Morgunblaðið - 17.10.2009, Síða 2

Morgunblaðið - 17.10.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is © IL V A Ís la n d 20 0 9 Fjöldi afmælistilboða Komdu og gerðu frábær kaup loftljós Ø15 cm 8.995,- Joker. Loftljós. H 18, Ø15 cm. Verð 8.995,- H 33, Ø18 cm. Verð 19.995,- Ýmsir litir. einfaldlega betri kosturNÝJAR VÖRUR Í VERSLUN Nýtt kortatímabil Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „MEÐ lögum skal land byggja sögðu þeir gömlu Íslendingar og óvíst hvar lendir ef ekki er farið eftir niðurstöðu dómstóla. Það kann ekki góðri lukku að stýra að hafa tvenn lög í landinu. Þjóðkirkjan vill þjóna íslensku mannfélagi og þá fer ekki vel á því að hún ætli sér að búa við önnur lög en samfélagið sem hún þjónar.“ Þetta sagði séra Gunnar Björns- son á borgarafundi sem hann boðaði til á Selfossi í gær. Á annað hundrað manns var á fundinum. Séra Gunnar fór yfir ásakanir sem á hann voru bornar um kynferðis- lega áreitni við stúlkur í sókninni. Tvö ár eru liðin síðan málið kom upp. Séra Gunnar var sýknaður í héraðsdómi og Hæstarétti, en úr- skurðarnefnd þjóðkirkjunnar taldi að Gunnar hefði gerst sekur um sið- ferðisbrot en ekki agabrot. Séra Gunnar sagði að eftir að Hæstiréttur hefði kveðið upp sýknu- dóm hefði Karl Sigurbjörnsson bisk- up sent sér bréf þar sem kæmi fram að hann ætti að taka við embætti sóknarprests á Selfossi 1. maí. Bisk- up hefði síðar hringt í sig og spurt hvort hann væri tilbúinn til að sam- þykkja að fresta því til 1. júní. „Ég spurði hvort ég gæti treyst því að ég tæki við starfi 1. júní. Ég man að hann svaraði: „Já, þú getur treyst því.““ Hörð gagnrýni á biskup Á fundinum kom fram hörð gagn- rýni á biskup Íslands. Árni Johnsen alþingismaður sagði á fundinum að svo gæti farið að biskup yrði dreginn fyrir dóm fyrir lögbrot. Biskup hefði rofið friðinn og neitað að fara eftir niðurstöðu Hæstaréttar. Hann lýsti því yfir að hann myndi taka mál séra Gunnars upp á Alþingi. Séra Valgeir Ástráðsson sagði að hann yrði með sorg í hjarta að taka undir gagnrýni Árna á biskup Ís- lands. Það væri búið að fara illa með söfnuðinn á Selfossi og það þyrfti að stöðva þessa endaleysu. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir sagði á fundinum að biskup ætti að koma til fundar við sóknarbörnin á Selfossi. Hún sagðist ekki vera viss um að hann myndi gera það, en hvatti sóknarbörn til að leigja rútur og keyra til Reykjavíkur og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við biskup. Í lok fundar var samþykkt álykt- un þess efnis að biskup endurskoð- aði ákvörðun sína og að fundur yrði í sókninni um málið. Ekki farið að lögum  Séra Gunnar Björnsson segir það ekki kunna góðri lukku að stýra að hafa tvenn lög  Hörð gagnrýni á biskup Ljósmynd/Egill Bjarnason Fjölmenni Séra Gunnar Björnsson boðaði til borgarafundar á Selfossi í gærkvöldi og mætti á annað hundrað manns á fundinn. Hann rakti mál sitt og í kjölfarið kom fram mikil gagnrýni á biskup Íslands. Eftir Önund Pál Ragnarsson og Sigurð Boga Sævarsson „VIÐ getum tekið fyrsta skrefið til afnáms haftanna fyrir 1. nóvember,“ segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra um gjaldeyris- höftin. Á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun fór hann yfir endurskoðun stöðugleikasáttmálans, vexti og af- nám hafta. Að sögn Gylfa er fyrsta skrefið fólgið í því að opna fyrir innstreymi fjármagns. Í því felst, að þeir sem hafa í hyggju að fjárfesta hér á landi eða flytja hingað fjármuni hafi tryggingu fyrir því að geta flutt pen- ingana út aftur þegar þeim hentar, það er að höftin eigi ekki við það sem kemur að utan eftir breytinguna. Skref í ákveðinni röð „Næstu skref eiga að vera að opna fyrir útstreymi eftir ákveðinni röð sem ekki er þó hægt að tímasetja,“ útskýrir Gylfi. Hann segir afnám hafta að nokkru haldast í hendur við hvernig til tekst með efnahagsáætl- un Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og lán sem henni fylgja, hvernig viðskipta- og greiðslujöfnuður þróast og hvern- ig aðgengi að lánsfjármagni, utan þess sem fylgir AGS, verður á næstu misserum. Stöðugleikasáttmáli ríkisvaldsins og vinnumarkaðarins er í uppnámi og fellur að óbreyttu úr gildi 26. október. Reynt er þó að bjarga því að samningurinn haldi. Fulltrúar Al- þýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins funduðu í Karphúsinu í gær með fulltrúum efnahags- og viðskiptaráðuneytis þar sem meðal annars var farið yfir vexti og geng- ismál. Vaxtamál í hnút „Við erum á stöðugum fundum og enn er æði mikið út af borðinu í við- ræðum við ríkið,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ. Sérstaklega er vænst bitastæðra tillagna sem bætt geta afkomu og stöðu heimil- anna sem og réttarbóta til handa þeim sem hafa orðið gjaldþrota eða eru í greiðsluaðlögum. Skattamál eru einnig í deiglu. Stórframkvæmdir sem efla áttu atvinnustigið í landinu voru meðal pósta í stöðugleikasáttmálanum en eru nú í uppnámi, meðal annars vegna ákvörðunar umhverfisráð- herra. Þá eru vaxta- og gengismál í hnút og eftir því sem lengra líður dregur úr líkunum á því að krónan styrkist og nái því sem Gylfi Arn- björnsson kallar sögulegt jafnvægi. „Getum tekið fyrsta skrefið til afnáms hafta“ ASÍ vill réttarbætur fyrir gjaldþrota Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Til stendur að af- létta gjaldeyrishöftum í áföngum. Í HNOTSKURN » Fyrsta skrefið til afnámsgjaldeyrishaftanna verður tekið fyrir 1. nóvember. » Opnað fyrir útstreymigjaldeyris í ákveðinni röð. » ASÍ og SA ræða um stöð-ugleikasáttmálann við rík- ið. Vaxtamál og stórfram- kvæmdir í hnút. »Sífellt minni líkur á því aðíslenska krónan styrkist og nái sögulegu jafnvægi. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is TÓMAS H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahval- veiðiráðinu, segir að á tveggja vikna fundi 12 ríkja í ráðinu, sem lauk í Santiago í Chile í gær, hafi niður- staðan verið sú að hvalveiðiríki og ríki andstæð hval- veiðum vilji ná málamiðlunarsamkomulagi sem feli í sér aukna verndun hvalastofna og bætta stjórnun hvalveiða. „Þetta var mjög gagnlegur fundur og það miðar í rétta átt,“ segir hann. Á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í júní sem leið var hópi 12 ríkja – Antígva & Barbúda, Ástralíu, Bandaríkj- anna, Brasilíu, Íslands, Japans, Kamerúns, Mexíkó, Nýja-Sjálands, Saint Kitts og Nevis, Svíþjóðar og Þýskalands – falið að leita samkomulags um betrum- bætur á starfsemi ráðsins. Vilja ná sáttum Tómas H. Heiðar segir að fyrsti fundur fulltrúa þess- ara 12 ríkja í Santiago hafi verið afar gagnlegur og góður andi hafi ríkt. Hvalveiðiríkin og þau ríki sem séu and- stæð hvalveiðum geri sér grein fyrir því að alþjóðahval- veiðiráðið verði ekki starfhæft ef togstreita ríki áfram á milli hópanna. „Báðir hóparnir eru reiðubúnir að leggja töluvert af mörkum til að ná málamiðlunarsamkomulagi sem felur bæði í sér aukna verndun hvalastofna og bætta stjórnun hvalveiða,“ segir hann. Annar fundur hópsins verður haldinn í desember með því markmiði að ná samkomulagi fyrir næsta ársfund Al- þjóðahvalveiðiráðsins sem verður í Marokkó í júní 2010. Miðar í rétta átt hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.