Morgunblaðið - 04.07.2009, Blaðsíða 46
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM 750kr.
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
Stærsta mynd ársins
- 38.000 manns!
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
750kr.
Frábær ævintýra
gamanmynd í anda fyrri myndar!
750kr.
750kr.
750kr.
HHHH
„Lætur engan ósnortinn“
- SV, Mbl
HEIMSFRUMSÝNING!
MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS!
750kr.
HEIMSFRUMSÝNING!
MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS!
750kr.
„mjög skemmtileg og ætti að höfða
til breiðs hóps áhorfenda“
- Dóri DNA, DV
HHH
„Þessi spræka og
fjölskylduvæna
bandaríska teikni-
mynd er sú þriðja í
röðinni og sú besta
þeirra“
- Ó.H.T. , Rás 2
„Þetta er góð skemmtun
með góð skilaboð og hentar
ungum sem öldnum”
- Ó.H. T., Rás 2
OG NÚNA LÍKA Í 3-D
HHH
“Athyglisvert og
vandað verk.
”
-ÓHT, Rás 2
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 2 - 4 - 6 - 8 LEYFÐ
Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Year One kl. 10 B.i. 7 ára
Gullbrá og birnirnir 3 kl. 2 LEYFÐ
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Ghosts of girlfriends past kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ
Tyson kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.12 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 4 LEYFÐ
Year One kl. 3:30 - 9 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 6 B.i.14 ára
Ice Age (enskt tal/ísl.texti) kl. 3:30 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Ghosts of girlfriends past kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Lesbian Vampire Killers kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Night at the museum 2 kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Year One kl. 3:30 - 5:45 B.i. 7 ára
Terminator: Salvation kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SIGURÐUR Ásgeir Árnason, leið-
togi Ultra Mega technobandsins
Stefáns, er með kolbilaðri sviðs-
mönnum Íslandssögunnar og tón-
leikar sveitar hans eru goðsagna-
kenndir. Allt verður vitlaust, alltaf,
þegar Siggi og co. henda í gang.
Fyrri hluta ferilsins voru viðtöl við
sveitina einnig kolbiluð og Sigurður
laug eins og hann var stuttur til um
allt og ekkert. Lauk t.a.m. einu
þeirra með þessum fleygu orðum
sem prýða fyrirsögnina. Það er því
vissara að taka því sem fer hér á eft-
ir með sæmilegasta fyrirvara.
Algjör sirkus
Sveitin heldur nokkurs konar
kveðju- eða burtfarartónleika á Zim-
sen í kvöld, en Sigurður er á leiðinni
í hinn virta tónlistarskóla Berklee í
Boston þar sem hann mun dvelja í
fimm vikur ásamt fyrrum félaga sín-
um úr Soundspell.
Vistina fékk sveitin í verðlaun fyr-
ir að sigra í alþjóðlegri lagasmíða-
keppni í fyrra. Sigurður er hins veg-
ar hættur í Soundspell, en það hafði
ekki áhrif á vistina.
„Ég væri gjarnan til í að fara í
fullt nám þarna í fyllingu tímans.
Tónsmíðanámið heillar. Og ég er af-
ar vongóður um að svo verði. En ég
sný aftur eftir fimm vikur þannig að
Ultra Mega … er ekkert að hætta.“
UMTBS gaf út plötu í fyrra sem
var svo gott sem ósýnileg í plötubúð-
um og Sigurður segir að útgáfuferlið
hafi verið heljarinnar stapp frá upp-
hafi til enda.
„Hvar á maður að byrja?“ segir
hann og dæsir. „Umbanum okkar,
Þorsteini Kragh, er stungið í stein-
inn og ég varð að taka við því kefli.
Svo fór allt úr skorðum sem gat farið
úr skorðum. Masterinn týndist og
þetta varð að algjörum Sirkus. Enda
heitir platan Sirkus. Við hefðum
frekar átt að skrifa bók um þennan
bægslagang og gefa út. Hún hefði
örugglega selst betur.
Tjáir sig ekki um Kragh
Um vinnu þeirra með Þorsteini
Kragh segir Sigurður einfaldlega
„no comment“. Hann segir hins veg-
ar að UMTBS verði í spólandi ham í
haust, og m.a. eru túrar um Spán og
Þýskaland framundan.
„Svo verðum við á útopnu á
Airwaves. Sveitin er í gír og nýtt
efni er að hlaðast upp.“
Og í framtíðinni eru það svo „al-
varlegar“ tónsmíðar við einn virt-
asta tónlistarskóla heims. Eða hvað?
„Öll tónlistarsköpun er alvarleg,
að mínu viti,“ svarar Sigurður.
„Hugur minn stendur einfaldlega til
að gera góða tónlist. Það er allt og
sumt,“ segir grallaraspóinn Sig-
urður að lokum.
„Við erum guðir“
Ultra Mega technobandið Stefán heldur burtfarartónleika á Kaffi Zimsen
Forsprakkinn, Sigurður, stefnir á tónsmíðanám í Berklee, Boston
Brjálæði Sigurður, búinn á því, eftir enn eitt kolbilaða giggið.
BANDARÍSKA leikkonan Rumer
Willis, sem er dóttir Bruce Willis og
Demi Moore, mun leika pönkara og
lesbíu í sjón-
varpsþátt-
unum 90210.
Willis er tví-
tug og verður
gestaleikari í
að minnsta
kosti einum
af síðustu
þáttunum
sem gerast í
West Beverly
High skól-
anum í Los
Angeles. „Gia er svona pönkuð og
sæt lesbía sem er óhrædd við að
segja það sem henni finnst,“ segir
heimildarmaður um persónuna sem
Willis mun leika.
Leikkonan unga hefur annars ný-
verið komið fram í sjónvarpsþátt-
unum Medium og CSI: New York.
Hún vakti nýverið athygli þegar
hún lýsti því yfir að hún hefði lítinn
áhuga á hvers kyns djammi.
„Á laugardagskvöldum finnst mér
best að vera bara með vinum mín-
um, spila og svona. Mér finnst ekki
gaman að fara í villt partí, ég hef
séð hvað eiturlyf gera fólki.“
Leikur
lesbíu
Rumer Willis.