var reist
stytta af honum í flugmannsbúningi
við Memorial Boulevard gegnt þing-
húsinu og skömmu áður gaf Órags-
félagið Manitoba Club litla styttu og
mynd af hetjunni, en gripirnir eru við
innganginn í matsal félagsins í forn-
frægu húsi við hliðina á Fort Garry-
hótelinu á Broadway. Fyrir nokkrum
árum breytti borgarstjórnin nafni á
einu bókasafni og nefndi það eftir
Stephenson. Í hverfinu, þar sem hann
ólst upp, er skjöldur til minningar um
hann, en því miður er ekki farið rétt
með allar staðreyndir í textanum.
Lítil gata
Óragsfélagið hefur lagt til að Por-
tage Avenue East, sem er stutt gata
frá mótum Main Street og Portage
Avenue í suðaustur, verði nefnd Willi-
am Stephenson Place. Við götuna er
Fairmont-hótelið, eitt glæsilegasta
hótel borgarinnar, og nokkur fyr-
irtæki. Félagið valdi þessa götu
vegna staðsetningar hennar í mið-
bænum og vegna þess hvað hún er lít-
il, en fyrir vikið hafi nafnbreytingin
áhrif á fá fyrirtæki. Dagblaðið Winni-
peg Free Press segir að mikilsmetnir
menn í borginni eins og Leonard
Asper, Tom Axworthy og Arni Thor-
steinson séu á meðal margra stuðn-
ingsmanna tillögunnar en eigendur
nokkurra fyrirtækja við götuna hafa
lagst gegn hugmyndinni. Málið er til
athugunar hjá nefnd hjá borginni.
Vilja nefna götu
eftir njósnaranum
Morgunblaðið/Steinþór
Gatan Portage Avenue East sé frá
suðurendanum. Fjær eru gatnamót
Portage og Main, sem lengi voru
sögð þau vindasömustu í Norður-
Ameríku.
Morgunblaðið/Steinþór
Fyrir allra augum Styttan gegnt
þinghúsinu. Stórverslun Bay við
portage í baksýn.