Morgunblaðið - 21.06.2009, Side 46

Morgunblaðið - 21.06.2009, Side 46
46 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009 Sudoku Frumstig 5 8 5 6 6 7 4 5 1 9 1 8 3 4 8 6 9 3 4 9 5 7 3 7 8 6 7 9 2 4 8 6 5 5 7 9 4 6 1 1 9 5 7 2 2 8 4 3 8 4 9 7 8 6 9 8 4 1 6 9 7 3 2 6 1 6 4 2 2 1 8 9 3 4 7 8 6 2 5 1 1 8 2 4 5 3 6 9 7 5 6 7 9 1 2 8 4 3 3 4 8 6 9 1 7 2 5 7 2 1 5 3 4 9 8 6 6 5 9 2 7 8 3 1 4 4 7 5 8 6 9 1 3 2 2 9 3 1 4 7 5 6 8 8 1 6 3 2 5 4 7 9 8 9 2 1 5 3 6 4 7 3 4 1 2 6 7 8 5 9 5 7 6 4 9 8 2 3 1 2 1 8 7 3 4 9 6 5 7 6 9 5 2 1 3 8 4 4 5 3 9 8 6 7 1 2 6 2 5 3 1 9 4 7 8 1 3 4 8 7 2 5 9 6 9 8 7 6 4 5 1 2 3 7 1 2 9 8 4 6 3 5 8 6 3 2 5 1 9 7 4 4 5 9 6 3 7 2 1 8 2 9 4 3 6 5 1 8 7 1 7 5 4 9 8 3 6 2 3 8 6 7 1 2 5 4 9 6 3 7 5 4 9 8 2 1 9 2 1 8 7 3 4 5 6 5 4 8 1 2 6 7 9 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er sunnudagur 21. júní, 172. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vín- viðarins, fyrr en Guðs ríki kemur. (Lk. 22, 18.) Á dögunum lenti Víkverji í könn-un hjá Gallup um þjónustu Ís- landsbanka. Víkverji er ekki mikið fyrir að taka þátt í könnunum því það tekur yfirleitt nokkurn tíma og Víkverji er afar nískur á tíma sinn. En af því að Íslandsbanki er þjón- ustubanki Víkverja kunni hann ekki við að segja nei og svaraði samvisku- samlega fjölmörgum spurningum. x x x Víkverji uppgötvaði í miðri könn-un að honum þykir vænt um bankann sinn og telur hann veita bestu mögulegu þjónustu. Þessi uppgötvun gerði Víkverja næstum því hamingjusaman. Honum leið svo vel að geta hrósað einhverjum, jafn- vel þótt þessi „einhver“ sé stofnun en ekki manneskja. Víkverja þótti reyndar verra að geta ekki hrósað frábærum þjónustufulltrúa sínum í könnuninni. Bankinn hefur eiginlega gert allt sem hægt er fyrir Víkverja og fyrir það er Víkverji óendanlega þakklátur. Víkverji veit að það er ekki vinsælt að segja þetta í krepp- unni þar sem svo margir hatast við bankakerfið en Víkverji segir það samt: Það er gaman að eiga viðskipti við góðan banka. x x x Á dögunum las Víkverji 79 afstöðinni eftir Indriða G. Þor- steinsson sem nú er komin út í kilju hjá Forlaginu. Þetta er stutt saga, vel smíðuð og stíluð. Víkverji var ansi sáttur við hana. Í lokin skilur höfundurinn lesandann eftir með angurværa tilfinningu, eins og flink- ir höfundar gera þegar þeim hefur tekist að fá lesandann til að lifa sig inn í líf sögupersóna þar sem hlutir fara ekki á besta veg. x x x Og þar sem Víkverji er á jákvæð-um nótum þessa vikuna vill hann endilega fá að hrósa Hátækni í Ármúla. Þangað þurfti Víkverji að leita fyrir skömmu og fékk afar góða þjónustu – og var meira að segja boðið kaffi sem hann varð reyndar að afþakka af þeirri einföldu ástæðu að hann drekkur ekki kaffi. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 bremsa, 4 per- sónutöfrar, 7 ber, 8 blað- ið, 9 sunna, 11 siga, 13 hugboð, 14 ljóstíra, 15 hagræða, 17 tryggur, 20 borða, 22 illa þefjandi, 23 styggjum, 24 hugsa um, 25 framleiðsluvara. Lóðrétt | 1 kasta, 2 blundar, 3 beitu, 4 rasp- ur, 5 óvani, 6 út, 10 óalið, 12 vætla, 13 op, 15 ís- breiða, 16 vitlaus, 18 kvabbs, 19 lofuð, 20 baun, 21 ávinna sér. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 ómerkileg, 8 búrum, 9 negla, 10 una, 11 iðrar, 13 næðið, 15 staða, 18 stórt, 21 pól, 22 nunna, 23 æruna, 24 ómissandi. Lóðrétt: 2 múrar, 3 ræmur, 4 innan, 5 eggið, 6 obbi, 7 barð, 12 arð, 14 ætt, 15 sund, 16 afnam, 17 apans, 18 slæga, 19 ólund, 20 tían. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 Hb8 8. Dd2 Da5 9. a3 b5 10. Ha2 b4 11. axb4 Dxb4 12. Be2 Be7 13. O-O O-O 14. Kh1 f6 15. Ha4 Dxb2 16. dxc5 Bxc5 17. Rxd5 fxe5 18. Bxc5 Rxc5 19. Hc4 Da3 Staðan kom upp í opnum flokki kín- verska svæðamótsins sem lauk fyrir skömmu í Peking. Rui Gao (2.500) hafði hvítt gegn Weiqi Zhou (2.563). 20. Dc3! og svartur gafst upp enda mannstap óumflýjanlegt, t.d. eftir 20. …Dxc3 21. Rxc3. Stórmeistararnir Ji- anchao Zhou (2.635) og Hao Wang (2.696) urðu jafnir og efstir á mótinu og tryggðu sér sæti í heimsmeistara- keppni FIDE árið 2010. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Konungasaga. Norður ♠D974 ♥G42 ♦53 ♣K972 Vestur Austur ♠K ♠532 ♥ÁD10985 ♥7 ♦ÁD104 ♦K9872 ♣G3 ♣1054 Suður ♠ÁG1086 ♥K63 ♦G ♣ÁD86 Suður spilar 4♠. Clas Nyberg er einn af lykilmönnum finnska landsliðsins. Hann var hér í suður. Vestur vakti á 1♥ – pass, pass til Clas, sem sagði 1♠. Vestur ítrekaði hjartað og norður lyfti í 2♠. Clas reyndi við geim með 3♣ og norður tók þeirri áskorun. Allir pass. Vestur hugsaði nokkra hríð um út- spilið, en lagði svo niður ♥Á. Fram- haldið er fyrirsjáanlegt: hjartastunga, tígull til baka og önnur stunga. Clas hugnaðist ekki þessi örlög og hrærði upp í stöðunni með því að láta ♥K und- ir ásinn! Eldsnöggt. Vestur lét blekkj- ast og skipti yfir í ♣G. Fyrsta hindrun að baki og nú þurfti bara að skella trompkóngnum blönkum í bakhönd- inni. Og það gerði okkar maður, enda líklegt að austur væri með ♦K úr því að vestur vildi alls ekki hreyfa litinn. Og tvo kónga gat austur varla átt. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Tækifærin bíða þín á næsta leiti. Notaðu daginn til þess að segja, gera og hafa hlutina eins og þú vilt. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér er legið á hálsi fyrir að láta starfið ganga fyrir öllu. Búðu til ham- ingjusama strauma innra með þér fyrir alla eilífð. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það sem er þér eðlislægt finnst öðrum öfundsverður hæfileiki. Jafnvel þótt þeir ætluðu að hafa samband við þig fyrir löngu, þá skaltu brjóta odd af oflæti þínu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú þarft að huga að framtíðinni og tryggja stöðu þína sem best. Hafðu engar áhyggjur, þetta er tímabundið ástand sem varir aðeins í sólarhring. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það kemur fyrir alla að vera ókurt- eisir, og oftast án þess að ætla sér það. Brettu upp ermarnar og hættu ekki fyrr en borðið er hreint. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Vinnan sem bíður þín er ólík öllu sem þú hefur áður gert. Einvera er stundum uppspretta nýrra uppgötvana. Láttu skoðun þína í ljós. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Beindu frekar athyglinni að björtu hliðum lífsins en mundu að fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Margar hendur vinna létt verk. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú hefur verið flæktur í líf annarra upp á síðkastið. Gerðu þitt besta í stöðunni og láttu það fréttast að þú sért tilbúinn í hvað sem er. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Það er gott vita að maður getur gengið frá borðinu hvenær sem er. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Vinur gæti komið þér á óvart í dag. Sýndu þolinmæði í samskiptum við börn því að þú ert meira yfirþyrmandi en þú áttar þig á. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hver vill ekki vita hvaðan næsta máltíð eða koss kemur? En þú ert nógu djarfur til að fórna því öllu fyrir bestu hugmynd dagsins. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Dagurinn í dag er frábær. Vertu opinn fyrir nýjum tækifærum. Alheim- urinn leggur sig í líma við að létta þig aðeins, poppa þig upp – og það virkar! Stjörnuspá Þetta gerðist … 21. júní 2000 Síðari Suðurlandsskjálftinn reið yfir kl. 00.51. Hann mæld- ist 6,6 stig og átti upptök við Hestfjall í Árnessýslu. „Skelf- ing greip um sig,“ sagði DV. Tjón í þessum skjálfta og þeim fyrri, sem varð 17. júní, er tal- ið hafa numið á annan milljarð króna. Meðal annars eyðilögð- ust 34 hús. 21. júní 2003 Stefán Ingi Valdimarsson fékk 10 í meðaleinkunn á BS-prófi í stærðfræði í Háskóla Íslands, en það þótti einstakur árang- ur. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Sólrún Svava Kjartansdóttir og Monika Birta Baldvinsdóttir gengu í hús og söfnuðu dóti á tombólu sem þær síðan héldu við verslun Bónus í Naustahverfi á Akureyri. Afrakst- urinn sem var 4.137 kr. færðu þær Rauða krossinum. Hlutavelta Þessir krakkar komu í Rauða- krosshúsið með 19.186 kr. sem er afrakstur af tombólu sem þau héldu á Laugarveginum og vildu styrkja Rauða krossinn. Þau heita: Ómar Castaldo, Auður Ágústsdóttir, Kristján Gabríel Þórhallsson og Re- bekka Berta Hanson. Á myndina vantar Gunni Hönnu Sigurð- ardóttur. Hlutavelta „ÞAÐ þýðir ekkert að halda upp á afmælið á dag- inn sjálfan, allir eru í sumarfríi og enginn myndi koma! Svo ég ætla að halda upp á afmælið með haustinu,“ segir Ágúst Rafn Kristjánsson raf- virkjameistari, sem er fimmtugur í dag. Þetta þekkja auðvitað margir sem eiga afmæli á miðju sumri. Þó er hefð fyrir að ættingjar komi í köku og kaffi á daginn sjálfan og á því verður engin undantekning. Ágúst er fjölskyldumaður, með þrjú börn og hundinn Pomma í Kópavoginum. „Ég giftist inn í Kópavoginn fyrir 26 árum og hef ekki ratað út aft- ur,“ segir hann glettilega. „Það er auðvelt að komast í Kópavoginn en erfiðara að fara til baka.“ Þaðan kemst hann þó upp undir Úlfarsfell þar sem hann hefur aðstöðu til að sinna sínu helsta áhugamáli, en Ágúst er svifdrekamaður og hefur verið í þrjátíu ár. Þess á milli er hann rafvirkjameistari, eins og fyrr segir. „Núna er mikil uppsveifla hjá rafvirkjum eins og mér, því ég er í heimilistækjaviðgerðum. Allir láta gera við þessa dagana og enginn tímir að kaupa nýtt á þessu svimandi verði sem nú er.“ Hann kveðst því ekki búast við heimilistækjum í afmælisgjöf. halldorath@mbl.is Ágúst Rafn Kristjánsson er 50 ára Allir í fríi á daginn sjálfan Nýirborgarar Reykjavík Alexía Lív fæddist 19. nóvember kl. 11.17. Hún vó 3.340 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Hafsteina Helga Sigurbjörnsdóttir og Birgir Sigurðsson. Hongkong Jóhanna Bjarkadóttir Lind fæddist 26. apríl. Foreldrar henn- ar eru Kristrún Lind Birg- isdóttir og Bjarki Viðar Garðarsson. Reykjavík Tupac Týr Nu- nez Kvaran fæddist 12. júní kl. 18.55. Hann vó 4.320 g og var 55 cm. For- eldrar hans eru Lazaro Lu- is Nunez Altuna og Nína Rúna Ævarsdóttir Kvaran.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.