Morgunblaðið - 21.06.2009, Síða 41
Ísafjarðar auðveldari.
Ég vil að lokum kveðja Unni með
eftirfarandi ljóðlínum
Fegurð og dulúð fjöllin vefur
friður situr tindum á,
lækurinn kliðar, sorgin sefur,
sólgullið kvöldið lokar brá.
Greina má klukku tímans tifa
tekur hún skrefin stillt og rótt.
Minningar góðar glaðar lifa,
Guð faðir býður góða nótt
(H.Z.)
Öllum aðstandendum Unnar
votta ég mína dýpstu samúð og bið
guð að styrkja þau í sorg sinni.
Ómar Karlsson.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Unnur, kærar þakkir fyrir
trausta og einlæga vináttu í gegn-
um árin.
Þín tengdadóttir,
Guðrún Magnúsdóttir.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum,
er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Unnur var sterk kona; heil-
steypt, hlý og góð manneskja, sem
við bárum mikla virðingu fyrir og
þótti afskaplega vænt um.
Fyrir allar samverustundirnar
og minningarnar langar okkur að
þakka og biðjum Guð að geyma
hana Unni ömmu.
Við þökkum samfylgd á lífsins leið,
þar lýsandi stjörnur skína
og birtan himneska björt og heið,
hún boðar náðina sína,
en Alfaðir blessar hvert ævinnar
skeið
að eilífu minningu þína.
(Vigdís Einarsdóttir.)
Hálfdán, Sigríður, Óskar,
Hugrún, Arna María, Hild-
ur, Haukur Jörundur og
Heiðar Máni.
Minningar 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009
Óvíða er eins fag-
urt útsýni frá bónda-
bæ og Gilsbakka í
Borgarfirði. Jörðin,
sem er kostagóð og
hlunnindarík, hefur
verið skógi vaxin í tíð
Illuga svarta er menn rjóðuðu um
sig til að koma sér fyrir. Síðar varð
þar staður og prestar höfðu búsetu,
sá síðasti Magnús Andrésson.
Heimilið var stórt, margt manna,
sögur sagðar, kynslóð kenndi kyn-
slóð. Í þessu umhverfi ólst upp
Magnús Sigurðsson, fyrrverandi
bóndi á Gilsbakka. Glöggur, nam af
landi og fólki. Hafði blæbrigði
tungumálsins á valdi sínu, kunni vel
að fara með. Sat aðeins einn bekk
til að taka stúdentspróf, meira
þurfti ekki. Þetta var nóg. Magnús
fór heim að Gilsbakka og varð
bóndi. Til þess stóð hugurinn, á
Gilsbakka vildi hann vera. Unni
jörðinni, þekkti hverja þúfu. Mikill
Borgfirðingur er ekki vildi vasast í
pólitík sem honum fannst leiðinda-
tík.
Kynni höfðu verið með okkur um
hríð þegar svo hagaði til að við
fengum að syngja saman bassann í
samsöng í Reykholtskirkju. Báðum
líkaði vel svo kunningsskapurinn
styrktist. Síðan gerðist það, síðla
hausts árið 2006, að förufugl flögr-
aði heim að Gilsbakka, nokkuð
öðruvísi fiðraður en flestir. Settist
hann á hlaðið og hafði þar viðdvöl
um skeið, mislengi í hvert sinn.
Handtakið var þétt hjá þeim hjón-
um er hinn ágengi fugl sem seildist
inn fyrir skörina, var boðinn vel-
kominn. Sest var við fótskör bónda
og gleyptur í sig allur sá fróðleikur
er hann vildi miðla, smár sem stór,
nógu var af að taka. Útkoman varð
viðtal er birtist í jólablaði héraðs-
fréttablaðsins Skessuhorns og síðar
í bókinni „Fólkið í Skessuhorni.“
Þessar stundir á Gilsbakka eru í
endurminningunni eins og þegar afi
Magnús Sigurðsson
✝ Magnús Sigurðs-son fæddist 27.
september 1924.
Hann lést 6. júní 2009
og fór útför hans
fram frá Reykholts-
kirkju 20. júní.
fræðir angann sinn.
Ég sat við fótskörina
og reyndi að gleypa í
mig allt sem vinur
minn, Magnús á Gils-
bakka, hafði að segja.
Hvergi var komið að
tómum kofunum þótt
spurt væri í sífellu.
Sagan, fólkið, lífsbar-
áttan, aðstæðurnar
og umhverfið, allt
varð lifandi í frásögn-
inni. Mig undraði þá
og gerir enn hvar
hægt var að finna
tíma til að nema allt sem bjó þar
inni. Magnús, bóndinn, víða virkur í
félagsmálum, trúað fyrir for-
mennsku á mörgum vígstöðvum og
fórst vel úr hendi. Á því leikur ekki
vafi að hann hefur átt góða að í
konu sinni og börnum. Stundir
mínar á Gilsbakka eru í fersku
minni og samofnar mikilli hlýju.
Móttaka þeirra hjóna og viðmót,
einstakt. Það var eins og að koma á
heimili náinna ættingja eða vina.
Dyrnar voru opnaðar upp á gátt og
förufuglinn var boðinn hjartanlega
velkominn, þá sem síðar.
Það eru ekki allir sem vilja láta
slæða sig en stundum gerist það að
fólk skiptir um skoðun og svo varð
um Magnús vin minn. Hann hafði
ekki gefið mörg viðtöl um ævina, að
líkindum teljandi á fingrum ann-
arrar handar, en ég hef verið svo
heppin að fá taka tvö þeirra. Rétt
fyrir sína síðustu ferð fór hann yfir
viðtal, sem við höfðum skapað, er
að líkindum mun birtast í bók um
Þverá í Borgarfirði. Við áttum
spjall saman annan dag páska.
Heilsan var heldur verri en óskir
stóðu til að það myndi ekki vara
lengi þótt Magnús hafi sjálfan
grunað að dvölin hérna megin væri
að styttast. Á þeim nótum ræddum
við ögn í símann þennan dag. Það
varð ekki fleira, ekki þá, ekki nú.
Síðustu göngunni er lokið.
Kæra fjölskylda, mínar dýpstu
samúðaróskir fylgja ykkur fram á
veginn. Góður drengur er genginn.
Maggi minn, góðar kveðjur og
þakkir fyrir afar góða samveru,
samvinnu og vináttu. Við hittumst
síðar.
Birna G. Konráðsdóttir.
Þrátt fyrir öll þessi ský
sem dimmleit hrannast upp í
huganum
heyri ég fuglana syngja
og finn sumarið flæða um æð-
arnar.
Úti blaktir heiðríkjan
og birtan kemur og segir:
„Komdu blessuð og sæl.
Mikið var gaman að kynnast þér.
Þegar þú ferð verð ég eftir
handa hinum.“
(Einar Már Guðmundsson.)
Óskar Örn Hálfdánarson.
HINSTA KVEÐJA
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Okkar ástkæra dóttir, móðir, amma og systir,
MARGRÉT GÍSLADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Garðakirkju miðvikudaginn
24. júní kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunar-
þjónustuna Karitas.
Jónína J. Ward,
Jón Hilmar Hálfdánarson,
Júlíus Atli Hálfdánarson,
Kara Rún Margrét Júlíusdóttir,
Tera Rún Jórunn Júlíusdóttir,
Jón Gíslason,
Júlíana Gísladóttir,
Ólafur Gíslason,
Þuríður Gísladóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR RINGSTED
fyrrv. bankastjóri,
Mýrarvegi 117,
Akureyri,
sem lést laugardaginn 6. júní, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. júní kl. 13.30.
Hulda Haraldsdóttir,
Sigurður Ringsted, Sigrún Skarphéðinsdóttir,
Haraldur Ringsted,
Guðmundur Ringsted,
Anna Ringsted,
Pétur Ringsted, Sigríður Þórólfsdóttir,
Huld Ringsted, Hallgrímur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma
okkar,
SIGRÍÐUR GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Langholtsvegi 142,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
12. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Starfsfólki á deild 13E á Landspítalanum Hringbraut, eru færðar
hjartans þakkir fyrir einstaka umönnun.
Anna G. Gunnarsdóttir, Þráinn Tryggvason,
Jón K. Gunnarsson, Kristrún E. Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Leiðaþjónustan
Sími 772 3301. Netfang umhirda@gmail.com
Heimasíða http://umhirda.com
Láttu okkur sjá um leiði ástvina þinna.
Allar lagfæringar og umhirða.
Örugg og vönduð þjónusta er okkar stolt.
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag